Movatterモバイル変換


[0]ホーム

URL:


Fara í innihald
WikipediaFrjálsa alfræðiritið
Leit

Geoffrey Chaucer

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Geoffrey Chaucer
Chaucer sem pílagrímur íEllesmere-handritinu frá15. öld.

Geoffrey Chaucer/ˈʤɛfri ˈʧɔːsə/ (um134325. október1400) varensktskáld,heimspekingur oghirðmaður. Hann er þekktastur fyrirsagnasafniðKantaraborgarsögur sem varðveist hefur að hluta. Chaucer er stundum kallaður faðirenskunnar þar sem hann var sá fyrsti sem sýndi fram á að enskt alþýðumál væri jafngottbókmenntamál ogfranska,latína oganglónormanska sem þá voru ríkjandiritmál í Englandi. Chaucer notaðist við enskttalmál þess tíma, þ.e.a.s.miðensku sem hafði þróast út fráengilsaxnesku. Staða hans gagnvart enskunni er því hliðstæð við stöðuDante Alighieri gagnvartítölskunni hundrað árum fyrr.

Ævi

[breyta |breyta frumkóða]

Chaucer fæddist íLondon um 1343, en ekki er vitað nákvæmlega um fæðingarstað og tíma. Bæði faðir hans og afi voruvíngerðarmenn í London af ættkaupmanna fráIpswitch. Ættarnafnið er dregið af franska orðinuchausseur sem merkir „skósmiður“. 1324 var föður hans, John Chaucer, tólf ára gömlum, rænt af frænku sinni, en hún vildi gifta hann dóttur sinni til að ná að halda fasteign í Ipswitch. Frænkunni var varpað í fangelsi fyrir þetta og gert að greiða 250 punda sekt, sem bendir til þess að fjölskyldan hafi verið vel stæðmillistéttarfjölskylda eða jafnvelyfirstétt. John giftist þess í stað Agnesi Copton, sem erfði árið 1349 miklar eignir, þar á meðal 24 verslanir í London, frá frænda sínum Hamo de Copton sem sagður ermyntsláttumaður íLundúnaturni.

Hundrað ára stríðið

[breyta |breyta frumkóða]

Lítið er vitað um æsku Chaucers, en ævi hans er þó vel skrásett miðað við samtíðarmenn hans,William Langland ogPerluskáldið. Til eru fimm hundruð frumheimildir af ýmsu tagi sem greina frá athöfnum hans. Nafn hans kemur fyrst fyrir árið 1357 í húsreikningumElizabeth de Burgh sem vargreifynja af Ulster, en hann hafði fengið þjónsstöðu hjá henni í gegnum sambönd föður síns. Hann vann einnig sem hirðmaður, erindreki og opinber starfsmaður, auk þess að starfa fyrir konung með því að safna brotajárni og skrá það. Við upphafHundrað ára stríðsins 1359 réðistJátvarður 3. inn íFrakkland og Chaucer ferðaðist þangað með prinsinumLionel frá Antwerpen, eiginmanni greifynjunnar, sem hluti af innrásarhernum. 1360 var hann tekinn höndum íumsátrinu um Rheims og varð stríðsfangi. Játvarður greiddi sjálfur 16 pund upp í lausnargjald fyrir hann og Chaucer var leystur úr haldi. Eftir það var hann kallaður „fanginn“.

Eftir þetta ríkir nokkur óvissa um ferðir Chaucers, en hann virðist hafa ferðast um Frakkland,Spán ogFlandur sem sendiboði konungs og hugsanlega farið í pílagrímsferð tilSantiago de Compostela. Árið1366 giftist hannPhilippu Roet, hirðmeyFilippíu af Hainault, drottningar Játvarðs 3., og systurKatherine Swynford sem síðar (um1396) giftist vini og stuðningsmanni Chaucers, prinsinumJóhanni frá Ghent. Ekki er vitað hversu mörg börn Chaucer og Philippa eignuðust en yfirleitt er talað um þrjú eða fjögur. Sonur hans,Thomas Chaucer, hlaut mikinn frama, varyfirbryti fjögurra konunga, konunglegur sendimaður í Frakklandi ogþingforsetineðri deildar enska þingsins. Barnabarnabarn Thomasar Chaucers,Jóhann de la Pole, jarl af Lincoln, var erfingi krúnunnar eftirRíkharð 3. áður en honum var steypt af stóli. Önnur börn Chaucers voru (líklega) Elizabeth Chaucer, sem gerðist nunna, Agnes, sem var viðstödd krýninguHinriks 4., og Lewis Chaucer.

