Movatterモバイル変換


[0]ホーム

URL:


Fara í innihald
WikipediaFrjálsa alfræðiritið
Leit

Fernando Alonso

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Fernando Alonso
Alonso árið 2017
FæddurFernando Alonso Díaz
29. júlí1981 (1981-07-29) (44 ára)
Oviedo, Asturias, Spain
Formúlu 1 ferill
ÞjóðerniSpánn Spænskur
2025 liðAston Martin-Mercedes
Númer bíls14
Keppnir427 (424 ræsingar)
Heimsmeistaratitlar2 (2005,2006)
Sigrar32
Verðlaunapallar106
Stig á ferli2385
Ráspólar22
Hröðustu hringir26
Fyrsta keppniÁstralski kappaksturinn 2001
Fyrsti sigurUngverski kappaksturinn 2003
Síðasti sigurSpænski kappaksturinn 2013
Seinasta keppniKatar kappaksturinn 2025
2024 sæti9. (70 stig)
Aðrar mótaraðir
  • 2017, 2020
  • 2018-2019
  • 2018-2019
  • 2000
  • 1999
  • IndyCar Series
  • FIA WEC
  • 24 Hours of Le Mans
  • International 3000
  • Euro Open by Nissan
Titlar
  • 2019
  • 1999
  • 24 Hours of Daytona
  • Euro Open by Nissan
Undirskrift

Fernando Alonso Díaz(f. 29. júlí, 1981) er spænskur ökumaður sem keppir íFormúlu 1 meðAston Martin. Alonso hefur tvisvar sinnum unnið heimsmeistartitillinn íFormúlu 1 á árunum 2005 og 2006 meðRenault liðinu.

Á ferli sínum í Formúlu 1 hefur Alonso hefur unnið 32 keppnir, náð 22 ráspólum, 26 hröðustu hringjum og staðið 106 sinnum á verðlaunapalli.

Árið 2018 hætti Alonso í Formúlu 1 og fór að keppa í þolakstri. Hann vannFIA World Endurance Championship (WEC) og24 tíma Le Mans kappaksturinn á árunum 2018 og 2019.[1] Árið 2021 kom hann aftur í Formúlu 1 meðAlpine liðinu.

Yngri ferillinn

[breyta |breyta frumkóða]

Fernando Alonso var aðeins 3 ára gamall þegar hann byrjaði að æfa go-kart. Faðir hans José Luis Alonso bjó til litlar go-kart brautir fyrir son sinn sem hann gat æft sig á. Þegar Fernando Alonso var 8 ára gamall var hann byrjaður að vinna keppnir nálægt heimaborg sinni Oviedo og þegar leið á fór hann einnig að keppa á héraðsmeistaramótaröðum á Spáni. Alonso var 10 ára þegar vann hann héraðsmeistaramótaröðina í go-kart í Asturias héraðinu.[2]

Uppgangur Alonso hélt áfram í go-kart, fjögur ár í röð varð hann spænskur unglingameistari í go-kart(Spanish Junior Karting Championship) frá árinu 1993 til 1996. Árið 1996 var stórt ár fyrir Alonso því hann varð einnig heimsmeistari í go-kart(World Karting Championship).[3] Árið 2000 fékk Fernando Alonso sæti í Formúlu 3000 með belgíska liðinu Team Astromega. Keppt var á 10 brautum víðsvegar um Evrópu og Alonso endaði mótaröðina í 4.sæti með 17 stig og vann eina keppni sem haldinn var á Spa í Belgíu.[4]

Formúla 1

[breyta |breyta frumkóða]

Minardi (2001)

[breyta |breyta frumkóða]

Fernando Alonso fékk sæti hjá Minardi liðinu í Formúlu 1 fyrir tímabilið 2001. Alonso hafði verið prófunarökumaður hjá liðinu árinu á undan. Paul Stoddart var búinn að kaupa Minardi liðið og hann sagði skemmtilega sögu þegar Alonso hjálpaði verkfræðingum liðsins að byggja bílinn fyrir fyrsta kappakstur tímabilsins í Ástralíu.[5] Talið var að Minardi liðið yrði eitt af hægustu liðum tímabilsins. Liðsfélagi Alonso í Minardi var Tarso Marques. Alonso endaði í 12. sæti í Ástralíu sem var vonum framan meðan Marques þurfti að hætta keppni vegna hleðslu vandamála. Alonso varð þrettándi í Malasíu en þurfti að hætta keppni í fimm af næstu sex keppnum. Alonso kláraði þó næstu fjórar keppnir eftir það og náði sínum besta árangri á tímabilinu í þýska kappakstrinum þegar hann endaði tíundi. Þá kláraði hann ekki keppni í Ungverjalandi og hóf ekki keppni í Belgíu vegna gírkassa vandamála. Alonso varð í þrettándi á Ítalíu og varð kominn með nýjan liðsfélaga í síðustu þremur keppnunum þar sem Marques var látinn fara frá Minardi og Alex Yoong tók sætið hans. Alonso kláraði ekki í Bandaríkjunum og í síðustu keppni tímabilsins í Japan byrjaði Alonso átjándi en náði að vinna sig upp í 11. sætið. Alonso fékk ekkert stig fyrir tímabilið en fjölmiðillinn Atlas F1 mat hann sem sjötta besta ökumann tímabilsins.[6]

Renault (2002–2006)

[breyta |breyta frumkóða]

Árið 2002 var Fernando Alonso varaökumaður Renault liðsins. Alonso ákvað það frekar heldur en að vera aðalökumaður liðs í Formúlu 1 í minna liði en Renault á þeim tíma. Alonso vonaðist til að keppa fyrir Renault liðið árið 2003.[7] Jenson Button sem var einn af tveimur aðalökumönnum Renault liðsins árið 2002 fór til Lucky Strike BAR Honda eftir tímabilið og Alonso fékk sæti Button hjá Renault. Jarno Trulli varð liðsfélagi Alonso fyrir tímabilið 2003. Alonso endaði í sjöunda sæti Ástralíu. Alonso var á ráspól í Malasíu og var þá yngsti ökumaður sögunar til að vera á ráspól í Formúlu 1 aðeins 21 árs ára gamall. Alonso hneppti síðan bronsið í keppninni sjálfri.[8] Í Brasilíu varð Alonso aftur þriðji og á San Marino/Imola varð hann sjötti. Á Spáni varð Alonso í öðru sæti og var þar með fyrsti Spánverjinn til að skora stig á heimavelli og var hann einnig fyrsti Spánverjinn til þess að lenda í öðru sæti allt frá árinu 1956 þegar Spánverjinn Alfonso de Portago varð annar á Silverstone.[9] Í næstu 7 keppnum tímabilsins náði Alonso ekki á verðlaunapall en endaði þrisvar sinnum í fjórða sæti í þeim keppnum. Síðar kom að Ungverjalandi og þar náði Alonso ráspól. Í keppninni sjálfri þann 24. ágúst árið 2003 vann Alonso sinn fyrsta sigur í Formúlu 1. Sigurinn var sögulegur þar sem hann var fyrsti Spánverjinn til þess að vinna sigur í Formúlu 1. Þá var einnig yngsti sigurvegari sögunnar það var ekki fyrr en árið 2008 að Sebastian Vettel bætti það met.[10] Alonso varð síðan áttundi á Ítalíu og kláraði ekki keppni í Bandaríkjunum og Japan. Alonso endaði tímabilið í sjötta sæti með 55 stig í heimsmeistaramótinu.

Árið 2004 voru Jarno Trulli og Alonso aftur liðsfélagar í Renault. Alonso byrjaði árið á þriðja sæti í Ástralíu en átti lítinn séns í Ferrari ökumennina sem enduðu í fyrsta og öðru sæti.[11] Alonso fékk stig í næstu fjórum keppnum tímabilsins en kláraði ekki keppni í Mónakó. Alonso var á ráspól í franska kappakstrinum og endaði í keppnina í öðru sæti og var um 8 sekúndum á eftir Michael Schumacher. Schumacher vann á kænsku þar sem hann stoppaði fjórum sinnum á þjónustusvæðinu en Alonso aðeins þrisvar sinnum.[12] Alonso varð síðan í 10. sæti á Silverstone. Í Þýskalandi varð Alonso í þriðja sæti á eftir Michael Schumacher og Jenson Button. En stóra hluta þeirrar keppni þurfti Button að stýra með aðra hönd á stýri vegna þess að ólar á hjálmnum hans losnuðu og þurfti hann því að nota hina höndina til að halda hjálmnum á höfði sér en endaði þrátt fyrir það á undan Alonso.[13] Alonso varð aftur þriðja í Ungverjalandi og kláraði ekki á Ítalíu og Belgíu. Alonso var fjórði í Kína, fimmti í Japan og loks fjórði í Brasilíu. Alonso kláraði heimsmeistaramótið í fjórða sæti með 59 stig samtals.

Árið 2005 var Fernando Alons áfram í Renault og var kominn með nýja liðsfélaga í Giancarlo Fisichella. Í Ástralíu var Alonso þrettándi á ráslínu en endaði keppnina í þriðja sæti. Liðsfélagi hans Fisichella var á ráspól og vann keppnina.[14] Alonso var ráspól hafi í Malasíu, leiddi keppnina frá fyrstu mínútu og sigraði nokkuð örugglega.[15] Í Bahrain var Alonso aftur á ráspól og vann keppnina.[16] Árangurinn hjá Alonso var farinn að skipta máli, það var uppselt á Imola kappaksturinn og viðhorf Spánverja gagnvart Formúlu 1 var að breytast. Formúlan hafði skipt Spánverjum litlu máli áður en Alonso fór að ná árangri.[17] Alonso var annar á ráslínu á eftir Kimi Räikkönen á Imola. Räikkönen þurfti að hætta keppni á níunda hring vegna gírskiptavandamála, Alonso vann keppnina og var það hans þriðji sigur í röð. Alonso náði að halda Michael Schumacher fyrir aftan sig sem var mjög nálægt honum síðustu tólf hringina.[18] Á Spáni var Alonso annar á ráslínu í sinni heimakeppni, það var stappað í stúkunni og það var mikið fagnað þegar Alonso fór framhjá stúkunni.[19] Alonso varð annar í keppninni. Í Mónakó endaði Alonso í 4. sæti.

Í evrópska kappakstrinum á Nürburgring var Alonso sjötti á ráslínu en vann keppnina eftir að Kimi Räikkönen sem var í forystu á síðasta hringnum lenti í því óláni að framhjól brotnaði á bílnum hans á síðasta hringnum. Alonso var þá kominn með 59 stig í heimsmeistaramótinu og 22 stigum á undan næsta manni.[20] Í Kanada kláraði Alonso ekki keppnina og tók ekki þátt í Bandaríska kappakstrinum þar sem aðeins sex bílar tóku þátt vegna Michelin og Bridgestone dekkja fíaskóið.[21] Í Frakklandi vann Alonso sína fimmtu keppni á tímabilinu og varð hann í öðru sæti í Bretlandi. Í Þýska kappakstrinum vann Alonso sinn sjötta sigur á tímabilinu en var lengst af í öðru sæti á eftir Räikkönen sem þurfti að hætta keppni vegna vélarbilunar og þá var aldrei önnur spurning um að Alonso væri að fara að vinna keppnina.[22] Í Ungverjalandi endaði Alonso í 11. sæti og það var eina keppnin á tímabilinu sem Alonso endaði ekki í topp 4 fyrir utan sá Bandaríska. Alonso varð í 2. sæti þrjár keppnir í röð í Tyrklandi, Ítalíu og Belgíu. Í Brasilíu var Alonso á ráspól og var í góðri stöðu um að vera heimsmeistari. Í kappakstrinum komust bæði McLaren bílarnir fram úr Alonso og Alonso endaði þriðji. En þá var ljóst að Alonso var orðinn heimsmeistari ökumanna og var þar með yngsti heimsmeistari sögunnar í Formúlu 1 og þar með lauk sigurhrina Michael Schumacher sem var heimsmeistari fimm árin á undan.[23] Í Japan varð Alonso í þriðja sæti og vann síðan síðustu keppni tímabilsins í Kína. Alonso endaði heimsmeistaramótið með 133 stig og 21 stigi á undan Räikkönen sem var í öðru sæti.

