Heilsa er samkvæmt skilgreininguAlþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar ekki einungis fólgin í að verasjúkdómalaus heldur í almennrivelferð einstaklings, bæði líkamlegri, andlegri og félagslegri.[1] Í gegnum tíðina hefur heilsa verið skilgreind á ýmsa vegu í ýmsum tilgangi. Hægt er að efla heilsuna með því að leggja stund á heilsusamlegar athafnir, eins og að stunda reglulegalíkamsrækt og fá nægansvefn.[2] Á sama hátt er hægt að forðast óhollar venjur eða aðstæður, eins ogreykingar ogstreitu. Sumir þættir sem hafa áhrif á heilsuna stafa afvali einstaklinga, meðan aðrir þættir tengjastfélagsgerð, eins og því hvort samfélög séu byggð upp þannig að fólk eigi auðvelt með að sækja sérheilbrigðisþjónustu. Aðrir heilsutengdir þættir, eins ogerfðaraskanir, standa utan við atbeina einstaklinga og samfélaga.