Fagurskinna eðaNoregs konunga tal erkonungasaga sem fjallar umNoregskonunga frá Hálfdani svarta (um 850) fram til 1177, þegarSverrir Sigurðarson kom til sögunnar. Sagan er talin skrifuð á árabilinu1220–1230.
Fagurskinna var varðveitt í tveimur skinnhandritum í Háskólabókasafninu íKaupmannahöfn, sem brunnu1728. Textinn er þó varðveittur því að þrjú eftirrit höfðu verið gerð eftir hvoru handriti. Skinnhandritin voru að vísu bæði óheil, og þó að þau séu lögð saman eru tvær eyður í sögunni. Hún er því ekki varðveitt í heild.Þormóður Torfason sagnaritari konungs, fékk handritin lánuð til Noregs um 1680 og notaði þau við ritun Noregs-sögu sinnar. Honum þótti annað handritið (A-handritið) svo fallegt eða í svo fögru bandi, að hann gaf því nafniðFagurskinna. Það nafn hefur svo færst yfir á sögutextann sem í því var. Þetta handrit mun hafa verið frá því um 1325–1350. Hitt handritið (B-handritið) var frá því um 1250, og svo vel vill til að íRíkisskjalasafni Noregs fannst um 1845 blaðhluti úr því, sem gefur góða hugmynd um aldur og útlit bókarinnar.
Bjarni Aðalbjarnarson (1937, 235) telur ekki fullvíst aðSnorri Sturluson hafi notaðFagurskinnu þegar hann samdiHeimskringlu, en vísbendingar eru um það. Bæði ritin fjalla um svipað tímabil í sögu Noregs, frá því um 850 til 1177. Þau eru mun ítarlegri enÁgrip af Noregskonunga sögum, sem er eldra rit. Fagurskinna vitnar mikið tildróttkvæða og notar þau sem heimild. Sumar vísurnar eru ekki varðveittar annars staðar og væru því glataðar ef sagan væri ekki til, svo sem vísur úrHaraldskvæði ogEiríksmálum.
Norski sagnfræðingurinnPeter Andreas Munch ritar formála fyrir útgáfunni1847, og nefnir þar nokkur atriði semFagurskinna hefur umframHeimskringlu og aðrar konungasögur:
Eftirtaldar frásagnir eru á einhvern hátt öðru vísi en í öðrum konungasögum:
Fagurskinna fer frekar hratt yfir sögu, en leggur áherslu á mikilvægar orrustur, svo semorrustuna í Hjörungavogi, þar semHákon jarl kom í veg fyrir að danskur innrásarfloti næði að leggja undir sig Noreg, ogSvoldrarorrustu, þar semÓlafur Tryggvason féll í sjóorrustu viðSvein tjúguskegg Danakonung, sem naut stuðningsEiríks Hákonarsonar jarls ogÓlafs sænskaSvíakonungs.
Fræðimenn telja aðFagurskinna hafi verið skrifuð í Noregi, líklega íNiðarósi, en óvíst er hvort Íslendingur eða Norðmaður var að verki. Bókin gæti hafa verið tekin saman fyrirHákon Hákonarson, því að hún er mjög konungholl og sleppir flestu því sem varpað gæti skugga á konungana. Þegar Hákon lá fyrir dauðanum íOrkneyjum haustið1263 lét hann lesa fyrir sig latínubækur, en entist ekki til að hlutsta á þær. Þá voru lesnar fyrir hannheilagra manna sögur á norrænu, síðanNoregs konunga tal (Fagurskinna), og loksSverris saga, og lést hann um það bil sem sögunni var lokið.