Movatterモバイル変換


[0]ホーム

URL:


Fara í innihald
WikipediaFrjálsa alfræðiritið
Leit

Gyðingdómur

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Davíðsstjarnan, trúartákn Gyðingdóms

Gyðingdómur ertrúarbrögðGyðinga (sem er þó hugtak sem nær yfir meira en einungis fylgjendur gyðingdóms). Þau erueingyðistrúarbrögð afabrahamískum stofni, eins ogkristni ogíslam, en Gyðingdómur er eitt elsta dæmið í sögunni umeingyðistrú og einnig eitt af elstu lifandi trúarbrögðum heims með yfir 4000 ára sögu.

Síðustu tvöþúsund árin hefur gyðingdómur ekki haft neina heildarstjórn eða sameiginlegar trúarreglur. Þrátt fyrir þetta hafa allar mismunandi flokkanir og hefðir gyðingdóms haft sameiginlega grundvallarsýn á meginatriði trúarinnar. Það fyrsta og mikilvægasta er trúin á einn almáttuganGuð sem skapaði alheim og heldur áfram að stjórna honum, öll tilbeiðsla annarra guða er bönnuð eins og gerð mynda af honum og að segja nafn hans upphátt. Annað er sannfæring um að Guð hafi valið Gyðinga sem sitt eigið fólk og afhjúpað lögmál sín og reglur gegnumTorah (lögmálið) og gert sáttmála við þá meðboðorðunum tíu. Mikilvægur þáttur í gyðingdómi er að stunda fræðimennsku í þessum lögmálum og túlkunum á þeim íTanakh og öðrum trúarritum og hefðum. Til forna voru gyðingar kallaðir Hebrear. Það búa flestir gyðingar í Bandaríkjunum en í Ísrael er meirihluti íbúanna gyðingar. Maður telst vera gyðingur ef móðir manns er gyðingur.

Trúarathafnir

[breyta |breyta frumkóða]

Trúarlíf í gyðingdómi stjórnast afsérstöku almanaki. Fyrir utansabbat (hvíludaginn) ogtunglkomuna er haldið upp á fjölda hátíða,páska,Sukkot ogJom Kippur svo nokkrar séu nefndar. Miðstöð trúarathafna ersýnagógan en guðsþjónustu er hægt að halda hvar sem er, ekki síst í heimahúsum. Hvar sem tíu gyðingar koma saman er hægt að halda svo kallaðminjan sem er fullgild guðsþjónusta. Sá sem stjórnar guðsþjónustunni kallast rabbínn.

Allt lífið stjórnast af trúarlegum reglum með rætur íTanakh og ritsöfnum semMishna ogTalmúd.Drengir eru venjulegaumskornir (mila) á áttunda degi og er þá gefið nafn, stúlkum er venjulega gefið nafn í sýnagógunni. Á þrettánda ári verður drengurbar mitzvah og er eftir það skuldbundinn að fylgja öllum trúarreglum, stúlkan verðurbat mitzvah á tólfta ári.

Margir gyðingar fylgja ströngum matarreglum sem nefndar erukosher (að hvorki snæðasvínskeldýr til dæmis, eða blandablóði ogmjólkurmat) og öðrum trúarlegum hreinlætisreglum.

Guðþjónustuhús

[breyta |breyta frumkóða]

Bæna- og guðþjónustuhús í gyðingdómi er kallaðsýnagóga.

Zíonismi

[breyta |breyta frumkóða]

Stjórnmálastefnanzíonismi hefur djúpar rætur í gyðingdómi og grundvallast á trúnni áFyrirheitna landinu, sem guð gaf afkomendumAbrahams, samkvæmthebresku bibíunni.

Kristni

[breyta |breyta frumkóða]

Kristni er sprottin úr gyðingdómi, en iðkendur beggja tilbiðja guðinnJahve og deila helgiritinuGamla testamentinu.

Gyðingahatur

[breyta |breyta frumkóða]

Gyðingahatur á við andúð, fordóma, mismunun og ofsóknir á hendur Gyðingum í samfélögum, þar sem þeir eru í minnihluta.[1]Nasismi var stjórnmálastefna, sem grundvallaðist á gyðingahatri og stefndi aðútrýmingu gyðinga.Helförin var skipulögð tilraun til þess að hrinda þeirri stefnu í framkvæmd.

Heimildir

[breyta |breyta frumkóða]
  1. Jewish Virtual Library
Sótt frá „https://is.wikipedia.org/w/index.php?title=Gyðingdómur&oldid=1847175
Flokkar:

[8]ページ先頭

©2009-2025 Movatter.jp