Movatterモバイル変換


[0]ホーム

URL:


Fara í innihald
WikipediaFrjálsa alfræðiritið
Leit

Hnúðlaukur

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Hnúðlaukur

Vísindaleg flokkun
Ríki:Jurtaríki (Plantae)
Fylking:Dulfrævingar (Angiosperms)
Flokkur:Einkímblöðungur (Monocots)
Ættbálkur:Laukabálkur (Asparagales)
Ætt:Laukætt (Alliaceae)
Ættkvísl:Laukar (Allium)
Tegund:
A. tuberosum

Tvínefni
Allium tuberosum
Rottler exSpreng. 1825 not Roxb. 1832[1][2]
Samheiti
Samnefni
  • Allium angulosumLour. 1790, illegitimate homonym not L. 1753
  • Allium argyiH.Lév.
  • Allium chinenseMaxim 1859, illegitimate homonym not G.Don 1827
  • Allium clarkeiHook.f.
  • Allium roxburghiiKunth
  • Allium sulviaBuch.-Ham. ex D.Don
  • Allium tricoccumauct. non Blanco
  • Allium tuberosumRoxb. 1832, illegitimate homonym not Rottler ex Spreng. 1825
  • Allium tuberosum f.yezoense(Nakai)M.Hiroe
  • Allium uliginosumG.Don
  • Allium yesoenseNakai
  • Allium yezoenseNakai
  • Nothoscordum sulvia(Buch.-Ham. ex D.Don) Kunth

Allium tuberosum er tegund af laukætt ættuð frá suðvesturhlutaShanxi íKína, og ræktuð víða annarsstaðar í Asíu og annarsstaðar í heiminum.[3][4]

Lýsing

[breyta |breyta frumkóða]

Allium tuberosum er fjölær jurt sem vex upp af smáum aflöngum lauk (um 10 mm í þvermál), seigur og trefjóttur, upp af kröftugum jarðstöngli. Blöðin eru bandlaga, 1,5 til 8 mm breið, ólíkt bæðimatlauk oghvítlauk. Blómstöngullinn er 25 til 60 sm langur og er blómskipunin kúlulaga, með hvítum blómum.[3] Hann vex í hægt stækkandi breiðum, en sáir sér einnig auðveldlega. Á hlýrri svæðum (USDA zone 8 og hlýrri), getur hann verið sígrænn.[5]

Bragðið líkist meirhvítlauk engraslauk.

Flokkun

[breyta |breyta frumkóða]

Upphaflega lýst afJohan Peter Rottler, var tegundinn löglega lýst afCurt Polycarp Joachim Sprengel 1825.A. tuberosum er flokkuð innanAllium íundirættkvíslButomissa(Salisb.) N. Friesen, deildButomissa(Salisb.) Kamelin, hóp sem samanstendur einvörðungu afA. tuberosum ogA. ramosumL..

Útbreiðsla og búsvæði

[breyta |breyta frumkóða]

A. tuberosum kom fram á Síberísku-Mongólsku-Norður Kínverskuseppunum,en er víða ræktuð og orðin ílend, Hún hefur verið skráð á dreifðum svæðum í Bandaríkjunum (Illinois,Michigan,Ohio,Nebraska,Alabama,Iowa,Arkansas,Nebraska, ogWisconsin).[6] Hinsvegar er hún talin algengari í Bandaríkjunum vegna aðgengis að fræi og plöntum sem framandi kryddjurt og þess hve ágeng hún er. Tegundin er einnig útbreidd um meginland Evrópu of ágeng annarsstaðar.

Ræktun

[breyta |breyta frumkóða]

Oft ræktuð sem skrautplanta og er fjöldi ræktunarafbrigða.A. tuberosum sker sig úr frá mörgum öðrum lauktegundum vegna seinnar blómgunar. Hún er talin auðveld í ræktun, ýmist af fræi eðaf með skiftingu á hnausunum.[7]

Ýmis afbrigði hafa verið ræktuð fyrir blöð (t.d. 'Shiva') eða blómstöngul (t.d. 'Nien Hua').[8] Á meðan áherslan í Asíu hefur verið á matareiginleika, hefur áhuginn í Norður Ameríku aðallega verið á skrautgildi. 'Monstrosum' er stórt skrautafbrigði.


Myndir

[breyta |breyta frumkóða]
  • ræktun til matar
    ræktun til matar
  • Tilbúið í rétt
    Tilbúið í rétt
  • Blómskipun
    Blómskipun
  • stök blóm
    stök blóm
  • fræ
    fræ

Tilvísanir

[breyta |breyta frumkóða]
  1. WCSPF 2015.
  2. Linnaeus 1825.
  3. 12Xu, Jiemei; Kamelin, Rudolf V.Allium tuberosum.Flora of China. 24. bindi gegnum eFloras.org,Missouri Botanical Garden, St. Louis, MO &Harvard University Herbaria, Cambridge, MA.
  4. Allium tuberosum.Germplasm Resources Information Network (GRIN).Agricultural Research Service (ARS),United States Department of Agriculture (USDA).
  5. Soule, J.A. (2016).Month by Month Guide to Gardening in the Southwest. Cool Springs Press.
  6. Snið:BONAP
  7. http://eol.org/pages/1085072/overview
  8. Larkcom& Douglass 2008,p. 80.

Heimildir

[breyta |breyta frumkóða]

Bækur og greinar

[breyta |breyta frumkóða]

Greinar og kaflar

[breyta |breyta frumkóða]
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengistHnúðlaukur.
Wikilífverur eru með efni sem tengistAllium tuberosum.
Sótt frá „https://is.wikipedia.org/w/index.php?title=Hnúðlaukur&oldid=1866481
Flokkar:

[8]ページ先頭

©2009-2025 Movatter.jp