Movatterモバイル変換


[0]ホーム

URL:


Fara í innihald
WikipediaFrjálsa alfræðiritið
Leit

Internet Archive

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Merki Internet Archive.

Internet Archive erstafrænt gagnasafn sem geymir ýmis konar stafræn gögn, þar á meðalvefsíður,hugbúnað,hljóðskrár,kvikmyndir og milljónirstafrænna endurgerða afbókum. Internet Archive ersjálfseignarstofnun staðsett íRichmond íSan Francisco,Kaliforníu. Stofnunin berst líka fyrir frjálsu og opnuInterneti. Í janúar 2023 voru yfir 36 milljón bækur og 780milljarðar vefsíðna varðveitt hjá stofnuninni. Aðgangur að vefsíðum sem stofnunin varðveitir er í gegnum hugbúnaðinnWayback Machine sem stofnunin hefur þróað.

Internet Archive var stofnað árið 1996 af bandaríska tölvunarfræðingnumBrewster Kahle sem þá vann fyrir leitarvélinaAlexa Internet. Sama ár hóf Internet Archive að safna og varðveita vefsíður í miklu magni. Safnið varð aðgengilegt almenningi árið 2001. Árið 2003 stóð Internet Archive að þróun sérhæfðrarvefköngulóar (skriðils) til að safna vefsíðum í samstarfi við norrænu landsbókasöfnin, sem fékk heitiðHeritrix. Sama ár voru samtökinInternational Internet Preservation Consortium stofnuð af 12 landsbókasöfnum í kringum varðveislu á vefsíðum.

Landsbókasafn Íslands hóf að safna vefsíðum með Heritrix-hugbúnaðinum árið 2004 fyrirVefsafnið. Internet Archive gaf síðan safninu afrit af þeim íslensku vefsíðum sem stofnunin hafði safnað frá 1996.

Tenglar

[breyta |breyta frumkóða]
  Þessi grein erstubbur. Þú getur hjálpað til með því aðbæta við greinina.
Sótt frá „https://is.wikipedia.org/w/index.php?title=Internet_Archive&oldid=1848206
Flokkar:
Falinn flokkur:

[8]ページ先頭

©2009-2026 Movatter.jp