Movatterモバイル変換


[0]ホーム

URL:


Fara í innihald
WikipediaFrjálsa alfræðiritið
Leit

Emmy-verðlaunin

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Emmy Awards
Stytta Emmy-verðlaunanna
Veitt fyrirFramúrskarandi árangur í sjónvarpi
LandBandaríkin
UmsjónATAS/NATAS/IATAS
Fyrst veitt25. janúar 1949;fyrir 77árum (1949-01-25)
VefsíðaATAS Emmy vefsíðan
NATAS Emmy vefsíðan
IATAS Emmy vefsíðan

Emmy-verðlaunin (eðaEmmy Awards ogEmmys) erubandarísk verðlaun veitt fyrir framúrskarandi árangur ísjónvarpi. Veitt eru verðlaun nokkrum sinnum á ári í mörgum mismunandi flokkum sem koma að sjónvarpsþáttagerð. Þekktustu athafnirnar eruPrimetime Emmy Awards ogDaytime Emmy Awards. Verðlaunin eru samsvarandiGrammy-verðlaununum fyrir tónlist,Óskarsverðlaununum fyrir kvikmyndir ogTony-verðlaununum fyrir leiklist.

Þrjú mismunandi samtök sjá um verðlaunin. Þau eruAcademy of Television Arts & Sciences (ATAS),National Academy of Television Arts & Sciences (NATAS), ogInternational Academy of Television Arts and Sciences (IATAS). Hvert þeirra stjórnar ákveðnum verðlaunahátíðum sem tengjast sínum sviðum. ATAS sáu um fyrstu athöfnina sem fór fram árið 1949 til að heiðra sjónvarpsþætti sem framleiddir voru áLos Angeles svæðinu, áður en það átti við um öll Bandaríkin. Næstu tvo áratugina voru verðlaunin stækkuð til að ná utan um fleiri geira í sjónvarpsiðnaðinum.[1]

Tilvísanir

[breyta |breyta frumkóða]
  1. „A History of Emmy – The 1940s“.Academy of Television Arts & Sciences. Afrit afupprunalegu geymt þann 27 maí 2020. Sótt 24 janúar 2017.

Tenglar

[breyta |breyta frumkóða]
  Þessisjónvarpsgrein erstubbur. Þú getur hjálpað til með því aðbæta við greinina.
Sótt frá „https://is.wikipedia.org/w/index.php?title=Emmy-verðlaunin&oldid=1899078
Flokkar:
Falinn flokkur:

[8]ページ先頭

©2009-2026 Movatter.jp