Movatterモバイル変換


[0]ホーム

URL:


Fara í innihald
WikipediaFrjálsa alfræðiritið
Leit

Idi Amin

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Idi Amin
Idi Amin árið 1975.
Forseti Úganda
Í embætti
25. janúar1971 – 11. apríl1979
VaraforsetiMustafa Adrisi
ForveriMilton Obote
EftirmaðurYusuf Lule
Persónulegar upplýsingar
FæddurÍ kringum 1925
Koboko,Úganda
Látinn16. ágúst2003Jeddah,Sádi-Arabíu
MakiMalyamu (skilin)
Kay (skilin)
Nora (skilin)
Madina
Sarah Kyolaba
Börn43
StarfHerforingi, stjórnmálamaður
Undirskrift

Idi Amin Dada Oumee (~192516. ágúst2003) var forsetiÚganda frá árinu1971 til1979. Valdatíð hans þótti einkennast af mikilli grimmd þar sem talið er að hundruð þúsundir Úgandabúar hafi veriðpyntaðir og myrtir. Idi Amin stundaði markvissarkynþáttaofsóknir gegn þjóðarbrotumatsjólímanna,langómanna og fleirum.

Amin komst til valda með valdaráni gegn stjórnMiltons Obote árið 1971. Bretar voru fegnir því að losna við Obote, sem vareinræðisherra og lítt hallur undir hagsmuni Breta. Amin átti hins vegar ekki eftir að reynast skárri. Á alþjóðasviðinu varð Amin fljótt frægur fyrir mjög sérviskulega hegðun og fjölmörg kjánaleg ummæli. Þegar Bretar riftu stjórnmálasambandi við Úganda árið 1977 lýsti Amin því yfir að hann hefði „sigrað“ Breta og gaf sjálfum sér titilinn „sigrari breska heimsveldisins“. Undir lok valdatíðar Amins var titill hans í heild sinni: „Hans æruverðuga hátign, forseti til lífstíðar og ofursti Al Hadjí, Doktor Idi Amin, VC, DSO, MC, drottnari allra lifandi skepna og fiska sjávarins og sigurvegari breska heimsveldisins í Afríku og sérstaklega í Úganda“.[1]

Amin hafði undarlegt dálæti áSkotlandi og hann lýsti því yfir að hann væri hinn ókrýndi „síðasti konungur Skotlands“.[2] Öll þessi uppátæki leiddu til þess að utan Úganda var helst litið á Amin sem eins konar ofvaxið barn, meinlausan trúð sem varla bæri að taka alvarlega. Þessi trúðsímynd skyggði nokkuð á skelfileg mannréttindabrot sem viðgengust undir stjórn Amins í Úganda.

Árið 1978 hóf Amininnrás íTansaníu með herstuðningi fráMuammar Gaddafi. Úgandski herinn galt afhroð í átökunum við Tansaníuher og svo fór að Tansanar gerðu gagnárás inn í Úganda. Tansanar hertóku Kampala og ráku Amin á flótta. Amin slapp til Líbíu en settist síðar að í Sádi-Arabíu, þar sem hann bjó til dauðadags árið 2003.

Tilvísanir

[breyta |breyta frumkóða]
  1. Jón Gunnar Þorsteinsson (21. ágúst 2002).„Af hverju stundaði Ídí Amín mannát?“.Vísindavefurinn. Sótt 24. mars 2024.
  2. Appiah, Anthony; Henry Louis Gates (1999).Africana: The Encyclopedia of the African and African American Experience.


Fyrirrennari:
Milton Obote
Forseti Úganda
(1971 – 1979)
Eftirmaður:
Yusufu Lule


  Þessi Afríkugrein erstubbur. Þú getur hjálpað til með því aðbæta við greinina.
Sótt frá „https://is.wikipedia.org/w/index.php?title=Idi_Amin&oldid=1900072
Flokkar:
Faldir flokkar:

[8]ページ先頭

©2009-2025 Movatter.jp