Helstu útflutningsvörur Hvíta-Rússlands eru unnarolíuafurðir,áburður oglandbúnaðarvélar. Atvinnulíf er miðstýrt og að stórum hluta í ríkiseigu. Stærstur hluti íbúa býr í borgum landsins. Um 60% aðhyllast einhvers konar trúarbrögð, aðallegarússneskan rétttrúnað, en lítill hluti aðhyllistrómversk-kaþólska trú. Yfir 70% íbúa talarússnesku sem er annað opinbert tungumál landsins en aðeins rúm 10% talahvítrússnesku.
Hvíta-Rússland liggur á milli 51. og 57. gráðu norður og 23. og 33. gráðu austur. Landið er 560 km langt frá norðri til suðurs og 650 km frá austri til vesturs. Hvíta-Rússland erlandlukt land, tiltölulega flatlent með stórummýrum. Um 40% landsins eru þakin skógi.
Um 11.000 stöðuvötn og mikill fjöldi áa eru í landinu. Helstu fljót sem renna um Hvíta-Rússland eruNemanfljót,Pripjatfljót ogDnjepr. Nemanfljót rennur út í Eystrasalt en Pripjatfljót rennur út í Dnjepr sem rennur út íSvartahaf.
HæðinDsjarsjinskaja Hara er hæsti punktur landsins. Hún er aðeins 345 metra yfir sjávarmáli. Lægsti punkturinn er í Nemanfljóti, 90 metra yfir sjávarmáli. Hvíta-Rússland er að meðaltali 160 metrar yfir sjávarmáli. Veðurfar er á mörkumúthafsloftslags ogmeginlandsloftslags. Vetur eru kaldir eða svalir þar sem lægsti hiti í janúar er milli - 4° og -8°. Sumrin eru svöl og rök með um 18° meðalhita. Meðalársúrkoma er milli 550 og 700 mm.
Náttúruauðlindir í Hvíta-Rússlandi eru meðal annarsmór, lítið eitt af náttúrulegum gas- og olíulindum,mergill,kalksteinn, sandur, grús og leir. Um 70% af geisluninni úrTsjernobylslysinu lenti á Hvíta-Rússlandi og um fimmtungur landbúnaðarlands varð fyrir geislun.Sameinuðu þjóðirnar og fleiri aðilar hafa unnið að því að draga úr geislavirkni á þessum svæðum, meðal annars með notkunsesíns og ræktunrepju.
Hvíta-Rússland á landamæri að fimm löndum:Lettlandi í norðri,Litáen í norðvestri,Póllandi í vestri,Rússlandi í norðri og austri ogÚkraínu í suðri. Landamærin að Lettlandi og Litáen voru ákveðin með samningum 1995 og 1996 og landamærin að Úkraínu voru staðfest af þingi Hvíta-Rússlands árið 2009. Lokaafmörkun landamæra Hvíta-Rússlands og Litáen var ákveðin árið 2007.
Hvíta-Rússland býr viðforsetaræði þar semforseti Hvíta-Rússlands er bæðiþjóðhöfðingi ogstjórnarleiðtogi. Löggjafinn erÞjóðþing Hvíta-Rússlands. Forsetinn er kjörinn til fimm ára í senn. Í stjórnarskránni frá 1994 mátti forsetinn aðeins sitja í tvö kjörtímabil, en þær takmarkanir voru afnumdar með stjórnarskrárbreytingu árið 2004.Alexander Lúkasjenkó hefur verið forseti landsins frá 1994. Árið 1996 boðaði hann umdeilda atkvæðagreiðslu um breytingar á kjörtímabili forseta. Kosningunum, sem áttu að fara fram árið 1999, var frestað til 2001. Yfirmaður kjörstjórnar,Viktar Hantsjar, lýsti kosningunum sem „stórkostlegri fölsun“. Honum var vikið úr embætti meðan á kosningabaráttunni stóð.
