James Bond er myndarlegurbreskurnjósnari með einkennisnúmerið 007, sem þýðir að hann hefur leyfi til að drepa. Hann ferðast um heiminn og notar gáfur sínar, bardagakunnáttu og hátækni til þess að sigra illmenni sem sækjast eftir heimsyfirráðum. Ian Fleming notaði þó ekki mikil tæki og tól í bókum sínum en þau urðu eitt af helstu einkennum Bonds þegar myndirnar komu út. Önnur helstu einkenni Bonds eru m.a. að hann er hrifinn að vodka-martini („shaken, not stirred”),Walther PPK skammbyssan hans og sá vani hans að kynna sig sem: „Bond, James Bond“.
Fleming nefndi James Bond eftirlíffræðingi sem hafði það nafn. Fleming var mikill fuglaáhugamaður og þegar hann rakst á eintak af bókinni:A Field Guide to the Birds of the West Indies vissi hann strax að hann myndi nefna njósnarann eftir nafni höfundarins (vildi einnig hafa það sem einfaldast). Bond persónan er þó að einhverju leyti byggð á einkalífi Flemings. Rithöfundurinn vissi að hann ætti að hafa dýran og góðan lífsstíl. Hann var einnig byggður á manni sem Fleming hitti á Estoril spilavítinu íPortúgal á meðan hann sinnti störfum íseinni heimsstyrjöldinni. Einnig kom fyrsta bókin frá þeim stað en það varCasino Royale.
Andrew Bond, faðir James Bond, varskoskur og móðir hans, Monique Delacroix, varsvissnensk. Bæði dóu þau í slysi sem átti sér stað meðan þau voru í fjallaklifri þegar Bond var aðeins 11 ára gamall. Hann flutti til Kent til frænku sinnar, Miss Charmian Bond, og var skjaldamerkið á heimilinu: „Orbis non sufficit” sem þýðir: „heimurinn nægir ekki“ álatínu. Þetta slagorð kom í myndunumOn Her Majesty’s Secret Service ogThe World is not Enough. James Bond var örstutta stund í Eton menntaskólanum og fór svo yfir í Fettes menntaskólann. Hann sótti svo í háskólann íGenf en1941 fór hann yfir í breska flotann. Þaðan vann hann sig upp í bresku leyniþjónustunnar. Mikið hefur verið rætt um fæðingardag. Samkvæmt bók Johns Pearson,James Bond: The Authorized Biography of 007, fæddist Bond11. nóvember1920. Engin bóka Flemings styður það en í bók hansYou Only Live Twice segir að hann hætti í skóla 17 ára gamall og fór strax í breska flotann (það þýðir að hann fæddist einhvern tímann árið1924). Í bókinniFrom Russia With Love er sagt frá því þegar hann keypti fyrsta bílinn sinn (Bentley) sem átti að gerast1933. Það þýðir að hann hafi verið of ungur til að keyra hvort sem hann hefði fæddist1920 eða1924. Hann ætti þá að vera fæddur einhvern tímann á 2. áratug20. aldar.
Ian Fleming, höfundur flestra bókanna, skrifaði margar bækur og smásögur um persónuna frá árunum1953-1964. En eftir dauða hans árið1964 voru aðrir rithöfundar sem héldu persónunni gangandi, þ.á m. Kingsley Amis, John Pearson, John Gardner, Raymond Benson og Charlie Higson.
James Bond myndaröðin er, eins og stendur, númer tvö á lista yfir tekjuhæstu myndaraðirnar, á eftirStar Wars-myndaröðinni. Upprunalegu bækur Flemings voru yfirleitt dekkri og dýpri heldur en blandan um einstakt illmenni, ófyrirsjáanleg söguþráð og kynæsandi konur sem falla fyrir Bond sem er venjuleg blanda Bond myndanna. Myndirnar stækkuðu Q-deildina eða tæknideildina og oftast var söguþráður myndanna og bókanna ekki sá sami.
Sean Connery í hlutverki Bonds við tökur á myndinniDiamonds Are Forever árið 1971.
Fyrsti leikarinn til að túlka Bond varBandaríkjamaðurinnBarry Nelson og var það í myndinniCasino Royale1954 sem framleidd var afCBS sjónvarpsstöðinni. Árið1956 lékBob Holnenn rödd Bonds ísuður-afrískum útvarpsþætti í gerð afMoonraker.MGM átti nú eftir að gera 21 Bond mynd og voru fyrstu fimm leiknar afSean Connery sem að mörgum er talinn besti Bondinn.George Lazenby gerði eina mynd og kom Sean Connery aftur og gerði svo eina í viðbót. Næstu sjö voru leiknar afRoger Moore og því næstTimothy Dalton sem gerði tvær ogPierce Brosnan næstu fjórar.Daniel Craig er búin að fara með aðalhlutverk Bonds í fimm myndum, m.a.Casino Royale en það er fyrsta MGM gerðin af henni en hún hefur verið gerð tvisvar áður. Þrjár James Bond myndir sem MGM framleiddu ekki voru:Casino Royale (1954),Casino Royale (1967), þar semDavid Niven fór með hlutverk njósnarans, ogNever Say Never Again (1983), sem var endurgerð kvikmyndarinnar Thunderball frá1964. Sean Connery lék Bond í henni eins og hann hafði gert árið 1964 íThunderball.
Albert R. Broccoli ogHarry Saltzman voru fyrstu framleiðendur Bond myndanna (þ.e. MGM seríunnar) og byrjuðu þeir áDr. No þar sem Sean Connery lék njósnarann. Eftir að myndinThe Man with the Golden Gun kom út settist Harry Saltzman í helgan stein. Albert R. Broccoli hætti svo árið1989. Framleiðslufyrirtækið EON Productions sá um framleiðsluhlið Bonds allt til ársins 1989 og hafði þá hver mynd staðið sig vel varðandi tekjur nema einstakar inni á milli.
Margir halda að framleiðendur Bond-myndanna myndu aldrei ráða Bandaríkjamann til að leika hann en í raun hefur það gerst tvisvar og einnig boðið í að leika hann.Adam West hafði tækifæri á að leika íOn Her Majesty's Secret Service þegarSean Connery ákvað að hætta. Að lokum féllstGeorge Lazenby á að leika í henni og samþykkti Sean Connery að leika aftur í Bond mynd og var það myndinDiamonds are Forever eftir að BandaríkjamaðurinnJohn Gavin hafnaði því.James Brolin átti að taka við afRoger Moore í myndinniOctopussy en framleiðendurnir lokkuðu Moore til að gera tvær í viðbót.