Árið 2006 voru Alonso og Fisichella aftur liðsfélagar hjá Renault. Áður en tímabilið var hafið var búið að staðfesta að Alonso myndi keyra fyrir McLaren árið 2007.[24] Alonso hóf titilvörnina frábærlega þegar hann vann fyrstu keppnina í Bahrain, Michael Schumacher var annar og Räikkönen þriðji.[25] Alonso var annar í Malasíu en sigraði í Ástralíu eftir að hafa verið þriðji á ráslínu. Á Imola var Alonso fimmti á ráslínu og var nálægt því að sigra kappaksturinn en náði ekki fram úr Michael Schumacher sem sigraði.[26] Alonso varð annar í evrópska kappakstrinum og heimavelli á Spáni var Alonso á ráspól. Í keppninni sótti Michael Schumacher hart á Alonso en án árangurs og Alonso fagnaði sigrii. Spánverjar voru sáttir með sigurinn, það voru 130 þúsund áhorfendur á keppninni og Alonso var fagnaður sem þjóðhetju.[27] Í Mónakó sigraði Alonso sína fjórðu keppni á tímabilinu. Þá vann Alonso á Silverstone með yfirburðum, var á ráspól og var einnig með hraðasta hring keppninar. Þá var þetta 200 keppni Renault í Formúlu 1.[28] Í Kanada vann Alonso aftur eftir spennandi keppni við Michael Schumacher og Räikkönen. Þá var Alonso búinn að vinna 5 keppnir í röð. Þá var þetta 100 sigur ökumanns á Michelin dekkjum.[29] Í Bandaríkjunum var Alonso fimmti, var annar í Frakklandi og fimmti í Þýska kappakstrinum.

Í Ungverjalandi var Alonso í 14. sæti á ráslínu en það var mikill rigning á brautinni og Alonso var á Michelin dekkjum sem hentu betur í rigningu heldur en Bridgestone dekkin. Alonso náði að koma sér í fyrsta sæti en þegar það voru 19 hringir eftir bilaði bílinn og Alonso þurfti að hætta keppni og Jenson Button á McLaren sigraði sína fyrstu keppni í Formúlu 1.[30] Í Tyrkneska kappakstrinum varð Alonso annar og hann kláraði ekki keppnina í ítalska kappakstrinum. Í Kína varð Alonso annar á eftir Michael Schumacher og eftir keppnina voru þeir jafnir á stigum með 116 stig. Alonso sigraði í Japan meðan Schumacher datt út vegna vélarbilunar og var Alonso kominn með níu fingur á titillinn. Schumacher þurfti að vonast til þess að vinna í Brasilíu og að Alonso myndi ekki fá stig í keppninni til þess að verða heimsmeistari. Í Brasilíu var Alonso fjórði á ráslínu og Michael Schumacher var tíundi. Í keppninni endaði Alonso annar meðan Michael Schumacher endaði fjórði. Því var ljóst að Fernando Alonso var heimsmeistari annað árið í röð. Einnig var Renault heimsmeistari bílasmiðja.[31] Alonso endaði tímabilið með 134 stig og 13 stigum á undan Michael Schumacher.

McLaren (2007)

[breyta |breyta frumkóða]

Árið 2007 fór Fernando Alonso til McLaren og liðsfélagi hans var nýliðinn Lewis Hamilton. Í fyrstu keppni tímabilsins í Ástralíu var Alonso annar á ráslínu. Alonso endaði líka annar í keppninni þar sem Kimi Raikkönen vann og Hamilton kom á óvart og endaði þriðji í sinni fyrstu keppni.[32]Í Malasíu var Alonso annar á ráslínu og Felipe Massa var fremstur. Alonso komst fram úr Massa í fyrstu beygju í keppninni. Alonso lét forystuna aldrei af hendi og varð 17 og hálfri sekúndu á undan Hamilton sem endaði annar. Fyrsti sigur Alonso fyrir McLaren var í höfn.[33] Alonso var fimmti í Bahrain og þriðji á Spáni í sínu heimalandi. Í Mónakó var Alonso á ráspól og sigraði keppnina annað árið í röð.[34] Í Kanada varð Alonso að sætta sig við sjöunda sætið. Í Bandaríkjunum var Alonso annar á ráslínu á eftir Hamilton. Alonso reyndi nokkrar tilraunir að komast fram úr Hamilton en það tókst ekki, Hamilton vann og Alonso varð annar.[35] Sjöundi endaði Alonso í Frakklandi og var annar á Silverstone. Í Evrópska kappakstrinum í Þýskalandi var Alonso annar á ráslínu á eftir Kimi Raikkönen. Mikill rigning var í keppninni og það þurfti að taka hálftíma hlé vegna hennar í miðri keppni. Felipe Massa komst fram úr Alonso í fyrstu beygju en þegar nokkrir hringir voru eftir snerist það við og Alonso komst fram úr Massa og sigraði keppnina og Massa varð annar. Aðeins 13 bílar kláruðu keppnina af 22 og 9 bílar duttu úr keppni og þar á meðal Raikkönen sem datt út vegna leka vandamála.[36] Í Ungverjalandi var Alonso fjórði og fékk bronsverðlaun í Tyrklandi. Alonso var rétt á undan Hamilton í tímatökunum á Monza og var á ráspól. Alonso vann á Monza með yfirburðum og Hamilton endaði annar og Raikkönen varð þriðji. Massa kláraði ekki vegna bilunar. Kappaksturshelgin hjá McLaren var fullkominn að mati Alonso.[37]

Njósnamálið svokallaða hjá McLaren var í gangi þar sem talið var að McLaren væri að njósna um uppsetningu bíla keppinauta. Sögusagnir voru þær að njósnir hafi farið gegnum tölvupósta á milli Alonso og Pedro de la Rosa.[38] Þann 13. september kom niðurstaða í málið þar sem McLaren fékk háa sekt upp á um 100 milljóna dollara sem var hæsta sekt sögunnar í akstursíþróttum á þeim tíma. McLaren var dæmt úr leik í heimsmeistarakeppni bílasmiðja og endaði þar með 0 stig. Úrskurðurinn hafði ekki áhrif á Alonso og Hamilton og ekkert stig voru dreginn af þeim í ökumanna keppninni.[39] Í Belgíu varð Alonso í þriðja sæti á eftir báðum Ferrari bílunum. Í Japan var Alonso annar á ráslínu en mikil rigning var í keppninni og Alonso klessti á öryggisvegg á 42. hring og datt út. Hamilton vann, Heikki Kovalainen var annar og Räikkönen þriðji. Aðeins tvær keppnir voru eftir og Hamilton var kominn í góða stöðu, 12 stigum á undan Alonso og 17 stigum á undan Räikkönen.[40] Í Kína var Alonso fjórði á ráslínu, Hamilton var á ráspól en datt úr keppni eftir að hann festist í malargryfju, Räikkönen vann keppnina og Alonso varð annar.[41]Þeir þrír áttu því allir möguleikar að vera heimsmeistari í lokakeppninni í Brasilíu. Alonso var aðeins fjórði á ráslínu í Brasilíu. Hamilton var annar á ráslínu en Räikkönen þriðji. Bæði Räikkönen og Alonso komust fram úr Hamilton á fyrstu hringjunum. Räikkönen komst fram úr liðsfélaga sínum Massa í keppninni og vann, Massa varð annar og Alonso varð þriðji. Hamilton missti vélarafl í keppninni og var um tíma í átjándi en endaði sjöundi. Räikkönen varð heimsmeistari á einu stigi með 110 stig en bæði Alonso og Hamilton enduðu með 109 stig. Alonso endaði þriðji í heimsmeistaramótinu en Hamilton í öðru vegna þess að Hamilton lenti oftar í öðru sæti heldur en Alonso.[42]

Renault (2008–2009)

[breyta |breyta frumkóða]

Í desember árið 2007 var staðfest að Fernando Alonso myndi snúa aftur til Renault fyrir tímabilið 2008 og einnig var staðfest að Nelson Piquet Jr. yrði hans liðsfélagi, hann er sonur Nelson Piquet sem var þrefaldur heimsmeistari í Formúlu 1.[43] Tímabilið hófst í Ástralíu þar sem Alonso var aðeins tólfti á ráslínu, Alonso átti erfitt með að keyra bílinn og uppsetning bílsins var ekki nógu stöðug.[44] Alonso átti betri keppni heldur en tímatökur og endaði keppnina í fjórða sæti. Piquet Jr. átti ekki góða helgi og þurfti að hætta keppni eftir 31 hring.[45] Í Malasíu varð Alonso níundi á ráslínu og endaði áttundi í keppninni. Í Bahrain þurfti Alonso að sætta sig við tíunda sætið. Á Spáni átti Alonso góðar tímatökur og varð annar á ráslínu. Í keppninni var Alonso í þriðja sæti þegar það var komið að fyrsta dekkjastoppi og vonaðist hann eftir því að enda sjötti en á hring 35 gaf vélin sig og kláraði því ekki keppnina.[46] Alonso endaði í sjötta sæti í Tyrklandi, tíundi í Mónakó og þá var nokkuð ljóst að Alonso yrði líklega ekki heimsmeistari árið 2008. Alonso var fjórði á ráslínu í Kanada og keyrði hann bílnum sínum á vegg á 42 hring þegar hann reyndi að komast fram úr Nick Heidfeld.[47] Alonso varð áttundi í Frakklandi, sjötti á Silverstone, ellefti í Þýskalandi og fjórði í Ungverjalandi. Í evrópska kappakstrinum sem þá var haldinn í Valencia á Spáni var Alonso tólfti á ráslínu en keppni hans var stutt þar sem Kazuki Nakajima hjá Williams keyrði aftan á hann með þeim afleiðingum að tjónið á bílnum var of mikið til þess að Alonso gæti haldið keppninni áfram.[48]

Hlutirnir fóru að líta betur út fyrir Alonso í enda tímabilsins því í bæði Belgíu og á Ítalíu náði Alonso í fjórða sætið. Í Singapore var Alonso fimmtándi á ráslínu, þrátt fyrir að byrja svona aftarlega vann hann sinn fyrst sigur á árinu og einnig var þetta hans fyrsti verðlaunapallur á árinu. Alonso græddi á því þegar liðsfélagi hans Piquet Jr. keyrði á vegg og Alonso fór fyrstur inn til að taka þjónustustopp og um miðbik keppninnar var Alonso orðinn fremstur og vann.[49] Í Japan var Alonso fjórði á ráslínu og vann keppnina eftir að Lewis Hamilton og Felipe Massa lenda í samstöðu á öðrum hring.[50] Í Kína var Alonso fjórði á ráslínu og endaði á sama stað. Í Brasilíu í síðustu keppni tímabilsins var Alonso fjórði á ráslínu. Alonso endaði annar í keppninni. Keppnin var söguleg þar sem Felipe Massa á Ferrari vann á heimavelli og margir héldu að hann væri orðinn heimsmeistari. Lewis Hamilton varð hins vegar heimsmeistari með því að enda fimmti í keppninni og komst fram úr Timo Glock á síðasta hring keppninnar þótt að Glock var 15 sekúndum á undan honum fyrir síðasta hringinn. Framúraksturinn á Glock gerði það að verkum að Hamilton varð heimsmeistari.[51] Hamilton vann heimsmeistaratitilinn með 98 stigum einu stigi meira heldur en Massa. Alonso endaði í fimmta sæti í heimsmeistaramótinu með 61 stig.

Árið 2009 var Alonso og Nelson Piquet Jr. aftur liðsfélagar á Renault. Í Ástralíu var Alonso tólfti á ráslínu og endaði í sjötta sæti en fékk fimmta sætið að launum þar sem Hamilton var dæmdur úr leik eftir keppnina. Brawn-Mercedes liðið leit best út í byrjun tímabilsins og enduðu í fyrstu tveimur sætunum.[52] Í Malasíu var Alonso ekki í stigum og endaði í ellefti. Í næstu fimm keppnum tímabilsins náði Alonso í stig, var níundi í Kína, áttundi í Bahrain, fimmti á Spáni, sjöundi í Mónakó og tíundi í Tyrklandi. Alonso var tíundi á ráslínu á Silverstone en átti ekki góða keppni þar sem hann endaði fjórtándi og Alonso var ekki sáttur með það. Þá tapaði hann tíma í keppninni í 20 hringi þegar hann var fastur á bakvið Nick Heidfeld sem var með mun meira bensín á sínum bíl heldur en Alonso.[53] Í Þýskalandi vann Mark Webber á Red Bull en Alonso var sjöundi. Í Ungverska kappakstrinum vann Lewis Hamilton sinn fyrsta sigur á árinu en Alonso féll út vegna bilunar.[54] Í evrópska kappakstrinum í Valencia var Alonso sjötti.

