Movatterモバイル変換


[0]ホーム

URL:


Fara í innihald
WikipediaFrjálsa alfræðiritið
Leit

Helmut Schmidt

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Helmut Schmidt
Kanslari Vestur-Þýskalands
Í embætti
16. maí1974 1. október1982
ForsetiGustav Heinemann
Walter Scheel
Karl Carstens
ForveriWilly Brandt
EftirmaðurHelmut Kohl
Persónulegar upplýsingar
Fæddur23. desember1918
Hamborg,Weimar-lýðveldinu
Látinn10. nóvember2015 (96 ára)Hamborg,Þýskalandi
ÞjóðerniÞýskur
StjórnmálaflokkurJafnaðarmannaflokkurinn
MakiLoki Glaser (1942–2010)
BörnHelmut Walter, Susanne
HáskóliHamborgarháskóli
Undirskrift

Helmut Schmidt (Helmut Heinrich Waldemar) (23. desember1918 íHamborg10. nóvember2015 íHamborg) var þýskur stjórnmálamaður og fyrrum kanslariVestur-Þýskalands. Hann var einnig varnarmálaráðherra, fjármálaráðherra og utanríkisráðherra á sinni tíð. Schmidt tilheyrði sósíaldemókrataflokki ÞýskalandsSPD (Sozialdemokratische Partei Deutschlands).

Æviágrip

[breyta |breyta frumkóða]

Helmut Schmidt fæddist í 1918 í Hamborg og var afgyðingaættum. Faðir hans, Gustav, var sonur verslunarmanns sem var gyðingur. Bæði Gustav og Helmut fölsuðu ættarbók sína til að sanna að þeir væru „hreinræktaðir“ aríar. Schmidt var aðeins 15 ára þegar nasistar komust til valda íÞýskalandi. Schmidt sjálfur ljóstraði ekki upp um fölsunina fyrr en1984, tveimur árum eftir að hann lét af embætti sem kanslari. Hann var tekinn í herinn1939 og þjónaði á austurvígstöðvunum. Þar tók hann þátt í umsátrinu umLeningrad. Við stríðslok var Schmidt kominn á vesturvígstöðvarnar. Þar var hann yfirmaður og sem slíkur handtekinn afBretum og settur í fangabúðir íBelgíu. Eftir stríð nam hannhagfræði í háskólanum í Hamborg og útskrifaðist1949. Samfara því gekk Schmidt í sósíaldemókrataflokk Þýskalands.1953 var hann kosinn á þing í fyrsta sinn og starfaði sem þingmaður fyrir sambandslandið Hamborg til ársins1962.

1961 varð Helmut Schmidt lögreglumálaráðherra í sambandslandinu Hamborg (embættið breyttist í innanríkisráðherra ári síðar). Sem slíkur var hann framkvæmdaraðili í stormflóðinu mikla sem skall á Hamborg ífebrúar 1962. Í því þótti hann standa sig með prýði, enda samhæfði hann björgunaraðgerðir með mikilli röggsemi. Í aðgerðunum notaði hann ekki eingöngu björgunarsveitir, heldur einnig herinn ásamt hinum ýmsum hjálpartækjum. Schmidt stjórnaði þannig fyrstu stóraðgerðum í náttúruhamförum í Þýskalandi og gat sér frægðar fyrir mikla röggsemi og útsjónarsemi.1965 var Schmidt kjörin til þings á nýjan leik og varð þá þingflokksformaður SPD til1969.

Willy Brandt og Helmut Schmidt á flokksþingi SPD 1973

Eftir kosningasigur SPD 1969 varðWilly Brandt kanslari Vestur-Þýskalands. Helmut Schmidt varð þá að varnarmálaráðherra. Í hans tíð stytti hann herskylduna úr 18 mánuðum í 15 mánuði. Auk þess stofnaði hann herháskóla í Hamborg og íMünchen.1972 tók hann við embætti fjármálaráðherra og gegndi því til1974.

