Movatterモバイル変換


[0]ホーム

URL:


Fara í innihald
WikipediaFrjálsa alfræðiritið
Leit

Hænsnfuglar

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Hænsnfuglar
Villikalkúnn (Meleagris gallopavo)
Villikalkúnn (Meleagris gallopavo)
Vísindaleg flokkun
Ríki:Dýraríki (Animalia)
Fylking:Seildýr (Chordata)
Flokkur:Fuglar (Aves)
Ættbálkur:Galliformes
Temminck, 1820
Ættir

Hænsnfuglar (fræðiheiti:Galliformes) eruættbálkurfugla sem inniheldur meðal annarskalkúna,rjúpu ogfasana. Þetta eru allt tiltölulega þungir fuglar sem tína fræ og skordýr af jörðinni og eru því mikilvægir bæði sem frædreifarar og afræningjar. Margir af þessum fuglum eru veiðidýr semmenn veiða sér til matar.

Ættbálkurinn inniheldur um 290 tegundir sem lifa um allan heim nema áSuðurskautslandinu. Þær skiptast í fimm ættir:fashanaætt (meðal annars kalkúnar, nytjahænsn, akurhænur, fashanar og páfuglar),Odontophoridae (nýjaheimsakurhænur),perluhænsn,háleggjahænsn ogtrjáhænsn. Áður var þeim skipt í sjö ættir, en þrátt fyrir sérstætt útlit er ekki lengur talið að kalkúnar og orrar myndi sérstakar ættir vegna náins skyldleika þeirra við aðra fugla af fashanaætt.

Margir hænsnfuglar eru góðir hlauparar og forða sér frá rándýrum á fæti fremur en með því að fljúga. Karlfuglinn er litríkari en kvenfuglinn og tilhugalífið felur oft í sér skrautlegt sprang, fjaðrahristingar og hljóð. Flestir hænsnfuglar erustaðfuglar. Nokkrar tegundir hafa verið ræktaðar semhúsdýr.

  Þessifuglagrein erstubbur. Þú getur hjálpað til með því aðbæta við greinina.
Sótt frá „https://is.wikipedia.org/w/index.php?title=Hænsnfuglar&oldid=1768086
Flokkur:
Falinn flokkur:

[8]ページ先頭

©2009-2026 Movatter.jp