Movatterモバイル変換


[0]ホーム

URL:


Fara í innihald
WikipediaFrjálsa alfræðiritið
Leit

Esóp

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Forngrísk brjóstmynd sem talin er vera af Esóp.

Esóp (eðaÆsóp[1]) (forngrískaΑἴσωπος; u.þ.b. 620 - 564 f. Kr.) var grískurdæmisagnahöfundur sem eignaðar eru fjölmargar sögur sem þekktar eru semDæmisögur Esóps. Óljóst er hvort Esóp var til í raun og veru þar sem engin frumrit eftir hann eru til en honum eru ætlaðar ótal sögur sem safnað hefur verið í gegn um aldirnar á ýmsum tungumálum samkvæmt sagnahefð sem heldur áfram til okkar daga. Í mörgum sögunum eru persónurnar talandi dýr eða dauðir hlutir sem hugsa, leysa vandamál og haga sér eins og mannfólk.

Margar fornar heimildir gefa vísbendingar um ævi Esóps, þar á meðal verkAristótelesar,Heródótosar ogPlútarkosar. Í forngrískum skáldskap er Esóp talinn hafa verið forljótur þræll sem vann sér inn frelsi með gáfum sínum og varð ráðgjafi konunga og borgríkja. Líklega á þessi ímynd af Esóp ekki við neinn raunveruleika að styðjast.

Tilvísanir

[breyta |breyta frumkóða]
  1. Tímarit.is

Tenglar

[breyta |breyta frumkóða]
Wikivitnun er með safn tilvitnana á síðunniEsóp.
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengistEsóp.
Sótt frá „https://is.wikipedia.org/w/index.php?title=Esóp&oldid=1600861
Flokkar:

[8]ページ先頭

©2009-2026 Movatter.jp