Movatterモバイル変換


[0]ホーム

URL:


Fara í innihald
WikipediaFrjálsa alfræðiritið
Leit

Hinir postullegu feður

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Hinir postullegu feðurHinir postullegu kennifeður eðaPostullegir feður (latína:patres apostolici) – er hugtak sem notað er um nokkrakristna rithöfunda frá tímabilinu um90 til150 e.Kr. Þeir eru taldir hafa staðið nærri stofnendum hinna fyrstu kristnu safnaða. — (Dæmi eru um að talað sé umpostulafeður, sem getur verið villandi hugtak).

Að frátöldum ritumNýja testamentisins, eru bréf postullegu feðranna elstu heimildir um hina fornu kristnu söfnuði. Þeim má ekki rugla saman við ritBiblíunnar (Nýja testamentisins) og ekki heldurApókrýf rit Nýja testamentisins.

Heitiðhinir postullegu feður kom upp skömmu fyrir 1700 þegar ritin voru fyrst gefin út saman (1672), þó ánBréfs Díógnetusar ogDidache – hið síðarnefnda fannst fyrst 1873.

Í frumkristninni er talað umpostulatímabilið, sem nær fram til um 90 e. Kr. Síðan tekur við tímabil postullegu feðranna, 90–150 e.Kr., og þar á eftir tímabilkirkjufeðranna (patres ecclesiastici). Postullegu feðurnir voru lærisveinar postula Krists og héldu starfi þeirra áfram við að útbreiða kristindóminn, og einkennast rit þeirra af barnslegri trú. Á tímabili kirkjufeðranna tók hins vegar við umfangsmikilguðfræðileg ogheimspekileg rökræða og fræðilegar deilur.

Listi yfir ritin

[breyta |breyta frumkóða]

Fjölmörg rit hafa verið eignuð kennifeðrunum, en samkomulag er um þessi – (skammstafanir í sviga):

Heimildir

[breyta |breyta frumkóða]

Tenglar

[breyta |breyta frumkóða]
Sótt frá „https://is.wikipedia.org/w/index.php?title=Hinir_postullegu_feður&oldid=1795815
Flokkar:

[8]ページ先頭

©2009-2026 Movatter.jp