Movatterモバイル変換


[0]ホーム

URL:


Fara í innihald
WikipediaFrjálsa alfræðiritið
Leit

Internet Relay Chat

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
HelstuIRC net
EFnet
DALnet
IRCNet
QuakeNet
Undernet
Enter The Game
freenode
GameSurge

Internet Relay Chat (IRC, íslenskað meðviðskeyttum greini semIrkið[1][2] eðairkið[3][4][5]) er kerfi sem notað er til samskipta á rauntíma í gegnum veraldarvefinn. Nafnið getur einnig átt við um þannnetsamskiptastaðal sem notaður er. Hver notandi þarf forrit eða biðlara sem sér um samskipti við netþjón sem aftur sér um að skilaboð komast á réttan stað (stundum sér netþjóninn um meira, til dæmis geymir skilaboð ef þú ert ekki tengdur þegar einhver þarf að tala við þig). Stærstu samskiptanetin ernetu oftast samsett úr mörgum netþjónum og menn tengjast þá gjarnan þeim sem er manni næstur.Nokkur IRC-þjónanet eru til en á meðal þeirra má nefnaDALnet,EFnet,IRCnet ogUndernet en allir þeir sem vilja geta stofnað sinn eiginn IRC-þjón með frjálsum og ókeypishugbúnaði. Notkun á irkinu nefnist aðirka[4] og notendur nefnastirkarar.[4]

Þegar persóna tengist inn á IRC-þjón er hægt að láta IRC-þjóninn fá m.a. fullt nafn,tölvupóstfang oggælunafn en samskipti við aðrar persónur fara í gegnum gælunöfnin. Notendur eiga líka möguleika á því að hafa samskipti við aðra notendur í gegnum rásir en allar þeirra hafa ákveðiðforskeyti eftir eðli þeirra. Skráaskipti eru einnig möguleg án milligöngu netþjónanna. Sérstakir stjórnendur eðaoppar[5] (dregið af enska orðinuop eðaoperator) fylgjast með spjallrásunum og en þeir geta til dæmis bannað notendur og hent þeim út.

Tengt efni

[breyta |breyta frumkóða]

Tenglar

[breyta |breyta frumkóða]

Heimildir

[breyta |breyta frumkóða]
  1. Irkið uppsett
  2. Fólk á öllum aldri á Irkinu
  3. Öryggi og heiðarleiki á Netinu
  4. 123Íslendingasagnastíll unglinganna
  5. 12Irkið
Sótt frá „https://is.wikipedia.org/w/index.php?title=Internet_Relay_Chat&oldid=1880930
Flokkar:

[8]ページ先頭

©2009-2026 Movatter.jp