Movatterモバイル変換


[0]ホーム

URL:


Fara í innihald
WikipediaFrjálsa alfræðiritið
Leit

Englar

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Sjá greininaEngill fyrir goðsagnaverurnar.
Svæðið Angeln í Norður-Þýskalandi þaðan sem Englar komu.

Englar voru þjóðflokkur sem bjó á svæðinuAngeln íSlésvík-Holtsetalandi íNorður-Þýskalandi. Eftir aðRómverjar yfirgáfuBretland tóku Englar og nokkrir aðrir þjóðflokkar, svo semJótar ogSaxar, sig upp og námu þar land. Að sögnBeda prests, voru þeir friðsamir í fyrstu en lögðu svo landið undir sig með hervaldi. Í Englandi stofnuðu Englar konungsríkinNord Angelnen (Norðymbraland),Ost Angelnen (Austur-Anglía) ogMittlere Angelnen (Mersía). Nafnið „England“ er dregið að nafni þjóðflokksins.

Normannar lögðu undir sig England árið1066. Þeir kölluðu alla ættflokkana sem bjuggu þarEngilsaxa í höfuðið á Englum og Vestursöxum. Vestursaxar höfðu myndað öflugt ríki,konungsríkið England, á fyrri hluta10. aldar.

Svæðin Austur-Anglía og Norðymbraland (e.Northumbria) eru enn í dag þekkt undir upprunalegum nöfnum sínum. Ávíkingaöld náði Norðymbraland yfir mun stærra svæði en nú, þ.e. einnig yfir suðausturhlutaSkotlands (allt tilEdinborgar), og suður til árinnarHumber. NafniðNorðymbraland merkir raunar „landið norðan Humbru“.

OrðiðEnglar hefur verið til í nokkrum myndum, elst erlatneska orðiðAnglii sem kemur fyrir í ritinuGermanía eftirTacitus.

  Þessi sagnfræðigrein erstubbur. Þú getur hjálpað til með því aðbæta við greinina.
Sótt frá „https://is.wikipedia.org/w/index.php?title=Englar&oldid=1757439
Flokkar:
Falinn flokkur:

[8]ページ先頭

©2009-2025 Movatter.jp