Talið er að Chaucer hafi lærtlögfræði viðInner Temple í London um þetta sama leyti, þótt ekki sé til óyggjandi staðfesting á því. Hann er skráðurherbergisþjónn (valet),þegn (yeoman) eðaskutulsveinn (esquire) viðhirð Játvarðs 3.20. júní1367, sem gat þýtt hin ýmsustu störf. Hann fór erlendis nokkrum sinnum og1368 kann hann að hafa verið við brúðkaup Lionels frá Antwerpen og Violante, dótturGaleazzo 2. Visconti, hertoga íMílanó. Tveir aðrir frægir bókmenntamenn voru viðstaddir brúðkaupið,Francesco Petrarca ogJean Froissart. Um þetta leyti er talið að Chaucer hafi samiðBók hertogafrúarinnar til heiðursBlanche af Lancaster, eiginkonu Jóhanns frá Ghent sem lést 1369.

Ferðir til Ítalíu og ritstörf

[breyta |breyta frumkóða]

Árið eftir tók Chaucer þátt í herför tilPicardie og heimsótti í framhaldinu borgríkinGenúa ogFlórens árið 1373. Talið er að í þeirri ferð hafi hann komist í kynni viðítalska ljóðagerð sem hann nýtti sér síðar, bæðibragfræðilega og efnislega. Önnur ferð sem hann fór árið 1377 er hins vegar sveipuð óvissu. Síðari heimildir gefa til kynna að hún hafi verið sendiför með Jean Froissart til að skipuleggja hjónaband krónprinsinsRíkharðs og franskrar prinsessu, sem hefði þýtt endalok Hundrað ára stríðsins. Ef þetta var takmark ferðarinnar er ljóst að það mistókst.

1378 sendi Játvarður Chaucer sem leynilegan sendiboða til hallar Viscontis og til að hitta enskamálaliðannJohn Hawkwood í Mílanó. Chaucer byggði persónu „riddarans“ íKantaraborgarsögum á Hawkwood, en lýsingar Chaucers á honum eru nákvæmar lýsingar á því hvernig14. aldar málaliði hefur litið út en ekki byggðar á kunnuglegum minnum úrriddarasögum.

Vísbending um að ritstörf hans hafi verið mikils metin var þegar Játvarður veitti Chaucer „gallon af víni daglega það sem eftir er æfinnar“ fyrir eitthvað ótilgreint verk. Þetta voru óvenjuleg verklaun, en þau voru veitt ádegi heilags Georgs1374 þegar venja var að verðlauna listamenn. Hugsanlegt er að Chaucer hafi um þetta leyti, mögulega fyrir ljóð sín, verið orðinn eins konarhirðskáld. Hann tók út þessi laun sín þar til Ríkharður 2. komst til valda en eftir það var þeim breytt í peningaframlag18. apríl1378.

Fjármálastjóri við tollinn

[breyta |breyta frumkóða]

Chaucer hlaut umtalsverða stöðu semfjármálastjóri við tollheimtuna við höfnina í London og hóf störf þar8. júní1374. Þessu starfi sinnti hann í tólf ár, sem var óvenjulangur tími í stöðu af þessu tagi á þeim tíma. Lítið er vitað um ævi hans næstu tíu árin en talið er að hann hafi skrifað eða byrjað á flestum frægustu verkum sínum á þessum tíma. Hann kemur fyrir í dómskjölum4. maí1380 í tengslum viðraptus Cecily Chaumpaigne. Atvikið var túlkað á 19. og 20. öld semmannrán eða jafnvelnauðgun en nýlega hefur verið sannað að ekkert alvarlegt var á ferð. Chaumpaigne hafði verið vinnukona í þjónustu manns sem hét Thomas Staundon. Chaucer sannfærði hana um að vinna hjá sér en við þetta reiddist Staundon og stefndi Chaucer (og Chaumpaigne) fyrir dóm.[1] Málið virðist hafa fengið skjóta lausn. Ekki er vitað hvort Chaucer var í London á tímumbændauppreisnarinnar1381.

