Eraserhead (íFrakklandi gefin út semThe Labyrinth Man) erkvikmynd frá árinu1977 eftirDavid Lynch, en hann erhandritshöfundur hennar ogleikstjóri. Myndin er öll tekin í svarthvítu, og er næsta súrrealísk, en ber sterkan svip af þeim verkum Lynch sem á eftir fygldu, þó hún sé einstök í höfundaverki hans. Myndin hlaut lélega dóma í fyrstu, en hefur síðan eignast stóran aðdáendahóp og hefur haft áhrif á marga listamenn, og margir hrósað henni, jafntCharles Bukowski ogStanley Kubrick.
Aðalleikari myndarinnar erJack Nance en hann leikurHenry Spencer sem býr í niðurníddu iðnaðarhverfi og eignast ásamt Mary afar afmyndað barn utan hjónabands. Henry neyðist til þess að giftast kærustu sinniMary sem er leikin afCharlotte Stewart. Hún flytur síðan inn til hans, en tekur svo upp á því að fara sí og æ aftur heim til móður sinnar til að sofa vegna þess að hún þolir ekki hvæs og grát barnsins, og umönnun þess lendir alfarið á Henry. Svo sýnist hann fari að dreyma mjög hryllilegan draum.
Myndin var 5 ár í vinnslu.