Í Belgíu var Alonso þrettándi á ráslínu en það var eitthvað vandamál með vinstra framhjólið hjá honum í keppninni og þegar Alonso tók sitt fyrsta þjónustuhlé ákvað liðið að segja honum að hætta vegna þess. Alonso var vonsvikinn því hann var kominn upp í þriðja sætið í keppninni pg vonaðist til þess að ná sínum fyrsta verðlaunapalli á tímabilinu sem varð ekkert úr.[55] Nelson Piquet Jr. hafði verið rekinn frá Renault liðinu eftir Ungverska kappakstrinum og Romain Grosjean tekið sæti hans hjá Renault. Í september árið 2009 voru Flavio Briatore liðsstjóri Renault liðsins og Pat Symonds tæknistjóri liðsins báðir reknir frá liðinu eftir að Piquet Jr. sakaði þá að um að segja sér að keyra á vegg í Singapore kappakstrinum árið 2008 til þess að Alonso fengi betri stöðu í kappakstrinum sem Alonso síðar vann.[56] Bæði Briatore og Symonds fengu refsingu frá FIA, Briatore mátti ekki mæta á keppnir eða stjórna einhverjum liðum í kappakstrum á vegum FIA í óákveðinn tíma og Symonds fékk svipað bann til fimm ára. Renault liðið slapp við stiga refsingu.[57] Á Ítalíu varð Alonso fimmti. Í Singapore var Alonso sjötti á ráslínu, í keppninni ók hann vel og endaði þriðji sem var hann fyrsti og eini verðlaunapallur á árinu. Einnig var Alonso með hraðasta hring keppninnar.[58] Í Japan var Alonso tíundi, kláraði ekki í Brasilíu og var fjórtandi í Abú Dabí sem var síðasta keppni tímabilsins. Jenson Button á Brawn-Mercedes varð heimsmeistari með 95 stig. Alonso varð níundi í heimsmeistaramótinu með 26 stig.

Ferrari (2010–2014)

[breyta |breyta frumkóða]

Í september árið 2009 var staðfest að Fernando Alonso myndi keyra fyrir Ferrari liðið tímabilið 2010.[59] Felipe Massa var hans liðsfélagi hjá Ferrari. Í Bahrain var Alonso þriðji í tímatökunum og hann var ánægður með að vera kominn með samkeppnishæfan bíl.[60] Alonso vann keppnina og þar með sinn fyrsta sigur fyrir Ferrari liðið. Massa varð annar og Lewis Hamilton á McLaren varð þriðji.[61] Í Ástralíu var Alonso þriðji á ráslínu og endaði fjórði í keppninni. Í Malasíu var rigning í tímatökunum og í Q1 vonaðist Ferrari liðið að brautin myndi þorna sem myndi líða á en það gerðist ekki því það fór að rigna meira, Alonso og Massa komust ekki upp úr Q1 og Alonso var nítjándi í tímatökunum og Massa varð tuttugasti og fyrsti.[62] Keppnin byrjaði ekki vel fyrir Alonso því á upphitunarhring bilaði gírkassinn hjá honum og Alonso átti erfitt með að kúpla niður og upp á milli gíra alla keppnina. Þess vegna þurfti Alonso að bremsa öðruvísi heldur en hann var vanur og taldi þetta vera ein erfiðasta keppni sem hann hafi keyrt á ferlinum. Þegar tveir hringir voru eftir að keppninni bilaði vélin hjá Alonso sem gerði það að verkum að hann þurfti að hætta keppni þegar hann var að berjast um 9 sætið.[63]Þó Alonso kláraði ekki keppnina endaði hann samt í 12. sæti því 7 bílar duttu úr leik, Jarno Trulli var með leka vandamál og kláraði 5 hringjum á eftir, báðir HRT bílarnir voru hægir og kláruðu þremur og fjórum hringjum á eftir fyrsta manni og Lucas di Grassi á Virgin var einnig þremur hringjum á eftir fyrsta manni.[64] Í Kína varð Alonso í fjórða sæti. Á Spáni var Alonso fjórði á ráslínu og í keppninni var hann lengst í keppninni í fjórða sæti en þegar 10 hringir voru eftir fór Sebastian Vettel í sandgryfju og þurfti hann að skipta um dekk og Alonso komst fram úr honum. Alonso komst í annað sætið þegar tveir hringir voru eftir þegar það sprakk dekk hjá Lewis Hamilton sem var á undan Alonso fyrir það. Alonso endaði annar en Mark Webber sigraði keppnina.[65] Í Mónakó varð Alonso sjötti og síðar áttundi í Tyrklandi. Í Kanada fékk Alonso bronsið og varð áttundi í evrópska kappakstrinum í Valencia.

Á Silverstone var Alonso þriðji á ráslínu en í keppninni gekk allt á afturfótunum hjá báðum Ferrari bílunum, Massa þurfti að fá ný dekk eftir fyrsta hring, Alonso fékk refsingu eftir að dómararnir töldu Alonso hafa tekið ólöglega fram úr Robert Kubica og tók hann refsinguna eftir að öryggisbíll var farinn aftur inn eftir að hafa komið inn á brautina, því varð Alonso orðinn síðastur eftir að hann tók refsinguna sína. Alonso endaði keppnina í 14. sæti og Massa var fimmtándi.[66] í Þýskalandi var Alonso annar á ráslínu og komst fram úr Vettel meðan Massa komst fram úr þeim báðum í byrjun. Á 49. hring sagði Ferrari liðið við Massa að hleypa Alonso fram úr sem hann gerði vegna þess að þeir töldu Alonso hraðskreiðari. Alonso vann sína aðra keppni á tímabilinu og Massa varð annar og Vettel þriðji.[67] Í Ungverjalandi vann Alonso silfur. Í Belgíu datt Alonso út eftir að hafa lenti á vegg vegna þess að hann snerist í beygju.[68]Á Ítalíu var Alonso fremstur á ráslínu en var orðinn annar eftir fyrsta hring þegar Jenson Button komst fram úr honum. Í lok 35 hringjar kom Button inn til að skipta um dekk og tapaði tíma því. Alonso skipti um dekk hring seinna og var rétt á undan Button þegar hann kom út. Button komst ekki fram úr Alonso aftur og Alonso vann sína þriðju keppni á tímabilinu. Þetta var fyrsti sigur Ferrari á Monza síðan Michael Schumacher vann árið 2006.[69] Alonso hélt sigurgöngu sinni áfram í Singapore með sigri og varð síðan þriðji í Japan. Í Suður-Kóreu var Alonso þriðji á ráslínu, það var töf á því að byrja keppnina vegna úrhellis, keppnin byrjaði á því að ræsa fyrir aftan öryggisbíl fyrstu fjóra hringina og síðan aftur 13 hringi eftir endurræsingu. Alonso komst fram úr Hamilton eftir ræsingu og Vettel sem var fyrstur þurfti að hætta keppni vegna vélarbilunar. Alonso var þá kominn fremstur og sigraði keppnina.[70] Alonso var kominn í væna stöðu í heimsmeistaramótinu, var efstur þegar aðeins tvær keppnir voru eftir, 11 stigum á undan Webber, 21 stigi á undan Hamilton og 25 stigum á undan Vettel. Í Brasilíu varð Alonso þriðji í keppninni og Vettel sigraði og Webber var annar. Webber var þá bara 8 stigum á eftir Alonso á meðan Vettel var fimmtán stigum á eftir Alonso. Í Abú Dhabí var Alonso þriðji á ráslínu, Vettel á ráspól og Webber var fimmti. Í keppninni tók Webber dekkjastop snemma og Alonso ákvað að gera það líka rétt á eftir Webber. Alonso var þá ennþá á undan Webber en þetta voru afdrífaleg mistök fyrir báða vegna þess að það getur verið erfitt að taka fram úr í Abú Dhabí, Alonso komst ekki fram úr Vitaly Petrov á Renault sem var sjötti og Alonso þurfti því að sætta sig við sjöunda sætið í keppninni og Webber endaði áttundi. Vettel sigraði keppnina og varð heimsmeistari, með fjórum stigum meira heldur en Alonso og 14 stigum á undan Webber.[71] Alonso fannst það vera mistök að fara svona snemma inn að skipta um dekk og líklega hefði hann endar ofar ef hann hefði farið seinna inn.[72]

Árið 2011 voru Massa og Alonso ennþá liðsfélagar hjá Ferrari. Í fyrstu keppni tímabilsins var Alonso fjórði í Ástralíu, varð síðan sjötti í Malasíu og sjöundi í Kína. Í Tyrklandi var Alonso fimmti á ráslínu en í ræsingu komst hann fram úr bæði Nico Rosberg og Lewis Hamilton og endaði þriðji á sínum fyrsta verðlaunapalli á tímabilinu.[73] Alonso tók fimmta sætið á Spáni og í Mónakó var hann fjórði á ráslínu og náði að vinna sig upp í annað sætið. Þegar það var komið að 72. hring var Alonso á betri dekkjum heldur en Vettel sem var fremstur en þá kom rautt flagg og ökumenn gátu skipt um dekk fyrir síðustu hringina og Alonso endaði annar. Alonso taldi sig mögulega geta unnið ef það hefði ekki komið út rautt flagg.[74]Í Kanada var Alonso annar á ráslínu en lenti í samstuði við Jenson Button á 37. hring og lenti á vegg og datt út.[75] Í Evrópska kappakstrinum fékk Alonso silfur. Í Breska kappakstrinum á Silverstone var Alonso þriðji á ráslínu, Alonso komst fram úr Webber og síðan komst hann fram úr Vettel í þjónustuhléum. Alonso sigraði keppnina nokkuð þægilega á Silverstone sem var fyrsti sigur Alonso á tímabilinu.[76] Í Þýskalandi var Alonso fjórði á ráslínu en endaði í öðru sæti eftir að hafa verið um tíð í fyrsta sæti en Hamilton komst aftur fram úr honum og sigraði.[77] Í Ungverjalandi fékk Alonso brons, í Belgíu var hann fjórði, þriðji á Ítalíu og fjórði í Singapúr. Í tímatökunum í Japan var Alonso fimmti en náði að vinna sig upp í annað sætið í keppninni eftir að hafa komist fram úr Vettel, Hamilton og Massa. Button vann en Vettel var þriðji en með því var Vettel orðinn heimsmeistari annað árið í röð þrátt fyrir að það voru fjórar keppnir eftir á tímabilinu.[78] Alonso var fimmti í Suður-Kóreu og þriðji á Indlandi. Í Abú Dhabí endaði Alonso fimmti í tímatökunum og tók silfrið í keppninni eftir að dekk hjá Vettel sprakk á fyrsta hring og einnig komst hann fram úr Button og Webber.[79] Í síðustu keppni tímabilsins í Brasilíu var Alonso fjórði. Hann endaði tímabilið með 257 stig í fjórða sæti í heimsmeistaramótinu og þá 135 stigum á eftir heimsmeistaranum Sebastian Vettel.

Árið 2012 voru Massa og Alonso áfram hjá Ferrari. Í fyrstu keppni tímabilsins í Ástralíu endaði Alonso fimmti. Í Malasíu var Alonso áttundi á ráslínu. Það var mikil rigning í keppninni og Alonso fór með sigur sem var nokkuð óvænt vegna þess hversu aftarlega hann var í byrjun og liðsfélagi hans Massa endaði fimmtándi. Sergio Perez varð annar á Red Bull og var það fyrsti verðlaunapallur Mexíkóa í 41 ár síðan Pedro Rodriguez var annar í hollenska kappakstrinum árið 1971.[80] Í Kína varð Alonso aðeins níundi og tók sjöunda sætið í Bahrain. Á Spáni var Alonso annar á ráslínu og reyndi að vinna keppnina en komst ekki fram úr Pastor Maldonado hjá Williams sem ræsti fremstur á ráslínu og vann keppnina sem var hans fyrsti og eini sigur á ferlinum í Formúlu 1. Þá var þetta einnig fyrsti sigur Williams síðan frá árinu 2004 og liðið hefur ekki unnið sigur síðan þá í Formúlu 1. Kimi Räikkönen hjá Lotus varð þriðji.[81] Í Mónakó fékk Alonso brons og varð fimmti í Kanada. Í Evrópska kappakstrinum í Valencia var Alonso ellefti á ráslínu en kom á óvörum og sigraði keppnina eftir magnaðan kappakstur. Alonso varð kominn í sjöunda sætið á tólfta hring og eftir þjónustuhlé var Alonso orðinn fjórði. Hamilton lenti í veseni í þjónustuhléi og komst þá Alonso í þriðja sæti vegna þess. Þá kom öryggisbíl á hring 30 og eftir að hann fór inn komst Alonso upp í annað sætið þegar hann tók fram úr Roman Grosjean. Vélin fór hjá Vettel sem var fremstur og með því komst Alonso í fyrsta sætið og hélt því til loka. Alonso var kominn með 34 stiga forystu í heimsmeistaramótinu.[82]

