Movatterモバイル変換


[0]ホーム

URL:


Fara í innihald
WikipediaFrjálsa alfræðiritið
Leit

Guernsey

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Sjáaðgreiningarsíðuna fyrir yfirlit yfir aðrar merkingar „Guernsey“
Bailiwick of Guernsey
Bailliage de Guernesey
Fáni GuernseySkjaldarmerki Guernsey
FániSkjaldarmerki
Þjóðsöngur:
God Save the King
Sarnia Cherie
Staðsetning Guernsey
HöfuðborgSt. Peter Port
Opinbert tungumálenska,franska
StjórnarfarÞingbundin konungsstjórn

HertogiKarl 3.
LandstjóriPeter Walker
FógetiJonathan Le Tocq
Breskkrúnunýlenda
 • Aðskilið fráNormandí1204 
Flatarmál
 • Samtals
 • Vatn (%)
223. sæti
78 km²
0
Mannfjöldi
 • Samtals (2016)
 • Þéttleiki byggðar
206. sæti
67.334[1]
844/km²
VLF (KMJ)áætl.2018
 • Samtals3,272 millj.dala
 • Á mann52.531 dalir
VÞL (2008)0.975 (9. sæti)
Gjaldmiðillsterlingspund
TímabeltiUTC+1
Þjóðarlén.gg
Landsnúmer+44

Guernsey ereyja íErmarsundi og annað tveggja umdæmaErmarsundseyja. Lögsagnarumdæmi fógetans á Guernsey tilheyra, auk Guernsey, eyjarnarAlderney,Sark,Herm,Jethou,Brecqhou,Burhou og fleiri smáeyjar. Alderney og Sark hafa þó sín eigin þing og dómstóla.Bretland hefur umsjón meðutanríkismálum ogvarnarmálum eyjanna, en þær eru þó ekki hluti afbreska konungdæminu heldurhertogadæminuNormandí, enhertoginn af Normandí er einn af titlum Bretakonungs. Guernsey hefur því sitt eigiðlöggjafarþing enBretland fer með varnir eyjanna. Guernsey er ekki hluti afEvrópusambandinu en hefur sérstök tengsl við það. Þótt Guernsey ogJersey séu saman kallaðar Ermarsundseyjar er stjórnsýsla þessara tveggja umdæma algerlega aðskilin.

Guernsey liggur rétt vestan viðCotentin-skaga í Frakklandi og norðan við frönsku eyjunaSaint-Malo. Íbúar Guernsey eru um 65.000 talsins og þar af búa um 16.500 í höfuðstaðnum,St. Peter Port. Efnahagslíf eyjarinnar byggist áfjármálaþjónustu,iðnaði,ferðaþjónustu oglandbúnaði. Menning Guernsey erbresk menning undirnormönnskum áhrifum, enenska er almennt töluð þar ogsterlingspund er notað sem gjaldmiðill. Til er sérstök frönsk mállýskaguernésiais, sem var áður almennt töluð á Guernsey.

Heiti

[breyta |breyta frumkóða]

Viðskeytið-ey er komið úrfornnorrænu og merkir einfaldlega „eyja“. Uppruni fyrri hluta nafnsins er óviss. Hugsanlega er það dregið af norræna nafninuGrani, orðinugrænn,[2] trénugreni[3] eða spænska orðinuCuernohorn“ út af langhyrndu nautakyni sem þar er ræktað.

Eyjan var líklega nefndLisia afRómverjum[4] Hefðbundið er að telja að rómverska heitið á Guernsey hafi veriðSarnia sem kemur fyrir í upptalningu á Ermarsundseyjum íLeiðalýsingu Antonínusar, en það gæti líka verið rómverskt heiti á eyjunniSark.[5]

Saga

[breyta |breyta frumkóða]

Fyrir um 6000 árum leiddi hækkandi sjávarstaða í Ermarsundi til þess að eyjarnar urðu aðskildar fráNormandískaga.[6] Ánýsteinöld hófu menn búskap á eyjunum og reistu einsteinunga og steindysir sem þar er að finna. Elstu ummerki um menn á Guernsey eru frá því um 5000 f.o.t.[7]

