George Eads | |
---|---|
![]() | |
Upplýsingar | |
Fæddur | George Coleman Eads III 1. mars1967 (1967-03-01) (58 ára) |
Ár virkur | 1994 - |
Helstu hlutverk | |
Nick Stokes íCSI: Crime Scene Investigation |
George Coleman Eads III (fæddur1. mars1967) erbandarískurleikari þekktastur fyrir hlutverk sitt semNick Stokes íCSI: Crime Scene Investigation.
Eads fæddist íFort Worth,Texas og ólst upp íBelton, Texas. Á hann eldri systur, Angela Eads Tekel. George útskrifaðist frá Belton High School árið 1985 og frá Texas Tech Háskólanum árið 1989 með gráðu í markaðsfræði. Í háskóla þá var hann meðlimur bræðralagsins Phi Delta Theta.[1]
Á hlut í Hollywood-matsölustaðnum CineSpace sem er „matur og bíó“-staður.
Þegar hann byrjaði í CSI þá gaf líksviðsmyndin honum endurteknar martraðir. Í einni af þeim, samkvæmt George, þá eru blóðslettur — engin öskur og stórir stafir með orðinu DOA.
Til þess að fylgja eftir leikaraferli sínum, þá flutti hann tilLos Angeles, Kaliforníu, í pallbíl sem hann fékk lánaðan frá stjúpföður sínum. Þegar hann kom svo til Los Angeles, þá gat hann aðeins keyrt á daginn þar sem höfuðljósin voru brotin. Eads fékk fyrsta tækifæri sitt í sápuóperunniSavannah. Þó að persóna hans dó í fyrsta þættinum, Eads varð svo vinsæll að framleiðendurnir héldu áfram að nota hann í endurhvörf og var á endanum settur aftur inn sem eineggja tvíburabróðir persónunnar.[2]
Eads var gestaleikari íER, og vann við nokkrar sjónvarpsmyndir á borð viðCrowned and Dangerous með Yasmine Bleeth frá 1997.
Árið 2000 Eads varð einn af aðalleikurum CBS sjónvarpseríunnarCSI: Crime Scene Investigation, þar sem hann leikur Las Vegas réttarrannsóknarmanninn Nick Stokes.
Auk þess að leika íCSI: Crime Scene Investigation hefur Eads unnið við fleiri sjónvarpsmyndir,Monte Walsh meðIsabellu Rossellini ogEvel Knievel, þar sem hann lék Evel Knievel.
Árið 2004, Eads ogCSI samleikkonanJorja Fox fengu mikla fjölmiðlaumfjöllun þegar það fréttist að þau hefðu verið rekin úr CSI, vegna að talið var vegna ágreinings vegna samnings. Sagt var frá því að Eads hefði mætt seinnt til vinnu fyrsta dag fimmtu seríunnar, hann segist hafa sofið yfir sig, og að Fox hafi ekki sent bréf til CBS að hún myndi mæta til vinnu. Þessi ágreiningur var leystur fljótlega og þau voru bæði endurráðin en hvorug þeirra fékk launahækkun eins og samstarfsleikarar þeirra.
Árið 2006 varð Eads fyrir neikvæðri fréttumfjöllun í Ástralíu þar sem hann átti að koma fram á Logie Award (sama og Emmy verðlaunin). Talið er að fjölmiðlafulltrú hans hafi hringt í skipuleggjendurnar tveimur tímum áður en atburðurinn átti að byrja og hafi sagt að Eads „líkaði ekki rauða dregilinn.“ Einnig á hann að hafa átt í nokkrum ástarsamböndum við ástralskar sápuóperustjörnur.[3]
Kvikmyndir | |||
---|---|---|---|
Ár | Kvikmynd | Hlutverk | Athugasemd |
1994 | Dust to Dust | Black Wolf | |
1996 | The Ultimate Lie | Ben McGrath | Sjónvarpsmynd |
1997 | Crowned and Dangerous | Riley Baxter | Sjónvarpsmynd |
2000 | The Spring | Gus | Sjónvarpsmynd |
2002 | Just Walk in the Park | Adam Willingford | Sjónvarpsmynd |
2002 | Second String | Tommy Baker | Sjónvarpsmynd |
2003 | Monte Walsh | Frank ´Shorty´ Austin | Sjónvarpsmynd |
2003 | CSI: Crime Scene Investigation | Nick Stokes | Tölvuleikur Talaði inn á |
2004 | CSI: Crime Scene Investigation – Dark Motives | CSI Stig 3 Nick Stokes | Tölvuleikur Talaði inn á |
2004 | Evel Knievel | Evel | Sjónvarpsmynd |
2006 | CSI: 3 Dimensions of Murder | Nick Stokes | Tölvuleikur Talaði inn á |
2007 | CSI: Crime Scene Investigation – Hard Evidence | Nick Stokes | Tölvuleikur Talaði inn á |
2009 | CSI: Crime Scene Investigation – Deadly Intent | Nick Stokes | Tölvuleikur Talaði inn á |
Sjónvarp | |||
Ár | Titill | Hlutverk | Athugasemd |
1995 | Strange Luck | J.R. Dean | Þáttur: Hat Trick |
1996-1997 | Savannah | Nick Corelli | 18 þættir |
1997-1998 | ER | Sjúkramaðurinn Greg Powell | 3 þættir |
2000 | Grapevine | Thumper Klein | 5 þættir |
2004 | Justice League | Kapteinn Atom | Þáttur: Initiation |
2008 | Two and a Half Men | George | Þáttur: Fish in a Drawer |
2000- til dags | CSI: Crime Scene Investigation | Nick Stokes | 252 þættir |