Golf eríþrótt þar sem leikmenn reyna að koma kúlu í holu í sem fæstum höggum og er notast við kylfur með mismunandi fláa. Golf er ein af fáum íþróttum sem ekki er spiluð á ákveðið stórum velli eða vallarhelmingi, stærðin fer eftir stærð golfvallarins.
Golf er talið vera fráSkotlandi og hefur verið spilað í að minnsta kosti 500 ár áBretlandseyjum. Elsti golfvöllur í heimi er Old Course völlurinn í St. Andrews. Golf eins og við þekkjum það í dag hefur verið spilað á Old Course í um 600 ár, svipaðar íþróttir voru þó leiknar nokkrum öldum fyrr.
Golfleikur hefst ávallt á teig hverrar brautar en þar er svæði til að slá kúluna í átt að holu. Á teigi er notaðtí sem hækkar kúluna frá vellinum. Tí má ekki nota í seinni höggum. Þrír ólíkir teigar eru á hverri braut og skiptast þeir á milli þeirra sem nota þá. Þannig fá atvinnumenn einn teig, karlar (áhugamenn) einn og konur og börn (áhugamenn) einn. Vellir sem hafa fjóra teiga eru þó líka til þ.e.atvinnumenn karlar (hvítir), áhugamenn karlar (gulir), atvinnumenn konur (bláir)og svo áhugamenn konur og börn (rauðir)
Þegar slegið er af teig er reynt að hitta ábrautina, á brautinni geta verið margar hindranir s.s sandgryfjur, hólar og hæðir, tré og allt það sem venjulega má sjá í okkar daglega umhverfi. Í kringum brautina er þykkur graskargi, eðaröff á daglegu máli golfara.
Þar sem leikurinn gengur út á það að komast hringinn (allar holurnar) á sem fæstum höggum er oft viðmiðunarhöggfjöldi gefinn upp og kallast hannpar vallar. Algengt par vallar er 72 en par holu fer aldrei yfir SEX.
Högg á holu hafa ólík nöfn eins og sjá má í töflunni að neðan:
Til að koma kúlunni í holu er notuðgolfkylfa. Þegar kúla hefur verið slegin má ekki taka hana upp nema hún sé á flöt og þá með því að merkja staðsetningu hennar meðflatarmerki. Leikmaður notar eins mörg högg og þarf til að koma kúlunni í rétta holu en þó er siður að taka kúluna upp þegar komin eru fjögur högg yfir pari og fara yfir á næstu braut, sérstaklega þegar aðrir leikmenn bíða eftir því að leika brautina. Höggin þurfa að vera blanda af nákvæmni og lengd og er leikurinn því blanda af líkamlegri áreynslu og nákvæmni.
Í golfi eru ekki gerðar kröfur til dýrs útbúnaður, en skulu leikmenn þó klæðast snyrtilegum klæðnaði. Kylfur þarf til leiksins og eru ólíkar útfærslur notaðar við ólík markmið.
Trékylfur eru lengstu kylfurnar í pokanum og eru notaðar þegar slá þarf löng högg. Fláinn á trékylfum er frá 7,5° til 31° gráður. Skaftið er um 100 - 105 cm, lengdin má ekki fara yfir 47 tommur (120 cm).
Pútterinn (Potspaðinn) er notaður þegar kúlan liggur á flötinni, þá reyna kylfingar að sjá breikið (hallann)og ímynda sér hvernig kúlan eigi eftir að rúlla. Pútterinn er s.s. notaður í stutt og nákvæm högg.