Fornbretar settust að á eyjunumSarnia eðaLisia (Guernsey) ogAngia (Jersey) þegar þeir fluttust tilBretagne fráWales ogCornwall.Amfórur fráHerculaneum og Spáni eru til merkis um að eyjarnar hafi verið hluti af rómverskum verslunarleiðum sem náðu um langan veg og fundist hafa leifar af vöruskemmum frá 1. til 4. aldar í St. Peter Port. Árið 1982 fannst skipsflak af rómversku kaupskipi í höfninni sem hefur verið nefntAsterix. Skipið hefur líklega legið við ankeri þegar eldur braust út í því.[8] HeilagurSampson frá Dol er talinn hafakristnað Guernsey á 6. öld. Hann kom frá konungsríkinuGwent í Wales og varð síðar ábóti íDol-de-Bretagne.[9]

Miðaldir

[breyta |breyta frumkóða]

Árið933 fékkVilhjálmur 1. hertogi af Normandí eyjarnar að léni fráRúdolf konungi, ásamtCotentin-skaga, en áður höfðu þær tilheyrthertogadæminu Bretagne. Eyjarnar eru nú síðustu leifarnar afhertogadæminu Normandí.

Í kringum árið 1030 hraktist flotiRóberts 1. af Normandí undan stormi til Guernsey. Hann var á leið tilEnglands til að styðja tilkall frænda sinna,Alfreðs ogJátvarðs, gegnKnúti ríka. Róbert fékk skjól íklaustri heilags Mikaels á Guernsey. Í þakklætisskyni gaf hann klaustrinu allt land í dalnum með leyfi til að stækka það yfir norðvesturhluta eyjarinnar um leið og landnemar fengjust til að hreinsa og rækta landið. Hann sendi líka verkfræðinga og smiði til að ljúka smíði kastalans og annarra varnarvirkja.

Um miðja 11. öld settust sjóræningjar að á Guernsey og reistu vígi, Le Château des Sarrasins, á miðri eyjunni.Vilhjálmur af Normandí réði Sampson d'Anneville til að ráða niðurlögum þeirra og veitti honum í staðinn lén fyrir vesturhluta eyjarinnar. Sampson fékk landseta frá Normandí til að setjast að áléni d'Annevilles og Vilhjálmur gaf auk þess öðrum normönnskum landeigendum jarðir. Guernsey var brátt fullbyggð og skiptist í tíu sóknir. Í hverju léni var dómur til að leysa úr ágreiningsefnum landseta, en ábótinn í klaustri heilags Mikaels og herra d'Anneville fóru með æðsta dómsvald og leyfi til að taka sakamenn af lífi.[10]

Árið 1204 misstiJóhann landlausi meginlandshluta hertogadæmisins tilFilippusar 2., en eyjarnar voru áfram hluti af löndum Englandskonunga.[11] Þetta var staðfest meðParísarsáttmálanum 1259.[12] Ásíðmiðöldum vorusjórán stunduð frá eyjunum með því að nota villuljós til að fá skip til að stranda. Þetta jókst íHundrað ára stríðinu þegarKapetingar lögðu eyjarnar nokkrum sinnum undir sig.Varnarlið Guernsey er fyrst nefnt í heimildum 1331. Það var lagt niður árið 1946.[13] Árið1372 réðust málaliðar fráAragón á eyjarnar undir stjórnOwain Lawgoch í þjónustu franska konungsins.[14]

Árnýöld

[breyta |breyta frumkóða]

Árið 1483 gafSixtus 6. út páfabullu þar sem Ermarsundseyjar voru lýstar „hlutlaust svæði“.[15] Hver sem réðist á eyjarskeggja áttibannfæringu á hættu. Hlutleysi eyjanna var staðfest með konunglegri tilskipun Englandskonungs 1548. Frakkar reyndu að leggja Jersey undir sig ári síðar, envarnarlið Jersey sigraði þá. Hlutleysið var afnumið afVilhjálmi 3. öld síðar, vegna sjórána gegn hollenskum skipum.[16]

Um miðja16. öld snerust margir íbúar tilkalvínisma. Árið1556 voru þrjár konur,píslarvottarnir frá Guernsey, brenndar á báli fyrirvillutrú,[17] ásamt barnungum syni einnar þeirra. Þetta olli þvílíkri hneykslun meðal eyjarskeggja að fógeinn, Hellier Gosselin, hrökklaðist frá eyjunum skömmu síðar.[18]


Cornet-kastali við St. Peter Port á Guernsey, á síðari hluta 17. aldar.