Chaucer virðist hafa flutt tilKent meðan hann gegndi starfi fjármálastjóra og var skipaðurfriðdómari þar þegar hætta var á innrás frá Frakklandi. Talið er að hann hafi byrjað að skrifaKantaraborgarsögur snemma á9. áratugnum (Pílagrímaleiðin sem persónur hans fylgja á leið sinni tilKantaraborgar liggur gegnum Kent). Hann settist líka áenska þingið fyrir Kent árið 1386. Eftir það ár er ekki lengur minnst á eiginkonu Chaucers, Philippu, í heimildum og talið að hún hafi látist 1387. Hann lifði af umrótið í kringumÁfrýjunarlávarðana þrátt fyrir að hann þekkti marga af þeim sem voru teknir af lífi vegna málsins.

Framkvæmdaeftirlitsmaður og skógarvörður

[breyta |breyta frumkóða]

12. júlí1389 var Chaucer skipaður framkvæmdaeftirlitsmaður konungs, eins konaryfirverkstjóri sem skipulagði öll byggingarverkefni á vegum konungsvaldsins. Engin meiriháttar verk hófust á hans tíma, en hann sá um viðgerðir áWestminster-höll,kapellu heilags Georgs í Windsor-höll, hélt áfram að byggja hafnarbakkann viðLundúnaturn og reisti palla fyrir burtreiðar árið 1390. Þetta var erfitt starf en vel borgað. Hann fékk tvoskildinga á dag, þrisvar sinnum meira en sem fjármálastjóri. Heimildir greina frá því að hann hafi verið rændur og hugsanlega særður þar sem hann var við vinnu sína í september árið 1390 og tæpu ári síðar,17. júní1391, hætti hann. Næstum samstundis, eða22. júní, tók hann við starfi aðstoðarskógarvarðar viðkonungsskógi viðNorth Petherton íSomerset. Þetta var ekki róleg staða, þar sem viðhald var snar þáttur í starfinu, og það voru nokkur tækifæri til að skapa hagnað. Talið er að Chaucer hafi hætt vinnu viðKantaraborgarsögur undir lok aldarinnar.

Andlát

[breyta |breyta frumkóða]
Mynd af Chaucer í eiginhandritiThomas Hoccleve sem yrkir hér um Chaucer sálugan. Eftir óþekktan málara.

Skömmu eftir að stuðningsmanni hans, Ríkharði 2., var steypt af stóli1399 hverfur Chaucer úr heimildum. Talið er að hann hafi látist af óþekktum orsökum25. október1400 en það eru engar öruggar heimildir fyrir þeirri dagsetningu þar sem hún var höggvin í grafhýsi hans sem var reist meira en öld eftir dauða hans.Terry Jones hefur varpað fram þeirri hugmynd að hann hafi verið myrtur af óvinum Ríkharðs, jafnvel að undirlagiHinriks 4., en engar heimildir styðja þá fullyrðingu.

Þegar Hinrik tók við völdum staðfesti hann þau framlög sem Ríkharður hafði veitt Chaucer en í kvæðinu „Chaucer kvartar við pyngju sína“ (Complaint of Chaucer to His Purse) gefur hann í skyn að hann hafi ekki fengið greitt. Síðast er minnst á Chaucer í samtímaheimildum frá5. júní1400 þegar hann fékk greidda einhverja peninga sem hann átti inni. Hann var jarðsettur íWestminster Abbey eins og hann átti rétt á sem starfsmaður konungs og vegna þess að húsið sem hann hafði tekið á leigu29. desember1399 var í eigu kirkjunnar. Árið 1556 voru jarðneskar leifar hans fluttar í íburðarmeira grafhýsi. Hann var fyrsti höfundurinn sem var grafinn íSkáldahorninu í kirkjunni.

