Harry Mason Reid (2. desember 1939 – 28. desember 2021) var bandarískur stjórnmálamaður, þingflokksformaðurDemókrataflokksins áÖldungadeild Bandaríkjaþings og annar tveggja fulltrúaNevada í öldungadeildinni (1987-2017). Íkosningunum 2010 sigraði ReidSharron Angle, frambjóðandaTeboðshreyfingarinnar.
Reid, sem er lögfræðingur að mennt, hóf feril sinn í stjórnmálum árið 1968 þegar hann náði kjöri til ríkisþings Nevada þar sem hann sat árin 1969 og 1970. Það ár náði Reid kjöri semVararíkisstjóri Nevada (e: Liutenant Governor), en Reid gegndi því embætti til 1974 þegar hann bauð sig fram til öldungadeildarinnar fyrir Nevada. Reid tapaði í þeirri kosningu. Árið 1975 bauð Reid sig fram sem borgarstjóriLas Vegas en tapaði þeirri kosningu sömu leiðis. Árið 1982 nái Reid hins vegar kjöri semþingmaður fyrir 1. kjördæmi Nevada sem nær yfir Las Vegas og nærsveitir. Reid var endurkjörinn árið 1984. Í kosningunum 1986 náði Reid kjöri sem öldungadeildarþingmaður Nevada.
Á tíunda áratugnum reis Reid til áhrifa innan flokksins og árið 1999 var hann valinn „Svipa“ Demókrataflokksins í Öldungadeildinni. Reid gegndi því embætti árin 1999-2005. Árið 2005 var Reid kjörinn þingflokksformaður demókrata í Öldungadeild Bandaríkjanna og eftir að flokkurinn náði meirihluta í Öldungadeildinni íkosningunum 2006 varð hann sjálfkrafa leiðtogi meirihlutans.
Reid tilkynnti árið 2016 að hann hygðist hætta í stjórnmálum eftir að hann hafði blindast á öðru auga vegna slyss. Hann lést í desember 2021 úr briskrabbameini.[1]
- ↑Atli Ísleifsson (29. desember 2021).„Fyrrverandi forseti öldungadeildar Bandaríkjaþings látinn“.Vísir. Sótt 29. desember 2021.