ÍEnsku borgarastyrjöldinni snerust flestir íbúar á sveif með þingliðinu en landstjórinn,Peter Osborne, settist að íCornet-kastala og hélt þar til ásamt flokki konungssinna. Kastalinn var sá síðasti á Bretlandseyjum sem gafst upp fyrir þingliðinu árið 1651.[19][20] Í styrjöldum Breta viðSpán og Frakkland á 17. og 18. öld fengu margir skipstjórar þaðankaparabréf og breyttu kaupskipum í sjóræningjaskip.

Í upphafi 18. aldar settust margir íbúar Guernsey að íNýja heiminum.[21] Landnemar þaðan stofnuðuGuernsey-sýslu í Ohio.[22] Ótti við innrás Napoleons gerði að verkum að ný varnarmannvirki voru reist á eyjunum undir lok aldarinnar.[23]

Nútími

[breyta |breyta frumkóða]

Á19. öld vænkaðist hagur eyjarinnar vegna siglinga og vinnslu ígranítnámum. Þegar vinnslan var sem mest var unnið í 278 námum, flestum þeirra á norðurhluta eyjarinnar. Þegarskútuöld lauk dró úr hlutverki eyjanna í sjóflutningum, þar sem járn og stál voru ekki til þar.[24]

Nyrsti hluti Guernsey,Le Clos du Valle, varörfirisey sem var skilin frá aðaleyjunni með sundinuLe Braye du Valle. Sundið var þurrkað upp af bresku stjórninni 1806. Austurendi sundsins varð hafnarbærinnSaint Sampson, sem í dag er önnur stærsta höfn Guernsey. Nýir vegir voru gerðir og eldri vegir lagðir með slitlagi fyrirbreska herinn.[25] Innviðaframkvæmdir voru fjármagnaðar með peningaprentun frá 1815.[26]

Um 3000 menn frá Guernsey voru skráðir í breska innrásarliðiðBritish Expeditionary Force ífyrri heimsstyrjöld, þar af um 1000 í hersveitinniRoyal Guernsey Light Infantry sem var stofnuð árið1916. Ísíðari heimsstyrjöld var lengst afþýskt setulið á Guernsey en fyrir stríðið höfðu mörg börn verið flutt frá eyjunni til ættingja í Bretlandi.[27] Þjóðverjar reistu mikil varnarvirki á eyjunni vegna hernaðarlegs mikilvægis hennar og vegna þess aðAdolf Hitler taldi að Bretar myndu reyna að endurheimta eyjarnar hvað sem það kostaði. Yfir 1000 íbúar voru fluttir nauðungarflutningum í fangabúðir í Þýskalandi, sérstaklegaOflag V-B ogOflag VII-C. Hernámi Þjóðverja á Guernsey og Jersey lauk 9. maí 1945. Sá dagur er haldinn hátíðlegur síðan.[28]

Seinna á 5. áratugnum var gert við skemmdir sem hernámið hafði valdið á eyjunum.Tómataræktun blómstraði fram á 8. áratug 20. aldar þegar hækkun olíuverðs olli hnignun ræktunarinnar.[29] Ferðaþjónusta er áfram mikilvæg atvinnugrein á Guernsey.[30] Á 8. áratugnum fór fjármálaþjónusta vaxandi.Útganga Breta úr Evrópusambandinu hefur ekki haft mikil áhrif á samband Bretlands við eyjarnar.[31]

Landfræði

[breyta |breyta frumkóða]
Klettar við strönd Guernsey

Eyjarnar Alderney, Guernsey, Herm, Sark og nokkrar minni eyjar liggja nærri49°28′N2°35′V / 49.467°N 2.583°V /49.467; -2.583 og eru samtals 78 ferkílómetrar að stærð með um 50 km strandlengju. Aðaleyjan, Guernsey, er 63,4 ferkílómetrar. Hún er íSt. Malo-flóa, um 50 km vestur af strönd Normandí í Frakklandi og 120 km suður afWeymouth í Bretlandi. Syðsti oddi eyjarinnar erJerbourg Point þar sem Þjóðverjar reistu varnarvirki. Hæsti punktur umdæmisins erLe Moulin á Sark, 114 metra yfir sjávarmáli. Á Guernsey er hæsti punkturinn Hautnez í 111 metra hæð.