Þing Hvíta-Rússlands situr í tveimur deildum. Í fulltrúadeild eiga 110 þingmenn sæti og í lýðveldisráðinu sitja 64 þingmenn. Fulltrúadeildin skipar forsætisráðherra og getur lýst vantrausti á hann. Hún getur gert breytingar á stjórnarskránni og komið með tillögur varðandi stefnu stjórnarinnar í utanríkis- og innanríkismálum. Lýðræðisráðið skipar ýmsa embættismenn, getur lýst vantrausti á forsetann og hafnað eða samþykkt lög frá fulltrúadeildinni. Hvor deildin getur synjað lögum staðfestingar frá embættismönnum ef þau eru í andstöðu við stjórnarskrá.
Ríkisstjórnin er stjórnarráð ráðherra, undir forsæti forsætisráðherra, og fimm vararáðherrar. Ráðherrar eru skipaðir af forseta og eru ekki endilega þingmenn jafnhliða. Dómsvaldið er í höndumhæstaréttar og sérhæfðra dómstóla, eins og stjórnskipunarréttar sem fæst við túlkun stjórnarskrár og viðskiptalaga. Forseti skipar dómarana sem samþykktir eru af lýðveldisráðinu. Æðsta áfrýjunarstig í sakamálum er hæstiréttur. Stjórnarskráin bannar sérhæfða dómstóla utan dómskerfisins.
Í forsetakosningunum 2020 vann Lúkasjenkó enn einu sinni sigur. Kosningarnar voru ekki taldar frjálsar eða lýðræðislegar. Stórfelld mótmæli voru bæld niður og mannréttinda og félagasamtök voru lögð niður eða hættu af ótta við ofsóknir.[3]. ForsetaframbjóðandinnSvetlana Tsíkhanovskaja flúði land. Evrópusambandið, Bretland, Bandaríkin og Kanada hafa sett viðskiptahömlur á landið af þeim sökum og hafa hert þær enn frekar vegna stuðnings stjórnvalda Belarús viðinnrás Rússlands í Úkraínu 2022.
Hvítrússneskir landamæraverðir við landamærin að Póllandi.
Her Hvíta-Rússlands er undir stjórn varnarmálaráðherra,Andrei Ravkov, og Lúkasjenkós sem er yfirmaður heraflans. Herinn var stofnaður árið 1992 og tók yfir hluta af búnaði og sveitumSovéthersins í landinu. Breytingin frá Sovéthernum að her Hvíta-Rússlands fól í sér breytingar á skipuriti hersins sem var lokið 1997. Fjöldi hermanna var minnkaður í 30.000.
Í Hvíta-Rússlandi erherskylda í 12 mánuði fyrir menntaða einstaklinga en 18 mánuði fyrir ómenntaða. Vegna fækkunar Hvít-Rússa á herskyldualdri hefur herinn neyðst til að auka fjölda atvinnuhermanna sem voru um 12.000 árið 2001. Árið 2004 varði Hvíta-Rússland 1,4% af vergri landsframleiðslu til hermála.
Hvíta-Rússland hefur ekki lýst yfir vilja til að ganga íNATO, en hefur átt í samstarfi við NATO-ríkin frá 1995. Landið hefur veitt þjónustu við millilendingar flugvélaAlþjóðaliðsins íAfganistan. Hvíta-Rússland er aðili að hernaðarbandalagi sex fyrrum Sovétríkja,Sameiginlegu öryggissáttmálastofnuninni.
Hvíta-Rússland skiptist í sexhéruð (вобласць) sem heita eftir höfuðstöðum sínum. Í hverju héraði er kjörið héraðsráð sem fer með löggjafarvald, og héraðsstjórn sem fer með framkvæmdavald. Formaður héraðsstjórnarinnar er skipaður af forseta landsins. Héruðin skiptast síðan í umdæmi (раён) sem árið 2002 voru 118 talsins, auk 102 bæja og 108 þéttbýlissvæða. Höfuðborgin Minsk skiptist í níu umdæmi og nýtur sérstakrar stöðu.