Jón eðafareind erfrumeind eða hópur frumeinda meðrafhleðslu. Jón sem hefur fleirirafeindir írafeindahveli sínu enróteindir íkjarnanum er neikvætt hlaðin jón og er stundum nefndanjón eftirgríska orðinuἀνω (anο) sem þýðir „upp“ (líkaforjón ogmínusjón) því hún laðast aðforskautum. Jákvætt hlaðin frumeind hefur færri rafeindir en róteindir og er kölluðkatjón eftir gríska orðinuκατά (kata) sem þýðir „niður“ (líkabakjón ogplúsjón) því hún laðast aðbakskautum. Ummyndun frumeindar úr óhlaðinni frumeind yfir í jón og jónunarástand er kallaðjónun. Þegar jónum og rafeindum er stefnt saman til þess að þær myndi hlutlausar frumeindir er það kallaðjónfang.
Ein- og fjölatóma jónir eru táknaðar með hávísi þar sem formerkið plús eða mínus gefur til kynna hleðslu og tölustafur þann fjölda rafeinda sem er ofaukið eða vantar. Til dæmis:H+,SO3-2.
Orkan sem þarf til að skilja rafeind, í lægsta orkuþrepi sínu, frá frumeind eða gassameind með lægri hleðslu, er kölluðjónunarspenna.Nta jónunarspenna frumeindar er orkan sem þarf til að skiljaNtu rafeind hennar eftir að fyrstuN - 1 rafeindirnar hafa þegar verið skildar frá.
Hver jónunarspenna er töluvert hærri en sú næsta á undan. Sérstaklega hækkar hún eftir aðrafeindasvigrúm hefur verið tæmt og næsta rafeind því tekin af innra rafeindasvigrúmi sem er fullt. Af þessum ástæðum hafa jónir tilhneigingu til að myndast á þann hátt að ysta mögulega rafeindasvigrúm þeirra sé fullt. Til dæmis hefurnatrín einagildisrafeind í ysta hveli sínu og finnst því oftast í jónaðri mynd með eina glataða rafeind, sem Na+. Á hinum væng lotukerfisins hefurklór sjö gildisrafeindir og vantar eina upp í fullt rafeindasvigrúm. Því finnst klór í jónuðu formi yfirleitt með eina aukarafeind, þ.e. Cl-.
Kvenkynsorðiðjón er dregið afenska orðinuion sem Faraday tók upp eftirgríska orðinuἰόν, sem er lýsingarháttur nútíðar í hvorugkyni af sögninniἰέναι sem þýðir „að fara“.Fareind er annað orð sem hefur verið notað yfir jónir og virðist gerð þess einnig tengjast gríska orðinu. Einnig er orðiðraf notað um jón þó það eigi oftast við um steingerða trékvoðu.[1]