Guernsey skiptist í tvær landslagsheildir: hásléttunaHaut Pas í suðri og láglenda og sendna sléttu,Bas Pas, í norðri. Almennt séð er landbúnaður ríkjandi áHaut Pas en þéttbýli og iðnaður meira áberandi áBas Pas.

Í St Peter Port er að finna djúpahöfn. SmáeyjarnarCasquets við Alderney eru þekktar fyrir tíð skipbrot og þar hefur veriðviti frá 1724.

Veðurfar

[breyta |breyta frumkóða]

Veðurfar á Guernsey er temprað, mildir vetur og hlý sólrík sumur. Júlí og ágúst eru heitustu mánuðirnir og er hitinn þá yfirleitt í kringum 20° en getur náð allt að 24°. Febrúar er að jafnaði kaldasti mánuðurinn með meðallofthita um 6°. Vikulegur meðallofthiti er 16° í ágúst. Snjókoma er sjaldgæf og snjó festir sjaldnast en mestu líkur á snjókomu eru í febrúar. Hiti fer sjaldan undir frostmark þótt vindkæling geti verið mikil. Mest úrkoma er í desember, nóvember og janúar. Júlí er sólríkasti mánuðurinn með 250 sólartíma. Desember er dimmasti mánuðurinn með 50 sólartíma. Um helming ársins er skýjað.

JanúarFebrúarMarsAprílMaíJúníJúlíÁgústSeptemberOktóberNóvemberDesember
 Hæsti meðalhiti8910111417192018151110
 Lægsti meðalhiti54569111314131186
 Úrkoma8977675150463846678998107
 Línurithitastig í °C • mánuðarúrkoma í mm •Heimild:Alþjóðaveðurfræðistofnunin,[32]
 
 
89
 
8
5


 
 
77
 
9
4


 
 
67
 
10
5


 
 
51
 
11
6


 
 
50
 
14
9


 
 
46
 
17
11


 
 
38
 
19
13


 
 
46
 
20
14


 
 
67
 
18
13


 
 
89
 
15
11


 
 
98
 
11
8


 
 
107
 
10
6



Stjórnmál

[breyta |breyta frumkóða]
Landstjóri og fógetafulltrúi Guernsey í skrúðgöngu til að fagna afmæli Bretadrottningar árið 2016.

Fógetaumdæmið Guernsey nær yfir eyjarnarGuernsey,Alderney ogSark. Hver eyja hefur sitt eigiðstéttaþing sem myndar stjórn hennar. Æðsta stéttaþingið er á Guernsey og lög þaðan gilda stundum líka á hinum eyjunum með þeirra samþykki. Þingið skipar nefndir sem fara með framkvæmdavaldið.Þingið á Guernsey er skipað 40 þingmönnum sem eru kjörnir til 4 ára í senn.Þingið á Alderney er skipað 10 fulltrúum kosnum til 4 ára þar sem helmingur þingsins er kosinn á tveggja ára fresti.Þingið á Sark hefur 18 fulltrúa sem eru kosnir á 4 ára fresti, og er stjórnað aflénsherra Sark. Hvert lögsagnarumdæmi hefur sína eigin dómstóla.

Guernsey er ekki hluti afBretlandi og á engan fulltrúa á breska þinginu. Líkt og Jersey nýtur hún sérstakrar stjórnskipunarlegrar stöðu með óskrifaða stjórnarskrá byggða á réttindum sem ýmsir enskir konungar hafa veitt í gegnum aldirnar. Stjórn Guernsey forðast að láta reyna á þessi ákvæði með átökum við bresku ríkisstjórnina. Þessi sérstaða hefur oft komið sér vel, þar sem eyjarskeggjar hafa komið sér undan hörðustu löggjöfinni frá Westminster en notið góðs af verndartollum. England og síðar Bretland hafa aftur notið góðs af hernaðarlega mikilvægri stöðu eyjanna.

