Gabriel Boric Font (f. 11. febrúar 1986)[1] erchileskur stjórnmálamaður og fyrrverandi stúdentaleiðtogi sem er núverandi forseti Chile.
Boric hefur setið á fulltrúadeild chileska þingsins frá 11. mars 2014 fyrir kjördæmiMagallanes-fylkis. Hann var kjörinn sem óháður frambjóðandi og var endurkjörinn árið 2017 með hæsta fjölda atkvæða af öllum frambjóðendum í Magallanes-fylkinu. Boric vann prófkjör vinstrisinnaða kosningabandalagsinsApruebo Dignidad (ísl. „Ég kýs reisn“) þann 18. júlí 2021 með 60% atkvæðanna og varð þannig forsetaframbjóðandi bandalagsins.
Boric nam við lagadeildHáskólans í Chile og var forseti stúdentafélags háskólans árið 2012.[2][3][4] Hann var meðlimur í stúdentahreyfingunni Sjálfstæða vinstrinu (sp.Izquierda Autónoma) og var framkvæmdastjóri óháðra samtaka undir nafninu Nodo XXI.[5]
Gabriel Boric fæddist árið 1986 íPunta Arenas og er afkróatískum ættum. Faðir hans, Luis Borić, er efnaverkfræðingur og vann hjá ríkisolíufélagi Chile í rúma fjóra áratugi.[6] Móðir hans, María Font, er afkatalónsk-spænskum ættum.[7][8]
Árið 1999 og 2000 tók Boric þátt í endurstofnun Bandalags framhaldsskólanema í Putna Arenas.[12] Eftir að Boric hóf háskólanám gekk hann í stjórnmálahreyfinguna Sjálfstæða vinstrið (sp.Izquierda Autónoma), sem í upphafi nefndist Sjálfstæðir stúdentar (sp.Estudiantes Autónomos). Hann var ráðgjafi Félags laganema við háskólann árið 2008 og varð forseti þess árið 2009. Það ár leiddi Boric 44 daga mótmæli á móti rektornum Roberto Nahum.[13]
Boric bauð sig fram til formennsku Stúdentafélags Háskólans í Chile (FECH) með kosningalistanumCreando Izquierda í kosningum 5.-6. desember árið 2011. Hann var kjörinn forseti stúdentafélagsins með 30,52% á móti sitjandi forsetanumCamilu Vallejo, sem hafði boðið sig fram til endurkjörs með kosningalista ungliðahreyfingar kommúnista.[14]
Á meðan Boric var forseti FECH braust út önnur aldastúdentamótmælanna sem höfðu hafist árið 2011. Hann varð einn helsti talsmaður stúdenta á tíma mótmælanna.[15] Árið 2012 var Boric nefndur á lista yfir hundrað unga leiðtoga í Chile sem birt var í laugardagsblaði fréttablaðsinsEl Mercurio í samstarfi viðAdolfo Ibáñez-háskóla.[16]
Árið 2013 gaf Boric kost á sér í þingkosningum sem óháður frambjóðandi í 60. kjördæmi Magallanes-fylkisins og chileska suðurskautsins. Hann var kjörinn með 15.418 atkvæðum (26,18%), hæsta atkvæðafjölda nokkurs frambjóðanda í fylkinu.[17][18] Fjölmiðlar vöktu athygli á því að Boric hefði náð kjöri án þess að vera meðlimur í neinu kosningabandalagi[19] og hefði þannig sigrast á tvíflokkakerfinu í chileskum kosningum.[20][21][22][23]
Boric var svarinn í embætti sem þingmaður á fulltrúadeild chileska þingsins þann 11. mars 2014. Á fyrsta kjörtímabili sínu sat Boric í þingnefnd fyrir mannréttindi, frumbyggjamál, jaðarsvæði og chileska suðurheimskautið, og atvinnu- og almannatryggingar.
Boric náði endurkjöri á fulltrúadeild þingsins árið 2017 með auknum meirihluta. Hann hlaut 15.417 atkvæði (24,62%), sem var aftur hæsti atkvæðafjöldi nokkurs frambjóðanda í fylkinu.
Boric bauð sig fram í forsetakosningum Chile árið 2021. Þann 18. júlí 2021 vann Boric óvæntan sigur í prófkjöri vinstrisinnaða kosningabandalagsinsApruebo Dignidad á mótiDaniel Jadue, borgarstjóraRecoleta, með um 60% atkvæðanna.[24] Fyrir forkosninguna hafði Jadue haft forskot gegn Boric í skoðanakönnunum.[25] Eftir sigur sinn í prófkjörinu tilkynnti Boric áTwitter að hann myndi vinna ásamt Jadue til að stuðla að sameiningu vinstriaflanna í forsetakosningunum.[26]
Boric vann sigur í annarri umferð forsetakosninganna þann 19. desember 2021 á móti með um 56 prósent atkvæða á móti íhaldsmanninumJosé Antonio Kast. Boric tók við afSebastián Piñera sem forseti Chile árið 2022 og varð yngsti forseti í sögu landsins.[27][28]
↑Farfán, Claudia; Pozo, Andrés (12 júní 2009).„Los verdugos de Nahum“.La Tercera (spænska). Grupo Copesa. Afrit afupprunalegu geymt þann 4. mars 2016. Sótt 4 ágúst 2015.
↑„Elecciones Fech 2012“.FECH – Federación de Estudiantes de la Universidad de Chile (spænska). Afrit afupprunalegu geymt þann 22 júní 2013. Sótt 24 júlí 2015.