Alonso var fremstur á ráslínu á Silverstone og endaði annar á eftir Webber sem sigraði. Í Ungverjalandi endaði Alonso fimmti. Á Spa var Alonso fimmti á ráslínu en datt út á fyrsta hring þegar Grosjean á Lotus var valdur á árekstri þar sem Alonso, Hamilton og Perez duttu allir út ásamt honum.[83] Grosjean var bannað að keppa í Ítalíu vegna árakstursins og fékk um leið 7,5 milljóna króna sekt.[84] Alonso varð bæði þriðji á Ítalíu og í Singapúr. Í Japan datt Alonso út á fyrsta hring eftir að hafa lent í árekstri við bíl Kimi Raikkönen. Vettel sigraði keppnina og var Alonso þá bara með fjögurra stiga forystu á Vettel þegar fimm keppnir voru eftir.[85] Í Suður-Kóreu varð Alonso þriðji meðan Vettel sigraði. Vettel var þá kominn fram úr Alonso í heimsmeistaramótinu. Á Indlandi var Alonso fimmti á ráslínu og sýndi mikinn styrk og náði í silfur. Vettel sigraði sína fjórðu keppni í röð og var þá orðinn 14 stigum á undan Alonso þegar þrjár keppnir voru eftir.[86] Í Abú Dhabi varð Alonso annar meðan Vettel var þriðji. Þá snerist það við í Bandaríska kappakstrinum þar sem Alonso þriðji og Vettel var annar. Í loka keppni tímabilsins í Brasilíu var Alonso sjöundi á ráslínu en Vettel var fjórði á ráslínu. Vettel lenti í samstuði við Bruno Senna á fyrsta hring og varð orðinn síðastur og Alonso var kominn í þriðja sæti á sjötta hring.[87] Keppnin var rigningakeppni, Alonso komst í annað sætið og endaði keppnina þar. Vettel nýtti sér rigninguna með því að komast fram úr bílum og ók frábærlega og endaði sjötti. Það var nóg fyrir Vettel sem varð heimsmeistari þriðja árið í röð.[88] Alonso var aðeins þremur stigum á eftir Vettel í heimsmeistaramótinu með 278 stig og var þó 156 stigum á undan Massa sem endaði sjöundi. Í þriðja sinn þurfti Alonso að bíta í það súra epli að geta orðið heimsmeistari í síðustu keppni tímabilsins en ná því samt ekki sem voru árin 2007, 2010 og 2012 en var auðvitað heimsmeistari 2005 og 2006.

Árið 2013 var bæði Alonso og Massa áfram hjá Ferrari. Í Ástralíu var Alonso fimmti á ráslínu og endaði annar í keppninni en Kimi Raikkonen sigraði sem tók bara tvö þjónustuhlé meðan flestir í toppbaráttunni tóku þrjú þjónustuhlé eins og Alonso gerði.[89] Í Malasíu á fyrsta hring reyndi Alonso að komast í forystu en lenti í samstuði við Vettel og skemmdi framvæng sinn, hann hélt aðeins áfram áður en framvængurinn datt af bílnum sem gerði það að verkum að Alonso skautaðist inn í mölina og þá var keppni hans á enda í Malasíu.[90]Alonso var þriðji á ráslínu í Kína, komst fram úr Raikkonen á fyrsta hring og eftir fimmta hring var hann orðinn fyrstur eftir framúrakstur á Hamilton. Alonso hélt forystunni til enda fyrir utan þegar hann skipti um dekk en komst aftur í forystu stuttu síðar og vann sína fyrstu keppni á tímabilinu.[91] Í Bahrain var Alonso aðeins áttundi. Í spænska kappakstrinum var Alonso fimmti á ráslínu á heimavelli, var þó hraðskreiðastur í kappakstrinum og sigraði nokkuð örugglega. Kimi Raikkonen varð annar og Felipe Massa var þriðji.[92] Keppnin í Mónakó var ekki sérstök hjá Alonso og endaði hann í sjöunda sæti. Alonso átti góða keppni í Kanada, byrjaði sjötti og náði að vinna sig upp í annað sæti, þó átti hann engan séns í Vettel sem sigraði með um 14 sekúnda mun.[93]

Alonso var aðeins níundi í tímatökunum á Silverstone. Í keppninni var mikið um að vera, Hamilton lenti í veseni með dekkin hjá sér og Vettel datt út vegna gírkassa vandræða. Alonso átti stöðuga keppni með nokkrum framúrakstrum og náði að vinna sig upp í þriðja sæti og endaði því á verðlaunapalli.[94] Alonso var fjórði Þýskalandi og fimmti í Ungverjalandi. Alonso átti ekki góðar tímatökur á Spa og var níundi á ráslínu, Alonso átti mjög góða ræsingu og var orðinn fimmti eftir fyrsta hring og vann sig upp í annað sætið sem hann endaði síðan í.[95]Alonso fylgdi því eftir á Ítalíu og í Singapúr þegar hann vann silfur í báðum keppnum. Hins vegar var hann aðeins sjötti í Suður-Kóreu en ekkert var að stöðva Vettel sem var þá búinn að vinna fjórar keppnir í röð. Í Japan endaði Alonso fjórði en með þeim stigum sem hann fékk fyrir keppnina náði Alonso að bæta stigamet Michael Schumacher og var því orðinn stigahæsti ökumaður Formúlu 1 frá upphafi með 1.571 stig sem var tveimur stigum meira heldur en Schumacher.[96] Á Indlandi var Alonso áttundi á ráslínu en lenti í því að tjóna framvæng sinn í fyrsta hring og endaði ellefti og var ekki í stigum. Vettel sigraði sína sjöttu keppni í röð og var því orðinn heimsmeistari fjórða árið í röð þrátt fyrir að það voru þrjár keppnir voru eftir.[97]Í Abú Dhabí og í Bandaríkjunum endaði Alonso fimmti. Í Brasilíu endaði Alonso tímabilið í þriðja sæti í keppninni eftir harða baráttu við Mark Webber um annað sætið. Vettel sigraði sína níundi keppni í röð og jafnaði met Alberto Ascari sem vann níu keppnir í röð árin 1952 og 1953, síðustu sex keppnir 1952 og fyrstu þrjár keppnir 1953.[98] Alonso kláraði tímabilið með 242 stig í öðru sæti í heimsmeistaramótinu en var þó langt á eftir Vettel sem var 155 stigum á undan Alonso. Massa var 130 stigum á eftir Alonso í heimsmeistaramótinu með 112 stig og tók áttunda sætið.

Árið 2014 fer Felipe Massa til Williams meðan Kimi Raikkonen fer frá Lotus til Ferrari. Nýjar reglur breytingar voru gerðar fyrir tímabilið og því mátti búast við að rásröð liðanna myndi breytast vegna þeirra.[99] Í Ástralíu var Alonso fimmti í tímatökunum og endaði fjórði í keppninni. Hamilton hætti á fjórða hring og Vettel hætti á fimmta hring. Raikkonen var í vandræðum með bílinn og endaði sjöundi. Nico Rosberg á Mercedes sigraði keppnina, Kevin Magnussen var annar og Jenson Button var þriðji.[100]Í Malasíu varð Alonso bæði fjórði í tímatökunum og í keppninni. Lewis Hamilton á Mercedes sigraði nokkuð örugglega, Rosberg var annar og Vettel þriðji. Þá var aðeins farið að skýrast að Mercedes liðið hafi komist sterkast út úr nýju reglubreytingunum í byrjun þess.[101] Alonso var aðeins níundi í Bahrain. Þá var komið að Kínverska kappakstrinum þar sem Alonso náði þriðja sætinu eftir að hafa náð að halda báðum Red-Bull bílunum fyrir aftan sig, þetta var fyrsti verðlaunapallur Alonso á tímabilinu en hann átti lítinn séns í Mercedes bílanna þar sem Hamilton varð fyrstur og Rosberg annar.[102] Í næstu sex keppnum náði Alonso ekki á verðlaunapall, var sjötti á Spáni, fjórði í Mónakó, sjötti í Kanada, fimmti í Austurríki, sjötti í Bretlandi og fimmti í Þýskalandi. Alonso var fimmti á ráslínu í Ungverjalandi en átti frábæra keppni og komst fram úr Rosberg og endaði annar og varð líka á undan Hamilton en vissulega byrjaði hann keppnina á þjónustusvæðinu. Daniel Ricciardo sigraði keppnina.[103]

Alonso endaði sjöundi í Belgíu. Á Ítalíu þurfti Alonso að hætta keppni vegna gírkassavandamála á 28. hring. Sem var fyrsta keppnin á tímabilinu sem Alonso náði ekki í stig.[104]Þá var Alonso fjórði í Singapúr. Fyrir Japönsku keppnina var staðfest að Sebastian Vettel myndi keyra fyrir Ferrari fyrir tímabilið 2015.[105] Keppni Alonso endaði snemma þegar að bíll hans virðist hafa slökkt á sér sem var fyrsta hring eftir endurræsingu þegar það þurfti að endurræsa keppnina vegna rigningar.[106] Í næstu þremur keppnum í Rússlandi, Bandaríkjunum og Brasilíu var Alonso í sjötta sæti í þeim öllum. Í fyrsta sinn var gefið tvöföld stig í lokakeppninni í Abú Dhabí og Rosberg átti ennþá möguleika að vinna Hamilton um titillinn um heimsmeistaratitilinn. Alonso átti ekkert sérstaka helgi og endaði í níunda sæti. Rosberg endaði fjórtándi og Hamilton varð fyrstur. Með því tryggði Hamilton sér sinn annan heimsmeistaratitill.[107] Alonso endaði sjötti í heimsmeistaramótinu með 161 stig meðan Kimi Raikkonen endaði í tólfta sæti með 55 stig sem var að eiga erfitt tímabil með nýjum reglubreytingunum. Í desember var orðið staðfest að Fernando Alonso væri að snúa aftur til McLaren og tími hans hjá Ferrari var því lokið að minnsta kosti í bili.[108]

McLaren (2015–2018)

[breyta |breyta frumkóða]

Árið 2015 var Jenson Button hjá McLaren ásamt Alonso. Í Ástralíu tók Alonso ekki þátt af öryggisástæðum vegna þess nokkrum dögum áður í bílprófunum í Barcelona fékk hann heilahristing við að keyra á vegg, af læknisráði var honum ráðlagt að bíða í nokkra daga í viðbót sem hann gerði.[109] Kevin Magnussen varaökumaður McLaren keyrði í Ástralíu í staðinn fyrir Alonso. Ekki byrjaði tímabilið vel fyrir McLaren vegna þess að bílinn bilaði hjá Magnussen fyrir keppnina og gat hann því ekki tekið þátt, þá gekk ekki vel hjá Button sem náði ekki að hamra inn stigi. Í Malasíu sneri Alonso aftur á keppnisbrautina. Það var nokkuð ljóst á McLaren átti eftir líklega að eiga erfitt uppdráttar á þessu tímabili því Button varð sautjándi og Alonso átjándi í tímatökunum. Báðir kláruðu ekki keppnina á sunnudeginum. Alonso reyndi þó að vera jákvæður eftir keppnina og taldi að liðið væri að reyna að leysa vandamálin með nýju vélunum frá Honda.[110] Í Kína varð Alonso tólfti og í Bahrain varð hann ellefti. Alonso var ekki búinn að fá stig í fyrstu fjórum keppnum tímabilsins. Ekki tók betra við í næstu fjórum keppnum þar sem Alonso kláraði ekki keppni. Á Spáni þurfti Alonso að hætta keppni vegna bremsuvandamála.[111] Í Mónakó datt Alonso út úr keppni á 42. hring vegna gírkassavandamála.[112] Í Kanada datt Alonso út á 46. hring og það vegna vélavandræða.[113]

Í Austurríki datt Alonso og Kimi Raikkonen úr keppni vegna samstuðs þeirra á milli.[114] Í Bretlandi fékk Alonso sitt fyrsta stig þegar hann endaði í 10. sæti. Í næstu keppni í Ungverjalandi átti Alonso sína bestu keppni á tímabilinu þegar hann endaði í fimmta sæti eftir að keppnisáætlun hans virkaði með því að stoppa ekki á meðan öryggisbíllinn var á brautinni og skipti síðan yfir á mjúk dekk í restina af keppninni þegar færri hringir voru eftir.[115] Í Belgíu varð Alonso þrettándi og varð átjándi á Ítalíu. Í Singapúr datt Alonso snemma út úr kappakstrinum vegna gírkassa vandamála.[116] Í Japan, Rússlandi og í Bandaríkjunum endaði Alonso ellefti í þessum þremur keppnum í röð. Í Mexíkó kláraði Alonso ekki, sem varð í sjöunda skiptið á tímabilinu sem hann kláraði ekki keppni þó ekki með töldu Ástralíu þar sem hann var ekki með alla helgina. Í Mexíkó hætti Alonso aðeins eftir einn hring vegna vélavandræða og ekki var tími til þess að lagfæra þau í miðri keppni.[117] Alonso var fimmtándi í Brasilíu og varð sautjándi í lokakeppninni í Abú Dabí. Í heildina endaði Alonso með 11. stig og endaði í 17. sæti í heimsmeistaramótinu. Tímabilið var langt frá því að vera hans besta á ferlinum.