Sóknir

[breyta |breyta frumkóða]

Stjórnsýslueiningar Guernsey eru tíu sóknir. Auk þess eru kirkjusóknir á Alderney og Sark en þær eru ekki stjórnsýslueiningar. Í hverri sókn er tylftarráð (Douzaine) þar sem meðlimir eru kjörnir til fjögurra ára í senn. Tveir kjörnir löggæslufulltrúar fara með framkvæmdavald fyrir tylftarráðið. Lítilörfirisey,Lihou, tengist Guernsey um granda á háfjöru. Landslag á Guernsey er að mestu flatt með lágar hæðir suðvestanmegin.

SóknÍbúar (2001)Flatarmál (vergées)Flatarmál (km²)
1.Castel8.9756.21910,2
2.Forest1.5492.4984,1
3.St Andrew2.4092.7524,5
4.St Martin6.2674.4687,3
5.St Peter Port16.4883.9146,4
6.St Pierre du Bois2.1883.8086,2
7.St Sampson8.5923.8166,3
8.St Saviour2.6963.9006,4
9.Torteval9731.8913,1
10.Vale9.5735.4468,9
Sóknir á Guernsey.

Efnahagslíf

[breyta |breyta frumkóða]

Fjármálaþjónusta, eins og bankaþjónusta, sjóðstjórnun og tryggingar, stendur undir um 37% af vergri landsframleiðslu.[33] Ferðaþjónusta, iðnaður og landbúnaður (aðallega tómatarækt og afskorin blóm - sérstaklegafresíur) hefur farið minnkandi.[29] Lágir skattar og erfðafjárskattar hafa gert Guernsey að vinsælliaflandseyju fyrir einkarekna hlutabréfasjóði.

Enginn seðlabanki starfar á Guernsey en stjórnvöld á eyjunni framleiða sína eigin útgáfu afsterlingspundi,Guernseyjarpund, sem er tekið gilt á Guernsey og víða áJersey, en síður íBretlandi, þótt það jafngildibresku pundi. Breskir gjaldmiðlar (bæði enskar, skoskar og norðurírskar útgáfur) eru teknir gildir á Guernsey.[34] Fjárfestingasjóðir eyjunnar sem eiga að standa undir lífeyri og framtíðarkostnaði, námu 2,7 milljörðum í júní 2016.[35] Guernsey gaf út 30 ára ríkisskuldabréf í desember 2015 fyrir 330 milljón pundum, sem var fyrsta ríkisskuldabréfið í 80 ár.[36] Guernsey hefur fengið lánshæfismatið AA-/A-1+ með stöðugri væntingu fráStandard & Poor's.[37]

Í mars 2016 voru 32.291 með starf á Guernsey og 4.864 íbúar voru sjálfstætt starfandi. Þar voru 2.453 fyrirtæki með störf. 19,6% íbúa starfa í fjármálageiranum og miðtekjur voru 31.215 pund.[38]

Íbúar

[breyta |breyta frumkóða]

Íbúar Guernsey voru rúmlega 60.000 árið 2019.[39] Lífslíkur eru 84,5 ár hjá konum og 80,1 ár hjá körlum. Guernsey var í 10. sæti yfir lönd heims eftir langlífi íbúa árið 2015.[40]

Íbúar Guernsey erubreskir ríkisborgarar og bresk lög gilda um innflytjendur og landamæravörslu.[41] Guernsey er hluti afSameiginlega ferðasvæðinu sem nær yfir allarBretlandseyjar, þannig að ekki þarf að sýna vegabréf þegar ferðast er milli eyjanna. Guernsey takmarkar aðflutning fólks með íbúðaleyfum, þannig að sérstök skilyrði gilda um íbúa hluta íbúðarhúsnæðis á eyjunni. Til að mega setjast þar að verður maður að vera fæddur þar eða deila íbúð með einhverjum sem er með slíkt leyfi.[42] Þær eignir sem eru ekki háðar þessum skilyrðum eru því mun dýrari. Skilyrðin gilda aðeins um búsetu í húsnæðinu og hafa ekkert með eignarhald að gera. Hægt er að sækja um stöðu íbúa ef viðkomandi hefur búið á eyjunni í tíu ár á 20 ára tímabili.

