Flæði hafstrauma er táknað með einingunniSverdrup (Sv) og er ein slík eining jafnt og 1 milljón rúmmetrar á sekúndu. Samanlagt rennsli til sjávar úr öllum ám og fljótum jarðar er rúmlega 1 Sv.Golfstraumurinn er meira en 100 Sv þegar hann er sterkastur en sú grein hans sem nefnd erIrmingerstraumurinn og flæðir í norðurátt vestanÍslands og inn á norðurmið er aðeins um 1 Sv.
Loft- og hafstraumar vinna saman að því að dreifa þeirrisólarorku sem jörðinni berst um yfirborð hennar. Vindarnir toga í yfirborðssjó og koma af stað vindstraumum.Snúningur jarðar, dýpi og lögunsjávarbotnins hefur áhrif á stefnu straumanna og upphitun eða kæling á yfirborðssjó og seltubreytingar vegna uppgufunar eða úrkomu breytaeðlismassa sjávar og sú eðlismassadreifing kemur af stað straumum.
Djúpsjávarstraumur er hafstraumur á dýpi neðar en 100 m. Djúpstraumar í heimshöfunum sem eru fyrir neðan 1000 m eru knúðir í ferli sem nefnt erhita-seltuhringrás einkum á tveimur svæðum, viðSuðurskautslandið og íNorður-Atlantshafi þar sem saltur hlýsjór flæðir norður (Golfstraumurinn) og varmi berst frá honum til umhverfisins og kælir hann. Kælingin eykur eðlismassa sjávarins svo að hann sekkur að lokum og myndar djúpsjó, einkum íNorður-Grænlandshafi (milliJan Mayen ogSvalbarða) ogLabradorhafi (milliGrænlands ogLabrador). Til að djúpsjór myndist verður selta yfirborðssjávarins að haldast há. Kaldi djúpsjórinn flæðir suður á bóginn en við yfirborðið flyst hlýsjór norður í stað þess sem sökk. Djúpsjávarflæðið yfir hryggina milli Grænlands, Íslands,Færeyja ogSkotlands nemur samtals um 6 Sv.