Árið 2016 voru Alonso og Jenson Button áfram liðsfélagar hjá McLaren. Í Ástralíu lenti Alonso í hörðum árekstri við Esteban Gutierrez. Bíllinn hjá Alonso var ónýtur eftir áreksturinn en Alonso komst sem betur fer heill á húfi út úr honum.[118]Alonso var þó rifbeinsbrotinn og mátti ekki keppa í Bahrain af læknisráði.[119] Í Kína var Alonso mættur aftur á brautina og varð tólfti í keppninni. Í Rússlandi átti Alonso mjög góða keppni og endaði sjötti þrátt fyrir að þurft að spara eldsneyti stóran hluta af keppninni á sama tíma var Button tíundi. Því voru fyrstu stig McLaren kominn í hús á tímabilinu.[120] Á Spáni þurfti Alonso að hætta á hring 47 vegna vélavandræða þegar hann var berjast um tólfta sætið.[121] Í Mónakó var Alonso tíundi á ráslínu, hann átti góða keppni og endaði í fimmta sæti. Veðurfarið í kappakstrinum skiptist á að vera skin og skúrir, Alonso var ánægður með að hafa náð fimmta sæti en var ekki sérstaklega ánægður með keppnishraða McLaren þó að hlutirnir væru að vera betri frá árinu á undan.[122] Í Kanada endaði Alonso ellefti. Í evrópska kappakstrinum sem var haldinn í Bakú á þessu sinni hætti Alonso þegar nokkrir hringir voru eftir vegna gírkassa bilunar.[123] Alonso varð átjándi í Austurríki og þrettándi á Silverstone. Í Ungverjalandi var Alonso sjöundi á ráslínu og endaði einnig í sama sæti. Keppnin var nokkuð róleg hjá Alonso að hans mati.[124]

Í Þýskalandi varð Alonso tólfti. Í Belgíu var Alonso síðastur á ráslínu eftir að hafa skipt um vél og fékk 35. sæta refsingu fyrir það og Alonso kláraði ekki heilan hring í tímatökunum. Alonso átti frábært upphafsstart og á sjötta hring lenti Kevin Magnussen í hörðum árekstri þegar hann lenti á vegg. Keppnin var stoppuð í nokkurn tíma, í endurræsingunni var Alonso kominn upp í fjórða sætið og kláraði keppnina í sjöunda sæti.[125] Á Ítalíu kláraði Alonso fjórtándi. Alonso átti eftir að eiga prýðis góðar næstu tvær keppnir þegar hann varð sjöundi í Singapúr og fylgdi því eftir í Malasíu þegar hann einnig sjöundi. Í Japan var hann þó bara sextándi. Þá var komið að Bandaríska kappakstrinum í Texas, Alonso var tólfti á ráslínu og vann sig upp um þrjú sæti á fyrsta hring. Í lok keppninnar var Alonso grimmur og komst bæði fram úr Felipe Massa og Carlos Sainz, með því endaði Alonso í fimmta sæti sem var hans besti árangur á tímabilinu.[126]Alonso var þrettándi í Mexíkó, í Brasilíu varð hann tíundi og í Abú Dabí í síðustu keppni tímabilsins var hann einnig tíundi. Alonso endaði með 54. stig og í tíunda sæti í heimsmeistaramótinu sem var betri árangur heldur en árinu á undan.

Árið 2017 varð Stoffel Vandoorne aðalökumaður McLaren ásamt Alonso. Jenson Button var áfram hjá félaginu en tók sér það hlutverk að vera aðstoðarökumaður liðsins. Tímabilið byrjaði ekki vel hjá Alonso í fyrstu keppni tímabilsins í Ástralíu þar sem hann hætti keppni eftir aðeins fimm hringi eftir samstuð við Esteban Ocon.[127] Í Kína var Alonso ekki sáttur með bíllinn í byrjun tímabilsins. Hann náði 13. sæti í tímatökunum það sem hann líkti sig við villidýr til að ná því sæti.[128] Alonso hóf keppnina mjög vel og komst í sjötta sætið á fyrsta hring en þegar það voru um 23 hringir eftir á keppninni bilaði gírkassinn hjá honum og hann þurfti að hætta keppni.[129] Í Bahrain var Alonso fjórtándi, fékk sætið þó hann kláraði ekki vegna vélavandræða. Óheppnin hjá Alonso síðan hann sneri aftur til McLaren fyrir tímabilið 2015 hélt áfram í Rússlandi þar sem Alonso komst ekki af stað í keppnina vegna þess að á upphitunarhringnum lenti bíll hans í rafmagnsbilun.[130] Á Spáni endaði Alonso í tólfti, Alonso tók ekki þátt í kappakstrinum í Mónakó því sömu helgi var hann að keppa í Indy 500, Alonso tókst ekki að klára keppninna í Indy 500 vegna þess á 179. hring af 200 fór vélin að bila. Alonso var samt valin nýliði ársins.[131]

Alonso tók þátt í næstu keppni í Formúlu 1 í Kanada en endaði aðeins sextándi þar. Alonso skoraði sitt fyrsta stig fyrir McLaren á tímabilinu í Bakú þegar hann endaði níundi í kappakstrinum þar sem nokkrir bílar kláruðu ekki.[132] Í Austurríki keyrði Daniil Kvyat á Alonso með þeim afleiðingum að Alonso keyrði utan í Max Verstappen. Kvyat gat haldið áfram en bæði Max Verstappen og Alonso gátu það ekki vegna þess að bílarnir voru of tjónaðir til þess.[133] Á 34. hring Silverstone hætti Alonso keppni vegna en eina vandræðana með bíllinn.[134]Alonso átti sína bestu keppni á tímabilinu í Ungverjalandi þar sem hann endaði sjötti, brautin hentaði McLaren bílnum mjög vel þar sem keppnin snýst meira um að hafa betri væng heldur en mikið vélarafl þar sem McLaren bílinn var með mun minna vélafl heldur en toppliðin á tímabilinu.[135] Á Spa gekk Alonso ekki vel þar sem auðvelt var að komast fram úr honum á löngu beinu köflunum, Alonso hætti keppni vegna vélavandræða, Yusuke Hasegawa hjá Honda fór að efast um að það hafi ekkert verið að vélinni þar sem gögnin frá bílnum sýndi ekki neitt til um bilanir. Alonso svaraði þó fyrir sig þar sem hann var farin að finna fyrir vandræðunum þremur til fjórum hringjum áður en hann hætti.[136] Á Monza kláraði Alonso aðeins sautjándi þrátt fyrir að klára ekki þar sem hann keyrði meira heldur en 90% af keppninni. Í Singapúr datt Alonso út á fyrsta hring þar sem hann lenti í samstuði þar sem hann gat lítið gert þar sem Sebastian Vettel, Max Verstappen og Kimi Räikkönen lentu í samlokuárekstri og Alonso lenti í samstuði vegna þess.[137] Í Malasíu varð Alonso ellefti og hann varð einnig ellefti í Japan. Í Bandaríkjunum þurfti Alonso að hætta keppni í tíunda sinn á tímabilinu þegar Honda vélin gaf sig, Alonso var fyrsti ökumaðurinn hjá McLaren að detta út úr 10 keppnum á tímabili síðan Kimi Räikkönen gerði það sama árið 2002.[138] Tímabilið hjá Alonso var farið að minna á tímabilið 2015 þar sem gekk nánast allt á afturfótunum. Alonso kláraði þó í stigum í síðustu þremur keppnunum, varð tíundi í Mexíkó, áttundi í Brasilíu og níundi í Abú Dabí. Alonso endaði tímabilið með 17. stig þar sem hann endaði fimmtándi í heimsmeistaramótinu.

Árið 2018 var Stoffel Vandoorne áfram hjá McLaren eins og Alonso. Toro Rosso gerði samning Honda um að fá vélar frá þeim og á sama tíma losnuðu McLaren liðið við sínar Honda vélar. McLaren gerði samning við Renault fyrir tímabilið um að fá vélar frá þeim. Árangurinn var strax farinn að vera betri í Ástralíu þar sem Alonso endaði fimmti og Vandoorne níundi.[139] McLaren sýndi einnig góða takta í Bahrain þar sem Alonso endaði sjöundi og Vandoorne varð áttundi.[140] Alonso var að sýna stöðuleika þar sem hann varð sjöundi í Kína og í Bakú. Fyrir spænska kappaksturinn komu McLaren með uppfærslur þar sem þau komu með nýja trjónu.[141] Á Spáni átti Alonso fína keppni var áttundi á ráslínu og endaði á sama stað. Í Mónakó þurfti Alonso að hætta keppni vegna tæknilegra vandamála og sama tíma fannst honum þetta ekki hafa verið skemmtileg keppni.[142] Í Kanada var hans 300. keppni í Formúlu 1, þar þurfti hann að hætta vegna vélarbilunar og varð þetta í sjöunda skiptið sem Alonso náði ekki klára í Kanada á sínum ferli í Formúlu 1.[143] Fyrir franska kappaksturinn sigraði Alonso Le Mans-þolaksturinn með þeim sigri vantaði Alonso bara sigur í Indy 500 til þess að vinna stærstu þrennuna í bíla kappakstri, heimsmeistaratitill í Formúlu 1, sigra Le Mans og sigra Indy 500. Alonso var orðinn 37 ára og var farinn að íhuga næstu skref á ferlinum fyrir árið 2019.[144] Alonso átti ekki góða tímatöku í Frakklandi og varð sextándi, einnig kláraði Alonso ekki keppnina vegna bilunar en fékk sextánda sætið vegna þess að hann kláraði meira en 90% af keppninni.[145]

Í bæði Austurríki og á Silverstone varð Alonso áttundi. Í Þýskalandi lenti Alonso í 16. sæti þó að hann hafi ekki klárað keppnina. Í Ungverjalandi varð Alonso áttundi. Fyrir Belgíska kappakstrinum var staðfest að Alonso væri að hætta í Formúlu 1 og ætlaði að einbeita sér að Indy 500 og Indycar fyrir árið 2019.[146] Þá var einnig staðfest fyrir kappaksturinn að Carlos Sainz landi Alonso tæki sætið hans hjá McLaren á næsta tímabili.[147] Í kappakstrinum í Belgíu tók bíll Alonso á loft og flaug yfir bíl Charles Leclerc á Sauber, báðir duttu úr leik en Alonso hrósaði nýju hjálmhlífnni(halo) sem gerði það að verkum að Leclerc slapp frá alvarlegum meiðslum.[148] Á Ítalíu kláraði Alonso heldur ekki en það var vegna rafmagnsvesen. Í Singapore átti Alonso prýðiskeppni þar sem hann var ellefti á ráslínu og kláraði í sjöunda sæti. Alonso sagði eftir keppnina að þetta hafi verið “smá sigur” fyrir liðið vegna þess að allir 6 ökumennirnir sem voru undan honum voru 6 stigahæstu ökumennirnir á tímabilinu til þessa.[149] Í Rússlandi var Alonso fjórtándi og í Japan varð hann einnig fjórtándi. Í Bandaríkjunum lenti Alonso í árekstri við Lance Stroll á Williams í fyrstu beygju og gat ekki haldið áfram.[150] Alonso féll úr leik í Mexíko þar sem Lewis Hamilton vann sinn fimma heimsmeistaratitill.[151] Í Brasilíu varð Alonso aðeins sautjándi og í síðustu keppni Alonso í Formúlu 1 í bili í Abú Dabí varð Alonso ellefti. Alonso kláraði tímabilið með 50. stig í 11. sæti í heimsmeistaramótinu.

