Movatterモバイル変換


[0]ホーム

URL:


Fara í innihald
WikipediaFrjálsa alfræðiritið
Leit

Hraðvagn

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Hraðvagnar fráTransJakarta íJakarta á Indónesíu.

Hraðvagn eralmenningsvagn sem hefur auknaflutningsgetu ogáreiðanleika miðað við hefðbundinn almenningsvagn. Til að ná slíku fram er notast viðliðvagna sem aka ásérakreinum, fá forgang ágatnamótum, notast við upphækkaðarbiðstöðvar þar sem gengið er beint inn í vagninn, og selja ekki aðgöngumiða í vagninum til að draga úr töfum. Önnur hönnunaratriði sem eru gjarnan viðhöfð eru gæðabiðstöðvar með rennihurðum og rafrænum upplýsingaskiltum, afkastamiklir vagnar sem eru færir um mýkri akstur og fáar vel kynntar leiðir. Með rafknúnum vögnum sem ganga á gúmmíhjólum í stað hefðbundinna dekkja verður upplifunin enn nær léttlestum. Markmiðið er að ná hluta af kostumneðanjarðarlesta eðaléttlesta með mun minni kostnaði.

Fyrsta hraðvagnakerfið varRede Integrada de Transporte íCuritiba í Brasilíu sem hóf starfsemi árið 1974. Í nóvember 2016 höfðu 207 borgir tekið upp hraðvagnakerfi, flestar íSuður-Ameríku. Lengsta hraðvagnakerfi heims erTransJakarta í Indónesíu sem er samtals 210 km að lengd.

Í umræðum um fyrirhugaðaBorgarlínu áHöfuðborgarsvæðinu hafa kostir hraðvagnakerfis verið bornir saman við kosti léttlestarkerfis.

  Þessi grein erstubbur. Þú getur hjálpað til með því aðbæta við greinina.
Sótt frá „https://is.wikipedia.org/w/index.php?title=Hraðvagn&oldid=1594787
Flokkur:
Falinn flokkur:

[8]ページ先頭

©2009-2025 Movatter.jp