Menning

[breyta |breyta frumkóða]
Grænmetismarkaður á Lé Viaër Marchi 2008.

Guernsey, Alderney og Sark hafa hver sína eigin menningarlegu arfleifð, sem hefur mótast af blöndu normannskra (franskra) hefða ogbreskra menningaráhrifa. Þar voru áður talaðar normannskar mállýskur (guernésiais,sercquiais ogauregnais). Um 2% íbúa Guernsey eru taldir tala guernésiais, en 14% telja sig skilja mállýskuna. Auregnais dó út sem lifandi mállýska á 7. áratug 20. aldar og sercquiais líklega undir lok aldarinnar.

Við Guernsey er kenntsamnefnd nautgripakyn, sem er þjóðardýr eyjarinnar, ásamtasna. Hefðbundin skýring á asnanum er að landslag á Guernsey er miklu brattara en á Jersey og útheimti því sterk burðardýr. Guernsey-búar eru uppnefndir „asnar“ (ânes), meðan Jersey-búar eru uppnefndir „körtur“ (crapauds).

Þekkt skáld og rithöfundar frá Guernsey eru meðal annarsGeorge Métivier,Mabel Collins ogG. B. Edwards.

Nokkrir þekktir listamenn hafa búið á Guernsey um lengri eða skemmri tíma. Franski listmálarinnPierre-Auguste Renoir málaði þar fimmtán málverk sumarið 1884.[43] Enska tónskáldiðJohn Ireland bjó þar líka um tíma. Þekkasti gestur Guernsey er samtVictor Hugo sem dvaldi þar í útlegð 1855 til 1870 og samdi þar mörg af sínum þekktustu verkum, meðal annarsVesalingana.

Hátíðir eru meðal annarsLé Viaër Marchi á Guernsey (frá 8. áratug 20. aldar) ogSarkFest-tónlistarhátíðin á Sark.

