Gíbraltar er undir yfirráðumBreta frá því breskur og hollenskur floti náði höfðanum á sitt vald árið1704 íSpænska erfðastríðinu. Tanginn var síðan fenginn Bretum til eignar „að eilífu“ meðUtrecht-sáttmálanum árið1713. Ýmsirkonungar Spánar reyndu að ná höfðanum aftur en án árangurs. Spánverjar gera því formlegt tilkall til Gíbraltar. Íbúar kusu um sameiningu við Spán árið1969 og aftur árið2002 en yfirgnæfandi meirihluti valdi að vera áfram hluti Bretlands í bæði skiptin. Þríhliða viðræður um stjórn svæðisins hófust árið 2006.
Lengi vel var Gíbraltar mikilvæg flotastöðbreska flotans en nú byggist efnahagur landsins aðallega áfjármála- ogferðaþjónustu. Gíbraltar er meðheimastjórn en utanríkis- og varnarmál eru í höndum Breta.
Heiti Gíbraltar er spænsk útgáfaarabíska heitisinsJabal ṬTāriq (جبل طارق) sem merkir Tariq-fjall. Það vísar tilGíbraltarhöfða semÚmajadar nefndu eftir herforingjanumTariq ibn-Ziyad sem leiddi fyrstu herförina yfir sundið árið711, áður en aðalher Úmajada fylgdi á eftir undir stjórn kalífansAl-Walid 1. Eldra latneskt heiti höfðans erMons Calpe, önnur afSúlum Heraklesar.
Árið1160 lét soldáninnAbd al-Mu'min reisa virki og varanlega byggð á höfðanum. Byggðin var nefnd Medinat al-Fath, „Sigurborg“. Þegar bærinn var byggður kom soldáninn þangað og bjó þar í tvo mánuði. Það eina sem enn stendur af virkinu er Lotningarturninn íMárakastalanum. Eftir1274 var bærinn undir stjórnNasrída 1237 og 1374,Marínída 1274 og 1333, ogKastilíu 1309. Árið1462 lagðiJuan Alonso de Guzmán, hertogi afMedina Sidonia, bæinn undir sig.
Eftir sigur Guzmáns tókHinrik 4. af Kastilíu upp titilinnkonungur Gíbraltar og gerði höfðann hluta af mörkinniCampo Llano de Gibraltar. Sex árum síðar fékk hertoginn af Medina Sidonia höfðann aftur og seldi hann árið 1474 til hóps kristnaðra gyðinga fráCórdoba í staðinn fyrir uppihald setuliðs í tvö ár. Eftir það voru þeir hraktir burt. Árið1501 gekk Gíbraltar aftur til spænsku krúnunnar ogÍsabella af Kastilíu gaf bænum skjaldarmerkið sem hann notar enn.
Breski flotinn rak flotastöð á höfðanum sem gegndi mikilvægu hernaðarlegu hlutverki íorrustunni við Trafalgar ogKrímstríðinu. ÞegarSúesskurðurinn var opnaður jókst mikilvægi Gíbraltar enn sem áfangastaðar á sjóleiðinni frá Bretlandi tilEgyptalands. Á síðari hluta 19. aldar voru höfnin og varnarvirkin á höfðanum mikið endurbætt.
Árið 1967 var haldin þjóðaratkvæðagreiðsla um það hvort Gíbraltar skyldi verða hluti Spánar eða áfram undir breskri stjórn. Yfirgnæfandi meirihluti íbúa kaus að vera áfram undir breskri stjórn. Í kjölfarið var gefin út nýstjórnarskrá Gíbraltar þar sem landið er sagt hluti Bretlands. Eftir þetta lokaði Spánn landamærum sínum að Gíbraltar og sleit á öll samskipti við landið. Landamærin voru opnuð aftur að hluta árið 1982 og að fullu árið 1985 eftir inngöngu Spánar íEvrópusambandið.
Árið 2002 var haldin þjóðaratkvæðagreiðsla um aðkomu Spánar að stjórn Gíbraltar þar sem yfirgnæfandi meirihluti (98%) hafnaði henni. Árið 2006 hófust þríhliða viðræður milli Bretlands, Spánar og Gíbraltar sem bundu enda á ýmsar takmarkanir á flugsamgöngum, tollum, fjarskiptum, lífeyri og menningarsamstarfi.
Gíbraltar erbresk hjálenda. Frá1981 hafa íbúar Gíbraltar haft fullgildan breskanríkisborgararétt. Samkvæmt núgildandi stjórnarskrá nýtur Gíbraltar sjálfstjórnar í eigin málum og hefur eigiðþing sem er skipað 17 kjörnum fulltrúum og þingforseta.Ríkisstjórn Gíbraltar er skipuð tíu ráðherrum.Karl 3. Bretakonungur er þjóðhöfðingi enlandstjóri Gíbraltar er fulltrúi hans. Hann ber ábyrgð gagnvartvarnarmálaráðuneyti Bretlands en hefur samráð við þing Gíbraltar. Drottningin sér um skipan dómara í samráði við ríkisstjórnina.
Landsvæði Gíbraltar nær yfir 6,843 ferkílómetra svæði. Landamærin við Spán eru 1,2 kílómetrar að lengd. BærinnLa Línea de la Concepción íCádiz-héraði liggur við landamærin Spánarmegin. Landið Spánarmegin er kallaðCampo de Gibraltar („Gíbraltarsveit“). Strandlengjan við Gíbraltar er 12 kílómetrar á lengd. Gíbraltar skiptist í tvær hliðar: vestan megin er aðalbyggðin,Westside, en austan megin eru byggðirnarSandy Bay ogCatalan Bay. Gíbraltar er ekki með neinar aðskildar stjórnsýslueiningar en skiptist í sjö íbúabyggðir.
Gíbraltar hefur nær engar náttúruauðlindir og lítið af ferskvatnsbrunnum. Þar til nýlega var regnvatni safnað í stórar vatnsþrær inni í klettinum. Tvær borholur sjá byggðinni fyrir vatni en auk þeirra eru tvær afsöltunarstöðvar sem vinna ferskvatn úr sjó.
Gíbraltarhöfði er 426 metrar á hæð og er myndaður úrkalksteini fráJúratímabilinu. Undir höfðanum er mjó strandlengja. Tíundi hluti landsvæðisins er manngerðlandfylling. Á höfðanum eru margir vegir og veggöng sem flest eru rekin afbreska hernum og lokuð almenningi.