Movatterモバイル変換


[0]ホーム

URL:


Fara í innihald
WikipediaFrjálsa alfræðiritið
Leit

Heimsveldi

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Árið1920 varBreska heimsveldið stærsta heimsveldi allra tíma

Heimsveldi á upphaflega við voldugt ríki eða hópríkja ogþjóða sem nær yfir stórt landfræðilegt svæði og er stýrt af einumþjóðhöfðingja (til dæmiskonungi eðakeisara) eðafámennisstjórn. Heimsveldi þróast oft út frá einu landi þar semhöfuðborgin er. Í tímans rás fá lönd og landsvæði sem heyra til heimsveldinu oft mismunandi stöðu, til dæmis hafa sum ríki fengiðheimastjórn frá stjórnarlandi sínu. Sú stefna ríkis að byggja upp heimsveldi kallastheimsvaldastefna.

Heimsins stærstu heimsveldi urðu til ánýlendutímabilinu frá15. til19. aldar, þar má nefnaBreska heimsveldið sem dæmi. Heimsveldi ogkeisaradæmi voru líka til að fornu og ámiðöldum, til dæmisRómaveldið,Austrómverska keisaradæmið,Heilaga rómverska ríkið,Austurríki-Ungverjaland,Tyrkjaveldið ogRússland.

Á 20. öld töldustBandaríkin ogSovétríkin til heimsvelda og eftir að Sovétríkin liðu undir lok hefurKína stundum verið kallað heimsveldi. Þessi heimsveldi eru þó fyrst og fremst efnahagsleg en ekki landfræðileg. Einnig hafa sumir haldið því fram aðEvrópusambandið reki heimsvaldastefnu. Alþjóðleg stórfyrirtæki hafa líka stundum verið kölluð heimsveldi.

Heimild

[breyta |breyta frumkóða]
  Þessi stjórnmálagrein erstubbur. Þú getur hjálpað til með því aðbæta við greinina.
Sótt frá „https://is.wikipedia.org/w/index.php?title=Heimsveldi&oldid=1392606
Flokkar:
Falinn flokkur:

[8]ページ先頭

©2009-2025 Movatter.jp