Tilvísanir

[breyta |breyta frumkóða]
  1. „Guernsey - The World Factbook“.www.cia.gov. 14 nóvember 2022.
  2. „Guernsey“.Online Etymology Dictionary. Sótt 19.5.2023.
  3. Hocart, Richard (2010).Guernsey's Countryside: An Introduction to the History of the Rural Landscape. Guernsey: Societé Guernesiaise.ISBN 978-0953254798.
  4. „History“.Guernsey Museum & Gallerys. Sótt 19.5.2023.
  5. „Roman Guernsey – Lisia“.Guernsey Donkey. 15.11.2011.
  6. „La Cotte Cave, St Brelade“. Société Jersiaise. Afrit afupprunalegu geymt þann 23. mars 2008. Sótt 10 október 2007.
  7. „Guernsey Attractions – Ancient Monuments“.Island Life. Sótt 24 nóvember 2017.
  8. „Gallo-Roman Ship“.Guernsey Museums & Galleries. 19 júlí 2012. Sótt 22 nóvember 2017.
  9. Marr, James (2001).The History of Guernsey – The Bailiwick's Story. The Guernsey Press.ISBN 978-0953916610.
  10. „Guernsey“.British History Online. Sótt 13 júní 2022.
  11. Crossan 2015, bls. 7
  12. Ogier, Daryl Mark (2005).The Government and Law of Guernsey. The States of Guernsey.ISBN 978-0954977504.
  13. „Royal Guernsey Militia Regimental Museum“.Guernsey Museums & Galleries. 19 júlí 2012. Sótt 24. september 2017.
  14. de Garis, Marie (1986).Folklore of Guernsey.OCLC 19840362.
  15. Cooper 2006, bls. 13
  16. Wimbush, Henry (1924).The Channel Islands. A&C Black. bls. 89.
  17. Ogier, Daryl Mark (1997).Reformation and Society in Guernsey. Boydell & Brewer.ISBN 978-0851156033.
  18. Butler, Sara M. (2018). „Pleading the Belly: A Sparing Plea? Pregnant Convicts and the Courts in Medieval England“. Í Butler, Sara; Kesselring, K. J. (ritstjórar).Crossing Borders: Boundaries and Margins in Medieval and Early Modern Britain. Brill. bls. 131–152.doi:10.1163/9789004364950_009.ISBN 978-90-04-33568-4.
  19. The Atlantic Monthly, Volume 65. bls. 621.
  20. „History of the Castle“.Guernsey Museums & Galleries. 19 júlí 2012. Sótt 19. september 2017.
  21. „Guernsey's emigrant children“.BBC Legacies. Sótt 22 nóvember 2017.
  22. Jamieson 1986, bls. 281
  23. „18th & 19th Century Defences“.Guernsey Museums & Galleries. 19 júlí 2012. Sótt 18. september 2017.
  24. Jamieson 1986, bls. 291
  25. Crossan 2015, bls. 241
  26. Edward Holloway.How Guernsey Beat the Bankers.
  27. Bunting, Madeleine (1995).The Model Occupation. London: Harper Collins. bls. 21.ISBN 0002552426.
  28. „Learn more about Liberation Day“.Visit Guernsey. Afrit afupprunalegu geymt þann 3 júlí 2017. Sótt 22 nóvember 2017.
  29. 29,029,1„The tomato growing industry“.Local History Guernsey. BBC. Sótt 23 nóvember 2017.
  30. „Guernsey Tourism Strategic Plan 2015–2025“(PDF).VisitGuernsey Trade and Media.Afrit(PDF) af uppruna á 1. desember 2017. Sótt 23 nóvember 2017.
  31. „Inside Brexit – Guernsey's Response“(PDF).We are Guernsey.Afrit(PDF) af uppruna á 1. desember 2017. Sótt 23 nóvember 2017.
  32. „World Weather Information Service – Guernsey“. Alþjóðaveðurfræðistofnunin. Sótt 2012.
  33. „Guernsey Gross Domestic Product First Release 2010“. States of Guernsey. Sótt 11. september 2012.
  34. „About Guernsey“. Visitguernsey.com. Afrit afupprunalegu geymt þann 29 maí 2011. Sótt 31 maí 2011.
  35. „Total States Funds = £2.7 Billion“. Island FM. 28. september 2016. Afrit afupprunalegu geymt þann 2 apríl 2019. Sótt 4 janúar 2023.
  36. „Guernsey's Debt Draws Strong Demand“.The Wall Street Journal.
  37. „Island Credit Rating Remains The Same“. Island fm. 30 janúar 2017. Afrit afupprunalegu geymt þann 2 apríl 2019. Sótt 30 janúar 2017.
  38. „Guernsey Quarterly Population, Employment and Earnings Bulletin“(PDF). Island FM. Afrit afupprunalegu(PDF) geymt þann 18 október 2017. Sótt 29 október 2016.
  39. „Population, Employment and Earnings - States of Guernsey“. mars 2019.
  40. „Life Expectancy at Birth“. CIA World Factbook. Afrit afupprunalegu geymt þann 29. desember 2018. Sótt 8. september 2015.
  41. PO Box 23, St Peter Port (18 nóvember 2020).„Guidance for EU nationals and employers“.www.gov.gg (enska). Sótt 2 janúar 2023.
  42. „Where can licence holders live“. States of Guernsey. Afrit afupprunalegu geymt þann 1 maí 2015.
  43. House, John (1988).Renoir in Guernsey. Guernsey Museum & Art Gallery. bls. 3.ISBN 978-1871560817. Sótt 29 nóvember 2017.

Tenglar

[breyta |breyta frumkóða]
Wikiorðabókin er með skilgreiningu á orðinuGuernsey.
Lönd íEvrópu
Norður-Evrópa
Austur-Evrópa
Mið-Evrópa
Vestur-Evrópa
Suðaustur-Evrópa
Suður-Evrópa
Undir yfirráðum annarra ríkja:Álandseyjar ·Færeyjar ·Gíbraltar ·Guernsey ·Jersey ·Mön ·Svalbarði
1 Oft talin landfræðilega til Asíu en skilgreind sem Evrópulönd af menningarlegum ástæðum.
  Þessi landafræðigrein erstubbur. Þú getur hjálpað til með því aðbæta við greinina.
Sótt frá „https://is.wikipedia.org/w/index.php?title=Guernsey&oldid=1907406
Flokkar:
Faldir flokkar:

[8]ページ先頭

©2009-2025 Movatter.jp