Movatterモバイル変換


[0]ホーム

URL:


Fara í innihald
WikipediaFrjálsa alfræðiritið
Leit

Hanveldið

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Kort sem sýnir útbreiðslu Hanveldisins 87 f.Kr.

Hanveldið (hefðbundin kínverska: 漢朝;einfölduð kínverska: 汉朝;pinyin: Hàn Cháo;Wade-Giles: Han Ch'ao;206 f.Kr. -220 e.Kr.) varkeisaraveldi sem fylgdi á eftirKinveldinu og kom á undanKonungsríkjunum þremur íKína. Hanveldið varættarveldi stofnað afLiu Bang af hinni valdamikluLiu-ætt. Til þessa dags talar meirihluti Kínverja um sig semHan-kínverja.

Á tímum Hanveldisins varð Kínakonfúsískt ríki oglandbúnaður,verslun ogiðnaður blómstraði. Íbúafjöldi ríkisins náði yfir 55 milljónir. Um leið náðu áhrif ríkisins tilKóreu,Mongólíu,Víetnam,Japans ogMið-Asíu. Á tímum Hanveldisins varðSilkivegurinn til þar sem kínversktsilki var flutt vestur á bóginn.

Tímabil Hanveldisins skiptist í tvennt: Fyrra Hanveldið eða Vestur-Hanveldið með höfuðborg íChang'an (204 f.Kr. -24 e.Kr.) og Síðara Hanveldið eða Austur-Hanveldið með höfuðborg íLuoyang (25 -220 e.Kr.).

Hrun Hanveldisins stafaði af ýmsum þáttum, ekki síst slæmum aðbúnaðibænda og miklum völdum landeigenda, ásamt útbreiðslutaóisma sem boðaðijafnrétti. Á endanum hrundi miðstjórnin og einstakirstríðsherrar tóku völdin í sínar hendur. Eftir220 söfnuðust völdin á þrjú konungsríkiCao Wei,Shu Han ogSun Wu.

Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengistHanveldinu.
  Þessisögugrein erstubbur. Þú getur hjálpað til með því aðbæta við greinina.
Sótt frá „https://is.wikipedia.org/w/index.php?title=Hanveldið&oldid=1571110
Flokkar:
Falinn flokkur:

[8]ページ先頭

©2009-2026 Movatter.jp