Alpine(2021–2022)

[breyta |breyta frumkóða]

Árið 2021 sneri Alonso aftur í Formúlu 1 eftir tveggja ára fjarveru. Á þessum tveimur árum vann hann m.a. Daytona kappaksturinn í Flórída árið 2019.[152] Sama ár vann hann Le Mans kappaksturinn sem var hans annar sigur í röð í þeim kappakstri.[153] Alonso fékk samning hjá Alpine-Renault liðinu fyrir tímabilið 2021. Esteban Ocon var liðsfélagi Alonso hjá Alpine. Covid-19 faraldurinn hafði áhrif á tímabilið þar sem bæði keppnirnar sem áttu að halda fram í Ástralíu og Japan voru aflýstar.[154] Þó voru haldnar 22 keppnir yfir tímabilið. Fyrsta keppnin var í Bahrain, Alonso datt út á 32 öðrum hring eftir að bremsurnar hans hættu að virka eins og þær ættu að virka.[155] Á Imola á Ítalíu varð Alonso tíundi. Í Portúgal varð Alonso þrettándi í tímatökunum, Alonso var ekki nógu hress með það, þó sýni hann nokkuð góðan keppnishraða og endaði áttundi í kappakstrinum.[156] Á Spáni var Alonso lengi vel í níunda sætinu, Alonso tók bara eitt þjónustuhlé í kappakstrinum sem var mistök eftir á þar sem Alonso endaði sautjándi, dekkin hans voru orðin of slitin og ökumenn komust því auðveldlega fram úr honum. Líklega hefði tveggja stoppa keppnisáætlun verið betri fyrir hann.[157] Í Mónakó varð Alonso þrettándi. Í Aserbaídsjan var Alonso áttundi á ráslínu, hann átti frábæra keppni þegar hann komst fram úr fjórum bílum á síðustu tveimur hringjum keppninnar og endaði sjötti sem var hans besti árangur frá því í Ástralíu árið 2018.[158] Í Frakklandi varð Alonso áttundi. Því næst komu tvær keppnir í röð á Spielberg brautinni. Í fyrri keppninni var Alonso níundi og varð tíundi í þeirri síðari. Á Silverstone var fyrsta sprettkeppnin í Formúlu 1 haldinn. Á fyrsta hring í sprett keppninni komst Alonso upp um sex sæti eftir að hafa byrjað ellefti, Alonso kláraði síðan í sjöunda sætinu.[159] Í kappakstrinum á sunnudeginum, endaði Alonso einnig sjöundi, Alonso taldi helgin vera sú besta hjá Alpine út frá keppnishraða í þeim keppnishelgum sem voru búnar á tímabilinu.[160]

Í Ungverjalandi var Alonso áttundi á ráslínu og liðsfélagi hans Esteban Ocon var níundi. Það var mikill rigning í keppninni og á fyrsta hring duttu fimm bílar úr leik eftir árekstur, því þurfti að rauð flagga keppnina. Þegar keppnin fór aftur á stað á fjórða hring var Ocon orðin annar og Alonso orðin sjöundi, á upphitunarhring eftir rauða flaggið fóru allir inn til að skipta yfir á þurr dekk þar sem brautin var að þorna, Lewis Hamilton var eini sem skipti ekki yfir á þurr dekk, hann byrjaði einn á ráslínu, Hamilton tapaði á því og Ocon komst í fyrsta sætið og hélt því til loka. Alonso átti einnig góða keppni, náði að halda Hamilton lengi fyrir aftan sig en Hamilton komst fram úr á endanum. Alonso endaði fimmti í keppninni en fékk fjórða sætið þar sem Sebastian Vettel var dæmdur úr leik vegna þess að hann var með of lítið bensín eftir í tankinum þegar hann kom yfir endamarkið.[161] Í Belgíu gekk ekki alveg eins vel hjá Alonso þar sem hann endaði ellefti. Í Hollandi var Alonso níundi á ráslínu og vann sig upp í sjötta sætið, hann komst fram úr Carlos Sainz á Ferrari eftir harða baráttu við hann á síðustu hringjunum.[162] Á Monza á Ítalíu var sprettkeppni þar sem Alonso endaði ellefti og í kappakstrinum á sunnudeginum endaði hann í því áttunda. Í Rússlandi átti Alonso góðar tímatökur þegar hann var sjötti hraðasti ökumaðurinn og í kappakstrinum varð hann sjötti.[163] Í Tyrklandi var Alonso aðeins sextándi. Í Texas í Bandaríkjunum hætti Alonso keppni vegna vesen með afturvænginn.[164] Í bæði Mexíkó og Brasilíu varð Alonso níundi. Í Katar varð Alonso fimmti í tímatökunum en var samt þriðji á ráslínu þar sem Max Verstappen og Valtteri Bottas fengu báðir refsingu. Alonso átti góða keppni og barðist um þriðja sætið við Sergio Perez, Alonso hafði betur sem nældi sér í bronsið.[165] Mögnuð staðreynd var að þetta var fyrsti verðlaunapallur Alonso síðan í Ungverjalandi árið 2014, 105 keppnum síðar sem er met yfir lengd tíma á milli verðlaunapalla ökumanns.[166]Alonso varð þrettándi í Sadí Arabíu og í síðustu keppni tímabilsins í Abú Dabí varð Alonso áttundi. Alonso kláraði tímabilið í 10. sætinu í heimsmeistaramótinu með 81 stig. Liðsfélagi hans Ocon var í ellefti með 74 stig.

Árið 2022 var Ocon áfram hjá Alpine liðinu sem og Alonso. Í Bahrain varð Alonso níundi. Í Sadí Arabíu átti Alonso góðar tímatökur þar sem hann endaði sjöundi en í keppninni þurfti hann að hætta keppni vegna vélavandræða.[167] Í Ástralíu varð Alonso aðeins sautjándi. Á Imola átti Alonso mjög góðar tímatökur þar sem hann endaði fimmti. Í sprett kappakstrinum varð Alonso níundi og fékk því ekki stig fyrir hana. Í sunnudags kappakstrinum lenti Alonso í árekstri við Mick Schumacher sem gerði það að verkum að Alonso gat ekki haldið áfram.[168] Í Miami tók Alonso ellefta sætið og í spænska kappakstrinum kláraði Alonso níundi. Í Mónakó klessti Alonso bílnum sínum í Q3, var þó búinn að ná að taka tíma og endaði sjöundi í tímatökunum. Í kappakstrinum varð Alonso einnig sjöundi.[169]Alonso fylgdi því eftir með því að ná sjöunda sætinu í Bakú. Níundi var hann í Kanada. Á Silverstone var Alonso sjöundi á ráslínu og komst upp í fimmta sætið í keppninni og endaði þar sem var hans besti árangur á tímabilinu. Carlos Sainz landi Alonso sigraði keppnina og var hann fyrsti Spánverjinn til að vinna keppni síðan Alonso vann í spænska kappakstrinum árið 2013. Zhou Guanyu velti bílnum sínum í keppninni, sem betur fer var hann heill á húfi.[170] Í Austurríki tók Alonso tíunda sætið. Í Frakklandi sýndi Alonso góða takta þegar hann kláraði keppnina í sjötta sæti.[171] Í Ungverjalandi tók Alonso áttunda sætið. Stuttu eftir keppnina var staðfest að Alonso væri að yfirgefa Alpine liðið, hann var búinn að skrifa undir hjá Aston Martin liðinu fyrir næsta tímabil og var að taka sæti Sebastian Vettel sem væri að hætta í Formúlu 1 eftir tímabilið.[172] Í Belgíu var Alonso sjötti í tímatökunum, Max Verstappen, Charles Leclerc og Esteban Ocon voru allir með refsingu sem gerði það að verkum að Alonso byrjaði þriðji á ráslínu. Alonso var kominn upp í annað sæti á fyrsta hring þegar hann komst fram úr Sergio Perez, Hamilton keyrði á Alonso sem gerði það að verkum að Alonso féll um nokkur sæti, Alonso vann sig upp í sjötta sætið og endaði þar en fékk fimmta sætið þar sem Charles Leclerc fékk fimm sekúnda refsingu. Hamilton tók ábyrgðina á árekstrinum á fyrsta hring og Alonso var sáttur með það eftir keppnina.[173]

Í Ungverjalandi var Alonso þrettándi á ráslínu, Alonso ákvað að byrja á mjúku dekkjunum og tók snemma dekkjaskipti þar sem hann fór yfir á hörðu dekkin. Áætlun hans og liðsins virkaði þar sem Alonso vann sig upp um sjö sæti og kláraði sjötti.[174] Alonso kláraði ekki keppnina á Monza og heldur ekki í Singapúr þar sem vélavandræði var angra hann í báðum keppnum. Í Japan kláraði Alonso sjöundi. Í Bandaríkjunum lenti Alons í árekstri á 22. hring við Lance Stroll á Aston Martin. Bíll Alonso fór á loft og lenti á vegg, þrátt fyrir það gat Alonso haldið áfram en Stroll ekki.[175] Alonso kláraði sjöundi, Haas liðið mótmælti að bíll Alonso væri ekki öruggur þar sem hægri spegill Alonso var laskaður eftir áreksturinn og losnaði síðan alveg síðar í keppninni. Dómarar ákveðu að gefa Alonso þrjátíu sekúnda refsingu, Alonso datt þá úr sjöunda sætinu yfir í það fimmtánda.[176] Alpine liðið var alls ekki sátt með þá ákvörðun, Alpine ákvað að áfrýja dómnum, dómurinn var síðan snúið aftur við af FIA, Alonso fékk þá sjöunda sætið og sex stig fyrir keppnina eftir allt saman og refsingin var því felld úr gildi.[177] Alonso féll úr leik vegna vélavandræða í Mexíkó, fékk nítjánda sætið þar sem hann kláraði meira en 90% af keppninni.[178] Í Brasilíu var Alonso sjöundi í tímatökunum, Alonso átti ekki góða sprettkeppni þar sem hann endaði fimmtándi, ofan á það fékk Alonso fimm sekúnda refsingu fyrir að rekast á liðsfélaga sinn Ocon og þar með kláraði Alonso í því nítjánda með refsingunni.[179] Alonso átti mun betri keppni á sunnudeginum þar sem hann kláraði í fimmta sæti og George Russell á Mercedes sigraði sína fyrstu keppni á ferlinum.[180] Síðasta keppni Alonso fyrir Alpine liðið var í Abú Dabí, sú keppni endaði hjá Alonso á 27. hring þegar hann þurfti að hætta vegna vatnsleka.[181] Alonso kláraði tímabilið með 81. stig í níunda sæti í heimsmeistaramótinu, Ocon liðsfélagi hans kláraði í sætinu fyrir ofan með 91. stig. Alpine liðið varð í 4. sæti í heimsmeistaramóti bílasmiðja.


