Movatterモバイル変換


[0]ホーム

URL:


Fara í innihald
WikipediaFrjálsa alfræðiritið
Leit

Hryðjuverkin í Noregi 2011

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Miðborg Ósló eftir sprenginguna.

Hryðjuverkin í Noregi 2011 áttu sér stað22. júlí þegarsprengja sprakk í miðborgÓsló í grennd við húsasamstæðu sem hýsirnorskráðuneyti.[1] Skömmu síðar hóf maður skotárás á sumardvalarstað ungliðahreyfingarnorska Verkamannaflokksins áÚtey (n.Utøya) í sveitarfélaginuHole íBuskerud.[2]

Bakgrunnur

[breyta |breyta frumkóða]

Skömmu áður en hann framkvæmdi árásirnar hafði Breivik dreift ítarlegri skýrslu sem kölluð var í fjölmiðlunum „Stefnuyfirlýsing Breiviks“. Í henni skrifaði hann margt um samfélagsskipulagsleg sjónarmið sín og skoðanir áVestur-Evrópu. Grundvöllur ritsins og helsta tilefni árásanna varmúslimahatur.[3]

Árásirnar

[breyta |breyta frumkóða]

Fjöldamorðið í Útey

[breyta |breyta frumkóða]

Skömmu eftir sprenginguna hóf maður dulbúinn sem lögregluþjónn skotárás á eyjunniÚtey íBuskerud. Alls létust 77 manns, 69 í Útey og 8 í sprengingunni í Osló.[4] Talið er að allt að 700 manns hafi verið á eyjunni, en eyjan er í eigu ungaliðahreyfingarnorska Verkamannaflokksins.Jens Stoltenbergforsætisráðherra Noregs hafði áætlað að heimsækja eyjuna daginn eftir að skotárásin átti sér stað.[4] Lögreglan handtók mann að nafniAnders Behring Breivik, sem talið er að hafi komið að bæði skotárásinni og sprengingunni. Hann er talinn kristilegur öfgahægrimaður. Ekki er vitað til þess að Breivik hafi unnið voðaverk sín í samvinnu við nein skipulögð samtök. Hann játaði fjöldamorðin.

Tilvísanir

[breyta |breyta frumkóða]
  1. „Mannfall í hryðjuverkum í Ósló“. Sótt 22. júlí 2011.
  2. „Skotárás hjá ungliðahreyfingu“. Sótt 22. júlí 2011.
  3. Sjá t.d.Mattias Gardell, „Crusader Dreams: Oslo 22/7, Islamophobia, and the Quest for a Monocultural Europe“ í tímaritinuTerrorism and Political Violence, 26. bindi, 1. hefti, 2014.
  4. 12„Vísir - Allt að 30 myrtir í Útey“. Sótt 22. júlí 2011.
  Þessi grein erstubbur. Þú getur hjálpað til með því aðbæta við greinina.
Sótt frá „https://is.wikipedia.org/w/index.php?title=Hryðjuverkin_í_Noregi_2011&oldid=1876027
Flokkar:
Falinn flokkur:

[8]ページ先頭

©2009-2026 Movatter.jp