Helmut Schmidt ogErich Honecker leiðtogi Austur-Þýskalands á fundi 1981

1974 sagði Willy Brandt af sér sem kanslari. Þingið kaus þá Helmut Schmidt nýjan kanslara þ.16. maí sama ár. Hann varð því fimmti kanslari Vestur-Þýskalands. Fyrsta erfiða málið sem hann þurfti að glíma við var olíukrísan. Í Evrópumálum átti starfaði hann náið saman meðFrakklandsforsetaValéry Giscard d'Estaing, en þeir áttu mikinn þátt í stofnun evrópska myntbandalagsins. Árangurinn af því var seinna meirEvran. Schmidt og Giscard d’Estaing áttu einnig mestan heiður af stofnunG7-hópsins, þ.e. samstarf sjö helstu iðnríkja heims. Schmidt var einn ötullasti vestræni leiðtoginn sem benti á mögulega hættu íEvrópu af vopnatilburðumSovétríkjanna. Því samþykkti hann að leyfaBandaríkjamönnum að staðsetja meðaldrægar eldflaugar í Evrópu. Sú ákvörðun var mjög umdeild, einnig innan eigin flokks. Að lokum varð þetta mál til þess að SPD klofnaði og stofnuðu þeir sem frá hurfugræningjaflokkinn í Þýskalandi. Samþykki um að fjarlægja allar meðaldrægar eldflaugar var ekki undirritað fyrr en íReykjavík1987. En einnig í efnahagsmálum kom Schmidt sér í vandræði. Síðsumars1982 sögðu allir ráðherrar samstarfsflokksins í ríkisstjórn, flokks frjálslyndra demókrataFDP, af sér og var Schmidt þá allt í einu kanslari í minnihlutastjórn. Hann tók því að sér utanríkisráðuneytið samfara kanslaraembættinu. En allt kom fyrir ekki.1. október 1982 var vantrauststillaga á hendur honum samþykkt í þinginu og þar með lauk kanslaraferli Helmut Schmidts. Nýr kanslari varðHelmut Kohl. Schmidt varð síðan einn útgefanda tímaritsinsDie Zeit.

Fjölskylda

[breyta |breyta frumkóða]

Helmut Schmidt kvæntist Hannelore Glaser (oftast kölluð Loki)27. júní1942 meðan hann var enn í hernum. Þeim fæddust tvö börn. Helmut Walter (f.1944) fæddist fatlaður og lést1945. Susanne (f.1947) starfar fyrir sjónvarpsstöðina Bloomberg TV íLondon.

Eitt og annað

[breyta |breyta frumkóða]
Schmidt og Giscard d’Estaing Frakklandsforseti voru góðir vinir
  • Helmut Schmidt var stórreykingamaður og alræmdur sem slíkur. Honum leyfðist þó alltaf að reykja á opinberum stöðum, jafnvel þar sem reykingabann er í gildi. Meira að setja í sjónvarpi og viðtölum var hann þekktur fyrir að kveikja í sígarettu og reykja. Eingöngu í þingsal þýska þingsins (Bundestag) hélt hann aftur af sér og notaði neftóbak í staðinn. Skoðun hans á almennu reykingabanni á opinberum stöðum var sú að þetta væri aðeins tímabundin loftbóla (vorübergehende gesellschaftliche Erscheinung).
  • Helmuth Schmidt var góðvinurValérys Giscard d’Estaing ogHenrys Kissingers. Kissinger sagði eitt sinn að hann vonaðist til að deyja á undan Schmidt, því hann gæti ekki hugsað sér að lifa í heimi án hans.
  • Schmidt þótti góður tónlistarmaður og spilaði vel áorgel ogpíanó.
  • 1983 var Helmut Schmidt gerður að heiðursborgara heimaborgar sinnar Hamborg.

Heimildir

[breyta |breyta frumkóða]


Fyrirrennari:
Willy Brandt
Kanslari Vestur-Þýskalands
(1974 – 1982)
Eftirmaður:
Helmut Kohl


Norður-þýska ríkjasambandiðÞýski fáninn
(1867–1871)
Þýska keisaradæmiðÞýski fáninn
(1871–1918)
Weimar-lýðveldiðÞýski fáninn
(1919–1933)
Þýskaland nasismansÞýski fáninn
(1933–1945)
Sambandslýðveldið ÞýskalandÞýski fáninn
(1949–)
¹Sem „stjórnarforseti“ (Ministerpräsident) ²Sem „stjórnarráðherra“ (Leitender Minister)
Sótt frá „https://is.wikipedia.org/w/index.php?title=Helmut_Schmidt&oldid=1945716
Flokkar:

[8]ページ先頭

©2009-2026 Movatter.jp