Movatterモバイル変換


[0]ホーム

URL:


Fara í innihald
WikipediaFrjálsa alfræðiritið
Leit

Jacques Chirac

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Jacques Chirac
Chirac árið 1997.
Forseti Frakklands
Í embætti
17. maí1995 16. maí2007
ForsætisráðherraAlain Juppé
Lionel Jospin
Jean-Pierre Raffarin
Dominique de Villepin
ForveriFrançois Mitterrand
EftirmaðurNicolas Sarkozy
Forsætisráðherra Frakklands
Í embætti
27. maí1974 26. ágúst1976
ForsetiValéry Giscard d'Estaing
ForveriPierre Messmer
EftirmaðurRaymond Barre
Í embætti
20. mars1986 10. maí1988
ForsetiFrançois Mitterrand
ForveriLaurent Fabius
EftirmaðurMichel Rocard
Persónulegar upplýsingar
Fæddur29. nóvember1932
París,Frakklandi
Látinn26. september2019 (86 ára)París,Frakklandi
MakiBernadette de Courcel (g. 1956)
BörnLaurence, Claude
HáskóliInstitut d'études politiques de Paris
École nationale d'administration
Undirskrift

Jacques René Chirac (29. nóvember 1932 – 26. september 2019[1]) varfranskur stjórnmálamaður og fyrrverandiforseti Frakklands. Hann var kosinn í embætti árið 1995 og aftur 2002 en síðara kjörtímabil hans rann út árið 2007. Í krafti embættis síns var hann einnigmeðfursti Andorra og stórmeistariFrönsku heiðursfylkingarinnar. Áður var Chiracborgarstjóri Parísar 1977 til 1995 auk þess að gegna embættiforsætisráðherra tvívegis; fyrst 1974 til 1976[2] og aftur 1986 til 1988. Áður en hann náði kjöri sem forseti hafði Chirac boðið sig fram án árangurs í forsetakosningunum árin 1981 og 1988.

Chirac sigraði frambjóðandaSósíalistaflokksins,Lionel Jospin, í forsetakosningunum árið 1995.[3] Í byrjun forsetatíðar sinnar viðurkenndi Chirac ábyrgð og þátttöku franskra stjórnvalda íVichy-stjórninni í ofsóknum á gyðingum á meðan á þýska hernáminu stóð íseinni heimsstyrjöldinni.[4] Hann neyddist síðar til að hefja stjórnarsamband við sósíalistana og gera Jospin að forsætisráðherra eftir ósigur hægrimanna í þingkosningum árið 1997. Á kjörtímabilinu var haldin þjóðaratkvæðagreiðsla um stjórnarskrárbreytingar þar sem kjörtímbabil forsetans var stytt úr sjö árum í fimm. Chirac vann endurkjör til forseta árið 2002 í seinni umferð með 82,2 % atkvæða á mótiJean-Marie Le Pen, frambjóðanda frönskuÞjóðfylkingarinnar. Þetta er enn í dag stærsti kosningasigur sem unninn hefur verið í forsetakosningum fimmta franska lýðveldisins. Á seinna kjörtímabili Chirac fóru vinsældir hans nokkuð dalandi en jukust á ný þegar Chirac neitaði að taka þátt íÍraksstríðinu fyrir hönd Frakklands.[5] Hann mælti einnig fyrir því í atkvæðagreiðslu aðný stjórnarskrá fyrirEvrópusambandið yrði samþykkt en hún var að endingu felld. Chirac sóttist ekki eftir þriðja kjörtímabili og settist í helgan stein þegar kjörtímabilinu lauk árið 2007.

Sem fyrrverandi forseti fékk Chirac síðan sæti á stjórnlagaþingi Frakklands og sat þar til ársins 2011, en þá sagði hann sig úr því af heilsufarsástæðum. Í desember sama ár var Chirac dæmdur til tveggja ára fangelsisvistar vegna spillingarmála sem komu upp frá borgarstjóratíð hans í París.[6]

Tilvísanir

[breyta |breyta frumkóða]
  1. Kristján Róbert Kristjánsson (26. september 2019).„Jacques Chirac látinn“. RÚV. Sótt 26. september 2019.
  2. „Jacques Chirac“.Þjóðviljinn. 23. mars 1986. bls. 5.
  3. Steingrímur Sigurgeirsson (9. maí 1995).„Allt er þegar þrennt er“.Morgunblaðið. bls. 16-17.
  4. „Chirac viðurkennir aðild Frakka að helförinni“.mbl.is. 19. júlí 1995.
  5. „Vinsælastur í Bagdad“.Fréttablaðið. 5. október 2003. bls. 24.
  6. „Jacques Chirac fær tveggja ára dóm“.Vísir. 16. desember 2011.


Fyrirrennari:
Pierre Messmer
Forsætisráðherra Frakklands
(1974 – 1976)
Eftirmaður:
Raymond Barre
Fyrirrennari:
Borgarstjóri Parísar
(1977 – 1995)
Eftirmaður:
Jean Tiberi
Fyrirrennari:
Laurent Fabius
Forsætisráðherra Frakklands
(1986 – 1988)
Eftirmaður:
Michel Rocard
Fyrirrennari:
François Mitterrand
Forseti Frakklands
(1995 – 2007)
Eftirmaður:
Nicolas Sarkozy


Annað lýðveldið(1848–1852)
Þriðja lýðveldið(1871–1940)
Fjórða lýðveldið(1947–1959)
Fimmta lýðveldið(1959–)
Skáletrun gefur til kynna bráðabirgðaforseta.
Konungsríkið Frakkland
Júlíríkið
Annað lýðveldið
Síðara keisaraveldið
Þjóðvarnarstjórnin
Þriðja lýðveldið
Vichy-stjórnin
Bráðabirgðastjórnin
Fjórða lýðveldið
Fimmta lýðveldið
  Þettaæviágrip erstubbur. Þú getur hjálpað til með því aðbæta við greinina.
Sótt frá „https://is.wikipedia.org/w/index.php?title=Jacques_Chirac&oldid=1921902
Flokkar:
Falinn flokkur:

[8]ページ先頭

©2009-2026 Movatter.jp