Dómkirkjan í Hereford í bakgrunni, með brú yfirWye-á í forgrunni.
Hereford er borg og sókn íHerefordshire íEnglandi. Borgin liggur við ánaWye, um það bil 26 km austan við landamæriWales, 24 km suðvestan viðWorcester og 37 km norðvestan viðGloucester. Íbúar Hereford voru 58.896 árið 2016 og er borgin því stærsta þéttbýlið í Herefordshire.
NafniðHereford mætti snara yfir á íslensku sem „Hervað“; það er að segja staður þar sem hermenn fóru yfir ána Wye. Ávelsku heitir borginHenffordd, sem þýðir „gamli vegurinn“. Velska heitið er líklega tilvísun í fornarómverska byggð sem lá í nágrenninu. Sögulega var stór hluti Herefordshire-búa velskumælandi, sem lýsir sér vel í mörgum velskum örheitum á svæðinu.
Ríkharður 1. Englandskonungur fellst á stofnskrá fyrir Hereford árið 1189. Í henni er borginni lýst sem „Hereford í Wales“. Þó Hereford sé ævaforn borg var hún ekki opinberlega viðurkennd sem slík fyrir árið október 2000.