Verk

[breyta |breyta frumkóða]

Geoffrey Chaucer er oft nefndur sem upphafsmaður bókmennta áensku.Engilsaxneskar bókmenntir höfðu áður blómstrað áEnglandi en sú þróun stöðvaðist þegarnormannar hernámu landið1066. Eftir það varðfranska (eða franska mállýskananglónormannska nánar tiltekið) tungumál yfirstéttarinnar. Enskan fór fyrst að njóta einhverrar virðingar á14. öld og Chaucer var með þeim fyrstu til að nota eigið móðurmál sem bókmenntamál.

Verk hans byggja greinilega á eldri fyrirmyndum úrfornaldarbókmenntum ogfrönskum ogítölskum bókmenntum, en innihalda engu að síður nýjungar, bæði í stíl, bragfræði og efni, sem áttu eftir að mynda undirstöðu fyrirenskar bókmenntir í kjölfarið. Venjulega er ritferli Chaucers skipt í þrjú tímabil: fyrstu verk hans eru kölluð „frönsku“ verkin og þau sem hann skrifaði eftir 1372 „ítölsku“ verkin.Kantaraborgarsögur skrifaði hann að megninu til eftir1390 á „enska“ tímabilinu.

Franska tímabilið (til 1372)

[breyta |breyta frumkóða]

Talið er að fyrsta verk Chaucers sé,Romaunt of the Rose, ensk þýðing á franska ljóðabálknumRoman de la Rose sem var eitt áhrifamesta ritverkmiðalda. Þýðingin hefur aðeins varðveist að hluta og ekki er ljóst hvort Chaucer hafi tekist að ljúka henni. Prentaða útgáfan frá1532 skiptist í þrjá hluta sem eru málfræðilega mjög ólíkir. Einungis fyrsti hlutinn (línur 1-1705) er eignaður Chaucer með nokkurri vissu, en með annan hlutann ríkir nokkur vafi og talið er öruggt að þriðji hlutinn sé ekki eftir hann. FráRomaunt of the Rose tók Chaucer upp ýmis efnistök, sérstaklega notkundrauma semrammafrásagnar.

VerkiðABC frá sama tíma er líka þýðing úr frönsku álofkvæðiGuillaume de Deguillevilles umMaríu guðsmóður. Nafnið er dregið af upphafsstöfum fyrstu þriggja hendinganna í kvæðinu.

Bók hertogafrúarinnar er fyrsta kvæðið sem er eftir Chaucer sjálfan. Það er tileinkaðBlanche af Lancaster, eiginkonuJóhanns frá Ghent, sem lést árið1368. Sagt er að kvæðið hafi verið samið fyrir minningarathöfn sem prinsinn vildi halda konu sinni á hverju ári. Þetta erdraumkvæði að franskri fyrirmynd sem notarallegóríu til að lýsa sorg ekkilsins.

Helstu verk

[breyta |breyta frumkóða]

Tilvísanir

[breyta |breyta frumkóða]
  1. Roger, Euan; Sobecki, Sebastian (2022a).„Geoffrey Chaucer, Cecily Chaumpaigne, and the Statute of Laborers: New Records and Old Evidence Reconsidered“.Chaucer Review.57 (4):407–437.doi:10.5325/chaucerrev.57.4.0407.S2CID 252866367.

Tenglar

[breyta |breyta frumkóða]
ÁWikiheimild er að finna texta sem tengist
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengistGeoffrey Chaucer.
Sótt frá „https://is.wikipedia.org/w/index.php?title=Geoffrey_Chaucer&oldid=1900572
Flokkar:
Falinn flokkur:

[8]ページ先頭

©2009-2025 Movatter.jp