IBM Personal Computer, betur þekkt semIBM PC, vareinkatölva semIBM setti á markað12. ágúst1981 og náði fljótt gríðarlegum vinsældum. Tölvan var arftakifartölvunnarIBM 5100 og var upphaflega kölluð IBM 5150 þótt hún væri í raun tæknilega óskyld þeirri tölvu. Hún var tilraun IBM til að komast inn á ört vaxandiörtölvumarkaðinn þar sem voru ríkjandi tölvur á borð viðCommodore PET,Atari 800,Apple II,TRS-80 og ýmsar gerðir sem búnar vorustýrikerfinuCP/M. Vegna þess hve mikið lá á að koma tölvunni á markað var ákveðið að notast við tilbúna íhluti frá öðrum framleiðendum í stað þess að þróa nýja hjá IBM. Tölvan var með nýjum átta bita8088örgjörva fráIntel auk átta bitagagnabrautar og búin stýrikerfinuIBM PC-DOS sem IBM þróaði í samstarfi viðMicrosoft og var í raun sérmerkt útgáfaMS-DOS.
Tölvan var hönnuð af hópi verkfræðinga undir stjórnDon Estridge íBoca Raton íFlórída. Upphaflega áætlunin, að markaðssetja tölvuna semheimilistölvu, reyndist mistök og tölvan náði fyrst og fremst vinsældum semskrifstofuvél. IBM PC-vélar náðu gríðarlegum vinsældum og olli einkatölvubyltingu hjá fyrirtækjum þar sem áður voru ríkjandistórtölvur og meðalstórarbókhaldsvélar. IBM PC varð þannig þekktasta vörumerki tölva af þessari stærð allan9. áratug20. aldar. Það að tölvan var að mestu gerð úr íhlutum frá öðrum framleiðendum en IBM og meðgrunnstýringarkerfi sem hægt var að endurskapa með löglegum hætti, gerði það að verkum að aðrir framleiðendur gátu framleitt tölvur sem nýttu sér samahugbúnað og IBM-tölvan. Þessar tölvur, sem voru kallaðar IBM PC-samhæfðar tölvur eða PC-klónar, náðu líka talsverðum vinsældum á heimilistölvumarkaðnum.
Arftakar hins upphaflega IBM PC voruIBM Personal Computer XT, eða 5160, sem kom út 1983, og öflugriIBM Personal Computer/AT sem kom út 1984 með nýjan örgjörva;Intel 80286. Að auki byggði IBM á þessari vinnu meðIBM Portable 1984, sem var í grundvallaratriðum XT-tölva í töskukassa, ogIBM PC Convertible, fyrstukjöltutölvu fyrirtækisins sem gekk samt illa í sölu. Báðar þessar tölvur notuðust við Intel 8088-örgjörvann. Enn ein PC-tölvan,IBM PCjr, sem ætluð varskólum og kom út 1984, seldist líka illa.