Tilvísanir

[breyta |breyta frumkóða]
  1. Galloway, James (17. júní 2019).„Fernando Alonso wins Le Mans again and World Endurance title“.Sky Sports. Sótt 23. júlí 2024.
  2. Godfrey, Charles (29. mars 2023).„The Little One With Big Dreams: The Rise Of Fernando Alonso's Go-Karting Career“.PKS Go-Karts. Sótt 8. júlí 2025.
  3. Juan (12. maí 2022).„Fernando Alonso in the Spanish Kart Championship 1997“.Karting Vendrell. Sótt 8. júlí 2025.
  4. „FIA Formula 3000 Int. Championship - Season 2000: Results“.Speedsport Magazine. Sótt 8. júlí 2025.
  5. Seymour, Mike (27. október 2024).'He could perform miracles' – Alonso's debut F1 season remembered by those who were there, ahead of his 400th Grand Prix appearance“.Formula 1. Sótt 28. júlí 2025.
  6. Evans, Ben (26. desember 2024).„Why Fernando Alonso's 2001 debut campaign was the best point-less season in Formula 1 history – opinion“.F1 Oversteer. Sótt 03. ágúst 2025.
  7. „Alonso's hopes for Renault race drive“.Formula 1. 28. júní 2022. Sótt 03. ágúst 2025.
  8. Reuters (24. mars 2003).„Alonso Plays Down Hype after Malaysia“.Autosport. Sótt 9. september 2025.
  9. Reuters (5. maí 2003).„Alonsomania Knocks Football Off Spain's Frontpages“.Autosport. Sótt 10. september 2025.
  10. Montagner, Davide (24. ágúst 2018).„24 August 2003: Fernando Alonso becomes the youngest ever driver to win a Grand Prix“.SUR in English. Sótt 10. september 2025.
  11. „Schumacher romps to Australian win“.Autosport. 7. mars 2004. Sótt 10. september 2025.
  12. Atlas F1 (4. júlí 2004).„Alonso: We did the Best We Could“.Autosport. Sótt 10. september 2025.
  13. Ágúst Ásgeirsson. „Metsigur hjá Schumacher í Hockenheim“.Morgunblaðið B. 92 (202) (2004): 12.
  14. Gray, Will (6. mars 2005).„Fisichella Takes Easy Win at Australian GP“.Autosport. Sótt 10. september 2025.
  15. Smári. „Alonso leiddi frá fyrstu mínútu“.Fréttablaðið. 5 (78) (2005): 54.
  16. Henry Birgir Gunnarsson. „Alonso vann annað mótið í röð“.Fréttablaðið. 5 (89) (2005): 61.
  17. Óskar O. Jónsson. „Ferskur spænskur blær um formúluna“.Dagblaðið Vísir. 95 (85) (2005): 20.
  18. Óskar O. Jónsson. „Þrír í röð hjá Alonso en Schumacher er vaknaður“.Fréttablaðið. 5 (110) (2005): 66.
  19. „Alonso Hails 'Special' Lap“.Autosport. 7. maí 2005. Sótt 10. september 2025.
  20. . „Alonso að stinga af“.Blaðið. 1 (16) (2005): 22.
  21. . „Formúlan logar“.Fréttablaðið. 5 (167) (2005): 19.
  22. Elvar. „Óaðfinnanlegt hjá Alonso og Montoya“.Dagblaðið Vísir. 95 (163) (2005): 22.
  23. „Alonso heimsmeistari“.MBL. 25. september 2005. Sótt 10. september 2025.
  24. Henry Birgir Gunnarsson. „Fernando Alonso fer til McLaren-liðsins árið 2007“.Fréttablaðið. 5 (345) (2005): 91.
  25. Björn. „Alonso hefur titilvörnina vel“.Blaðið. 2 (65) (2006): 30.
  26. „Schumacher breytti keppnisáætlun og tókst að halda Alonso fyrir aftan sig“.MBL. 23. apríl 2006. Sótt 10. september 2025.
  27. „Alonso fagnað sem þjóðhetju eftir öruggan konungssigur í Barcelona“.MBL. 14. maí 2006. Sótt 10. september 2025.
  28. „Sögulegur yfirburðasigur Alonso fyrir Renault í Silverstone“.MBL. 11. júní 2006. Sótt 10. september 2025.
  29. O'Leary, Jaime (25. júní 2006).„Alonso storms to Canadian GP victory“.Autosport. Sótt 10. september 2025.
  30. „Button vinnur jómfrúarsigur í ótrúlegum kappakstri í Búdapest“.MBL. 6. ágúst 2006. Sótt 10. september 2025.
  31. „Alonso heimsmeistari ökuþóra og Renault vann einnig titil bílsmiða“.MBL. 22. október 2006. Sótt 10. september 2025.
  32. „Raikkönen byrjar vel hjá Ferrari“.Vísir.is. 18. mars 2007. Sótt 14. september 2025.
  33. Beer, Matt (8. apríl 2007).„Alonso leads McLaren 1-2 in Malaysia“.Autosport. Sótt 14. september 2025.
  34. „Alonso sigraði í Mónakó annað árið í röð“.Vísir.is. 27. maí 2007. Sótt 14. september 2025.
  35. „Hamilton fyrstur frá upphafi til enda“.MBL. 17. júní 2007. Sótt 14. september 2025.
  36. „Alonso hafði sigur í þýska kappakstrinum“.MBL. 22. júlí 2007. Sótt 14. september 2025.
  37. „Alonso segir helgina fullkomna“.MBL. 9. september 2007. Sótt 14. september 2025.
  38. „McLaren tjáir sig ekki um njósnamálið“.MBL. 7. september 2007. Sótt 14. september 2025.
  39. Elvar Geir Magnússon (13. september 2007).„McLaren fær háa sekt“.Vísir.is. Sótt 14. september 2025.
  40. „Hamilton vann - Alonso fór útaf“.MBL. 30. september 2007. Sótt 14. september 2025.
  41. „Räikkönen fyrstur og titilbaráttan galopin upp á nýtt“.MBL. 7. október 2007. Sótt 14. september 2025.
  42. Eiríkur Stefán Ásgeirsson (21. október 2007).„Kimi Raikkönen heimsmeistari“.Vísir.is. Sótt 14. september 2025.
  43. „Alonso og Piquet aka fyrir Renault“.MBL. 10. desember 2007. Sótt 28. september 2025.
  44. „Australia Saturday quotes: Renault“.Autosport. 15. mars 2008. Sótt 28. september 2025.
  45. Elizalde, Pablo (16. mars 2008).„Pleased Alonso urges Renault to push“.Autosport. Sótt 28. september 2025.
  46. Elizalde, Pablo (27. apríl 2008).„Alonso upbeat despite retirement“.Autosport. Sótt 28. september 2025.
  47. Elizalde, Pablo (8. júní 2008).„Alonso rues 'big' strategy mistake“.Autosport. Sótt 28. september 2025.
  48. „Massa ók eins og meistari“.MBL. 24. ágúst 2008. Sótt 28. september 2025.
  49. „Lánið lék við Alonso“.MBL. 28. september 2008. Sótt 28. september 2025.
  50. Benson, Andrew (12. október 2008).„Spanish Grand Prix“.BBC Sport. Sótt 28. september 2025.
  51. Sveinn Waage. „Takk, Timo“.Dagblaðið Vísir. 98 (204) (2008): 17.
  52. Beer, Matt (29. mars 2009).„Button heads Brawn one-two in Australia“.Autosport. Sótt 28. september 2025.
  53. O'Leary, Jamie (21. júní 2009).„Alonso urges Renault to improve“.Autosport. Sótt 28. september 2025.
  54. „Hamilton vinnur sinn fyrsta sigur sem heimsmeistari“.MBL. 26. júní 2009. Sótt 28. september 2025.
  55. Elizalde, Pablo (30. ágúst 2009).„Alonso laments missed podium chance“.Autosport. Sótt 28. september 2025.
  56. „Renault rak framkvæmdarstjórann vegna svindlmáls“.Visir.is. 16. september 2009. Sótt 28. september 2025.
  57. Noble, Jonathan (21. september 2009).„Renault given two-year suspended ban“.Autosport. Sótt 28. september 2025.
  58. „Hamilton öruggur eftir að keppinautar voru víttir“.MBL. 27. september 2009. Sótt 28. september 2025.
  59. „Ferrari staðfestir samning Alonso“.Vísir.is. 30. september 2009. Sótt 12. október 2025.
  60. Noble, Jonathan og Elizalde, Pablo (13. mars 2010).„Alonso happy to confirm Ferrari pace“.Autosport. Sótt 12. október 2025.
  61. Óskar Ófeigur Jónsson (14. mars 2010).„Fernando Alonso vann Barein-kappaksturinn - tvöfalt hjá Ferrari“.Vísir.is. Sótt 12. október 2025.
  62. Elizalde, Pablo (3. apríl 2010).„Alonso downplays Q1 exit in Sepang“.Autosport. Sótt 12. október 2025.
  63. Elizalde, Pablo (4. apríl 2010).„Alonso bemoans 'hardest race ever'.Autosport. Sótt 12. október 2025.
  64. Beer, Matt (4. apríl 2010).„Vettel leads dominant Red Bull one-two“.Autosport. Sótt 12. október 2025.
  65. „Webber ósnertanlegur“.MBL. 9. maí 2010. Sótt 12. október 2025.
  66. „Ferrari segir „bölvun" hvíla á liðinu“.MBL. 11. júlí 2010. Sótt 12. október 2025.
  67. Óskar Ófeigur Jónsson (25. júlí 2010).„Tvöfalt hjá Ferrari - Felipe Massa hleypti Fernando Alonso fram úr“.Vísir.is. Sótt 12. október 2025.
  68. „Hamilton með allt í hendi sér“.MBL. 29. ágúst 2010. Sótt 25. október 2025.
  69. Weaver, Paul (12. september 2010).„Fernando Alonso wins over Ferrari fans with Italian grand prix win“.The Guardian. Sótt 25. október 2025.
  70. „Alonso vann eftir stormasama keppni“.Vísir.is. 24. október 2010. Sótt 25. október 2025.
  71. „Vettel heimsmeistari - sá yngsti í sögu formúlu-1“.MBL. 14. nóvember 2010. Sótt 25. október 2025.
  72. „Alonso svekktur eftir mistök Ferrari“.Vísir.is. 14. nóvember 2010. Sótt 25. október 2025.
  73. „Mistök Hamilton reyndust dýrkeypt“.Vísir.is. 8. maí 2011. Sótt 25. október 2025.
  74. O'Leary, Jamie (29. maí 2011).„Alonso rues Monaco red flags“.Autosport. Sótt 26. október 2025.
  75. Schatten, Rob (12. júní 2011).„Alonso says 'everything went wrong'.Autosport. Sótt 26. október 2025.
  76. „Alonso sigrar í Silverstone“.MBL. 10. júlí 2011. Sótt 26. október 2025.
  77. „Herfræði Hamiltons best“.MBL. 24. júlí 2011. Sótt 26. október 2025.
  78. Beer, Matt (9. október 2010).„Vettel clinches second F1 title as Button wins the Japanese Grand Prix“.Autosport. Sótt 12. október 2025.
  79. „Hamilton: Sigur er góður fyrir sálina“.Vísir.is. 13. nóvember 2011. Sótt 25. október 2025.
  80. Schatten, Rob (26. mars 2012).„Perez ends Mexico's 41-year wait for a podium“.Autosport. Sótt 8. nóvember 2025.
  81. „Maldonado í hóp sigurvegara“.MBL. 13. maí 2012. Sótt 8. nóvember 2025.
  82. Benson, Andrew (24. júní 2012).„European GP: Fernando Alonso wins brilliantly in Valencia“.BBC Sport. Sótt 8. nóvember 2025.
  83. F1 Legend (15. september 2013).„F1 2012 Belgium Spa Start Crash Onboard“.Youtube. Sótt 8. nóvember 2025.
  84. Birgir Þór Haraldsson (2. september 2012).„Grosjean bannað að keppa á Ítalíu“.Vísir.is. Sótt 8. nóvember 2025.
  85. Birgir Þór Haraldsson (7. október 2012).„Vettel vann japanska kappaksturinn en Alonso féll úr leik“.Vísir.is. Sótt 8. nóvember 2025.
  86. „Vettel með fjórða sigurinn í röð“.MBL. 28. október 2012. Sótt 8. nóvember 2025.
  87. Birgir Þór Haraldsson (25. nóvember 2012).„Alonso heimsmeistari í augnablikinu“.Vísir.is. Sótt 8. nóvember 2025.
  88. Birgir Þór Haraldsson (25. nóvember 2012).„Vettel heimsmeistari í Formúlu 1 2012“.Vísir.is. Sótt 8. nóvember 2025.
  89. Beer, Matt (17. mars 2013).„Australian GP: Raikkonen takes emphatic victory in season opener“.Autosport. Sótt 9. nóvember 2025.
  90. Beer, Matt (24. mars 2013).„Malaysian GP: Sebastian Vettel beats Mark Webber amid team row“.Autosport. Sótt 9. nóvember 2025.
  91. „Alonso málaði bæinn rauðan“.MBL. 14. apríl 2013. Sótt 9. nóvember 2025.
  92. Birgir Þór Haraldsson (12. maí 2013).„Alonso vann sannfærandi sigur á heimavelli“.Vísir.is. Sótt 9. nóvember 2025.
  93. Birgir Þór Haraldsson (9. júní 2013).„Enginn átti séns í Vettel“.Vísir.is. Sótt 9. nóvember 2025.
  94. Beer, Matt (30. júní 2013).„British GP: Rosberg wins chaotic race amid tyre drama“.Autosport. Sótt 9. nóvember 2025.
  95. Rúnar Jónsson (25. ágúst 2013).„Frábær sigur hjá Vettel á Spa“.Vísir.is. Sótt 9. nóvember 2025.
  96. Óskar Ófeigur Jónsson (13. október 2013).„Alonso bætti stigamet Schumacher“.Vísir.is. Sótt 9. nóvember 2025.
  97. Guðmundur Marinó Ingvarsson (27. október 2013).„Vettel heimsmeistari fjórða árið í röð“.Vísir.is. Sótt 9. nóvember 2025.
  98. „Aftur met hjá Vettel“.MBL. 24. nóvember 2013. Sótt 9. nóvember 2025.
  99. Leopold (14. mars 2014).„2014 F1 árstíðarreglur breytingar skýringar myndband“.F1 Fansite. Sótt 9. nóvember 2025.
  100. Kristinn Ásgeir Gylfason (16. mars 2014).„Rosberg sigraði í Ástralíu - Vettel kláraði ekki“.Vísir.is. Sótt 9. nóvember 2025.
  101. „Hamilton sér á parti“.MBL. 30. mars 2014. Sótt 9. nóvember 2025.
  102. Benson, Andrew (20. apríl 2014).„Lewis Hamilton eases to victory in China GP for Mercedes“.BBC Sport. Sótt 9. nóvember 2025.
  103. Galloway, James (27. júlí 2014).„2014 Hungarian GP: Daniel Ricciardo wins epic race as Lewis Hamilton surges to third“.Sky Sports. Sótt 9. nóvember 2025.
  104. Galloway, James (27. júlí 2014).„2014 Hungarian GP: Daniel Ricciardo wins epic race as Lewis Hamilton surges to third“.Sky Sports. Sótt 9. nóvember 2025.
  105. „Vettel til Ferrari“.MBL. 4. október 2014. Sótt 9. nóvember 2025.
  106. Kristinn Ásgeir Gylfason (5. október 2014).„Lewis Hamilton vinnur í Japan“.Vísir.is. Sótt 9. nóvember 2025.
  107. Kristinn Ásgeir Gylfason (23. nóvember 2014).„Lewis Hamilton er heimsmeistari ökumanna“.Vísir.is. Sótt 9. nóvember 2025.
  108. Puigdemont, Oriol (11. desember 2014).„McLaren confirms Alonso's return for 2015 Formula 1 season“.EL PAÍS. Sótt 9. nóvember 2025.
  109. „Alonso ekki með í Melbourne“.MBL. 3. mars 2015. Sótt 1. janúar 2026.
  110. Elizalde, Pablo (30. mars 2015).„Fernando Alonso: McLaren F1 car's Malaysian GP pace 'nice surprise“.Autosport. Sótt 1. janúar 2026.
  111. Barretto, Lawrence (10. maí 2015).„Spanish GP: Mercedes' dominant Nico Rosberg ends F1 win drought“.Autosport. Sótt 18. janúar 2026.
  112. Kristinn Ásgeir Gylfason (24. maí 2015).„Rosberg vann í Mónakó þriðja árið í röð“.Vísir.is. Sótt 18. janúar 2026.
  113. Kristinn Ásgeir Gylfason (7. júní 2015).„Lewis Hamilton fyrstur í mark í Kanada“.Vísir.is. Sótt 18. janúar 2026.
  114. Formula 1 (1. júlí 2020).„Alonso Crashes On Top of Raikkonen - All The Angles“.Youtube. Sótt 18. janúar 2026.
  115. Parkes, Ian (26. júlí 2015).„Fernando Alonso says fifth place in Hungarian GP 'unbelievable'.Autosport. Sótt 18. janúar 2026.
  116. Benson, Andrew (20. september 2015).„Sebastian Vettel wins as Lewis Hamilton retires in Singapore“.BBC Sport. Sótt 18. janúar 2026.
  117. Kristinn Ásgeir Gylfason (1. nóvember 2015).„Nico Rosberg vann í Mexíkó“.Vísir.is. Sótt 18. janúar 2026.
  118. Anton Ingi Leifsson (20. mars 2015).„Sjáðu rosalegan árekstur Alonso og Gutierrez“.Vísir.is. Sótt 18. janúar 2026.
  119. Kristinn Ásgeir Gylfason (31. mars 2016).„Alonso fær ekki að keppa eftir áreksturinn rosalega um síðustu helgi“.Vísir.is. Sótt 18. janúar 2026.
  120. Kristinn Ásgeir Gylfason (4. maí 2016).„Bílskúrinn: Rosberg einmana í Rússlandi“.Vísir.is. Sótt 18. janúar 2026.
  121. San Diego Union-Tribune (15. maí 2016).„Fernando Alonso pulls out of Spanish Grand Prix“.San Diego Union-Tribune. Sótt 18. janúar 2026.
  122. „Ánægður með sætið en ekki bílhraðann“.MBL. 29. maí 2016. Sótt 18. janúar 2026.
  123. Kristinn Ásgeir Gylfason (19. júní 2016).„Rosberg: Ég og bíllinn vorum eitt í dag“.Vísir.is. Sótt 18. janúar 2026.
  124. Saunders, Nate (24. júlí 2016).„Fernando Alonso: Hungary our best weekend of 2016“.ESPN. Sótt 18. janúar 2026.
  125. „20. sigur Rosberg“.MBL. 28. ágúst 2016. Sótt 18. janúar 2026.
  126. „Alonso sýndi mátt sinn“.MBL. 24. október 2016. Sótt 18. janúar 2026.
  127. Kristinn Ásgeir Gylfason (26. mars 2017).„Sebastian Vettel vann í Ástralíu“.Vísir.is. Sótt 19. janúar 2026.
  128. „Ég keyrði eins og villidýr“.MBL. 8. apríl 2017. Sótt 19. janúar 2026.
  129. „Hamilton sneri dæminu við“.MBL. 9. apríl 2017. Sótt 19. janúar 2026.
  130. Kristinn Ásgeir Gylfason (30. apríl 2017).„Valtteri Bottas vann í Rússlandi“.Vísir.is. Sótt 19. janúar 2026.
  131. Eiríkur Stefán Ásgeirsson (29. maí 2017).„Alonso kláraði ekki í Indy 500“.Vísir.is. Sótt 19. janúar 2026.
  132. Clayton, Matthew (26. júní 2017).„What happened at the Azerbaijan Grand Prix?“.Red Bull. Sótt 19. janúar 2026.
  133. „Bottas stóðst sókn Vettels“.MBL. 9. júlí 2017. Sótt 19. janúar 2026.
  134. Clayton, Matthew (17. júlí 2017).„What happened at the British Grand Prix?“.Red Bull. Sótt 19. janúar 2026.
  135. Kristinn Ásgeir Gylfason (3. ágúst 2017).„Bílskúrinn: Varnarsigur í Ungverjalandi“.Vísir.is. Sótt 19. janúar 2026.
  136. Sanders, Nate (31. ágúst 2017).„Fernando Alonso refutes claim he retired for no reason at Belgian GP“.ESPN. Sótt 19. janúar 2026.
  137. „Martröð í myrkrinu“.MBL. 17. september 2017. Sótt 19. janúar 2026.
  138. Elizalde, Pablo (22. október 2017).„Alonso "couldn't believe" failure after "sublime" performance“.Motorsport. Sótt 19. janúar 2026.
  139. Bragi Þórðarson (25. mars 2018).„Uppgjör eftir Ástralíu: Vettel sýndi snilli sína“.Vísir.is. Sótt 20. janúar 2026.
  140. Bragi Þórðarson (9. apríl 2018).„Uppgjör: Vettel fór á kostum á ónýtum dekkjum“.Vísir.is. Sótt 20. janúar 2026.
  141. „Ný róttæk trjóna“.MBL. 10. maí 2017. Sótt 20. janúar 2026.
  142. Autocar (27. maí 2018).„F1 2018: Ricciardo wins in Monaco despite technical issue“.Autocar. Sótt 20. janúar 2026.
  143. Bragi Þórðarson (12. júní 2018).„Uppgjör eftir Kanada: Kominn tími á breytingar“.Vísir.is. Sótt 20. janúar 2026.
  144. Kjartan Kjartansson (24. júní 2018).„Fernando Alonso kominn með annað augað vestur um haf“.Vísir.is. Sótt 20. janúar 2026.
  145. „Lélegasta tímataka McLaren“.MBL. 23. júní 2018. Sótt 20. janúar 2026.
  146. Bragi Þórðarson (14. ágúst 2018).„Alonso hættir í Formúlu 1“.Vísir.is. Sótt 20. janúar 2026.
  147. Bragi Þórðarson (17. ágúst 2018).„Sainz tekur við stýrinu af Alonso“.Vísir.is. Sótt 20. janúar 2026.
  148. „Hrósa höfuðhlífinni“.MBL. 28. ágúst 2018. Sótt 20. janúar 2026.
  149. Rencken, Dieter og Wood, Will (16. september 2018).„Alonso: Seventh a "small win" for McLaren“.Racefans. Sótt 20. janúar 2026.
  150. Jacobs, Caleb (22. október 2018).„Fernando Alonso Hits Out at F1 'Amateurs' After First Lap Crash at 2018 USGP“.The Drive. Sótt 20. janúar 2026.
  151. „Styttist í Schumacher“.MBL. 28. október 2018. Sótt 20. janúar 2026.
  152. „Alonso sigrar í Daytona“.MBL. 27. janúar 2019. Sótt 29. janúar 2026.
  153. „Alonso sigrar annað árið í röð í Le Mans“.MBL. 16. júní 2019. Sótt 29. janúar 2026.
  154. Galloway, James (18. ágúst 2021).„Japanese Grand Prix cancelled for 2021 due to ongoing Covid-19 issues in the country“.Sky Sports. Sótt 29. janúar 2026.
  155. „Alonso says debris caused brake failure that curtailed 'fun' Formula 1 return“.Formula 1. 28. mars 2021. Sótt 29. janúar 2026.
  156. „Alonso says 'anger' stemming from poor qualifying inspired him to second points finish for Alpine“.Formula 1. 2. maí 2021. Sótt 30. janúar 2026.
  157. „Alonso blames 'very optimistic' Alpine strategy for late plunge to 17th at home race“.Formula 1. 9. maí 2021. Sótt 30. janúar 2026.
  158. „Fernando magic in Baku secures his best result in Formula 1 comeback“.Clio Rally. 6. júní 2021. Sótt 30. janúar 2026.
  159. „Alonso says Sprint 'felt like a marathon' after brilliant start helps him claim P7 on the grid for British GP“.Formula 1. 17. júlí 2021. Sótt 30. janúar 2026.
  160. „Alonso says British GP was Alpine's 'strongest weekend on race pace' as he nets fifth straight points finish“.Formula 1. 18. júlí 2021. Sótt 30. janúar 2026.
  161. „Ocon claims shock maiden victory in action-packed Hungarian Grand Prix, as Vettel disqualified from P2“.Formula 1. 1. ágúst 2021. Sótt 30. janúar 2026.
  162. 'I was not in control of the car' – Alonso says he got lucky as he chased Sainz in closing stages at Zandvoort“.Formula 1. 5. september 2021. Sótt 30. janúar 2026.
  163. Collantine, Keith og Rencken, Dieter (27. september 2021).„The grey area Alonso exploited with his first-lap corner-cut at Sochi“.Race Fans. Sótt 30. janúar 2026.
  164. „Verstappen brilliantly holds off Hamilton to seal victory at COTA and extend championship lead“.Formula 1. 24. október 2021. Sótt 30. janúar 2026.
  165. Benson, Andrew (21. nóvember 2021).„Lewis Hamilton closes on Max Verstappen in title with Qatar Grand Prix win“.BBC Sport. Sótt 30. janúar 2026.
  166. Kelly, Sean (21. nóvember 2021).„Qatar Grand Prix Facts & Stats: Seven years on, Alonso sets new podium record“.Formula 1. Sótt 30. janúar 2026.
  167. „Fernando Alonso puzzled by loss of power“.Formula 1. 27. mars 2021. Sótt 1. febrúar 2026.
  168. Barretto, Lawrence (25. apríl 2021).„6 Winners and 5 Losers for the 2022 Emilia Romagna Grand Prix: Who made the best of the mixed conditions?“.Formula 1. Sótt 1. febrúar 2026.
  169. „Alonso happy with P7 finish in Monaco after 'tricky race' but Ocon left frustrated by 5s penalty“.Formula 1. 30. maí 2021. Sótt 1. febrúar 2026.
  170. Árni Jóhannsson (3. júlí 2022).„Sainz náði í fyrsta sigur sinn í Formúlu 1 á Silverstone eftir frábæran kappakstur“.Vísir.is. Sótt 1. febrúar 2026.
  171. „Heimsmeistarinn sigraði í Frakklandi“.MBL. 24. júlí 2022. Sótt 1. febrúar 2026.
  172. Valur Páll Eiríksson (1. ágúst 2022).„Fyrrum heimsmeistarinn tekur sæti Vettels“.Vísir.is. Sótt 1. febrúar 2026.
  173. 'Frustrated' Alonso relieved to finish Belgian GP strongly, as Ocon praises 'flying' car for recovery from P16“.Formula 1. 29. ágúst 2022. Sótt 1. febrúar 2026.
  174. 'Aggressive early stop' key to Alonso's rise from P13 on the grid to sixth as Alpine extend advantage over McLaren“.Formula 1. 5. september 2022. Sótt 1. febrúar 2026.
  175. Formula 1 (23. október 2022).„Fernando Alonso And Lance Stroll Collide!“.Youtube. Sótt 1. febrúar 2026.
  176. „Alonso dropped out of points following Haas protest at United States Grand Prix“.Formula 1. 24. október 2022. Sótt 1. febrúar 2026.
  177. „Alonso's US Grand Prix penalty overturned after Alpine appeal“.Formula 1. 28. október 2022. Sótt 1. febrúar 2026.
  178. Benson, Andrew (30. október 2022).„Mexico City Grand Prix: Max Verstappen wins from Lewis Hamilton“.BBC Sport. Sótt 1. febrúar 2026.
  179. „Alonso handed 5-second penalty for clash with team mate Ocon in Sao Paulo Sprint“.Formula 1. 12. nóvember 2022. Sótt 1. febrúar 2026.
  180. Hjörtur Leó Guðjónsson (13. nóvember 2022).„Russell tryggði sér sinn fyrsta sigur á ferlinum“.Vísir.is. Sótt 1. febrúar 2026.
  181. 'It's a little bit sad to finish like that' – Alonso sets sights on 'good chapter' with Aston Martin as time at Alpine ends in retirement“.Formula 1. 20. nóvember 2022. Sótt 1. febrúar 2026.

Heimildir

[breyta |breyta frumkóða]
Sótt frá „https://is.wikipedia.org/w/index.php?title=Fernando_Alonso&oldid=1944464
Flokkar:

[8]ページ先頭

©2009-2026 Movatter.jp