Ed Westwick |
---|
 Westwick árið 2010 |
Fæddur | Edward Gregory Westwick 27. júní1987 (1987-06-27) (37 ára)
|
---|
Þekktur fyrir | Leikari |
---|
Edward „Ed“ Westwick (f.27. júní1987) erenskurleikari ogtónlistarmaður sem er best þekktur fyrir hlutverk sitt sem Chuck Bass í sjónvarpsþættinumGossip Girl.
Westwick fæddist í Stevenage íHertfordshire áEnglandi og er sonur Carole, sálfræðings, og Peter Westwick, háskólaprófessors. Hann ólst upp í Stevenage og æfði í National Youth-leikhúsinu í London. Hann heldur með Chelsea F.C. Hann byrjaði feril sinn á að birstast í breskum sjónvarpsþáttum eins ogDoctors as Holden,Casualty ogAfterlife. Hann lék einnig í kvikmyndunumBreaking and Entering,Children of Men ogSon of Rambow.
Árið 2007 var Westwick ráðinn í unglinga-dramaþáttinnGossip Girl sem Chuck Bass. Eftir að þátturinn sló í gegn var hann útnefndur „kynþokkafyllsti maður á lífi“ árið 2008 af tímaritinuPeople, birtist árið eftir á lista þeirra yfir „100 fallegustu“ ásamt öllum leikurumGossip Girl, vann tvö verðlaun árin 2008 og 2009 fyrir besta þorpara í sjónvarpi og var útnefndur sem vonarstjarnaGQ árið 2010.Entartainment Weekly útnefndi persónu Westwicks, Chuck Bass, „best klæddu sjónarpsþáttapersónu ársins 2008“ (en deildi þó sætinu með persónuLeighton Meester, Blair Waldorf).
Árið 2008 varð Westwick nýtt andlit K-Swiss en hann var annar meðlimur leikaraliðsGossip Girl til að kynna íþróttafatnað (Leighton Meester auglýsti Reebok) og lék í hryllingsmyndinni100 Feet
Árið 2009 lék Westwick hlutverk í framhaldsmyndDonnie Darko og lék einnig gestahlutverk í þriðju þáttaröðCalifornication en hann lék nemanda sem var dolfallinn aðdáandi vampírubókmennta. Í maí 2009 var hann nefndur við hlutverk Heathcliff íWuthering Heights. En í janúar 2010 fór kvikmyndin í hendur nýs leikstjóra sem ákvað að breyta leikaravalinu.
Í janúar 2011 gekk Westwick til liðs við myndClint Eastwood,J. Edgar, enLeonardo DiCaprio fór með hlutverkJ. Edgar Hoover, fyrsta forstjóra bandarísku Alríkislögreglunnar (FBI). Þetta sama ár lék hann í rómantísku gamanmyndinniChalet Girl ásamtFelicity Jones.
Hann las að hluta inn á hljóðbókarútgáfuCity of Fallen Angles eftir Cassöndru Clare og las inn á aðra skáldsögu hennar úr bókaflokkinumClocwork Prince from The Infernal Devices.
Westwick varð einnig alþjóðlegur frægur talsmaður Penshoppe, um mitt ár 2011.
Hann á að leika í nýrri útgáfu af Róme og Júlíu, sem frændi Júlíu, Tíbalt ásamtHailee Steinfeld.
Westwick hóf ástarsamband með mótleikkonu sinni úrGossip Girl,Jessicu Szohr árið 2008. Þau slitu sambandinu í maí 2010 og Westwick sagði í kjölfarið „kærustur eru of mikill höfuðverkur“ en þau byrjuðu aftur saman í stuttan tíma við tökur fjórðu þáttaraðarGossip Girl í ágúst 2010. Í febrúar 2012 var tilkynnt um að Westwick og Szohr hefðu aftur tekið upp samband sitt.
Fyrir utan leiklist var hann forsprakki bresku indie-rock hljómsveitarinnarThe Filthy Youth sem samanstóð af honum, Benjamin Lewis Allingham, Jimmy Wright, Tom Bastiani og John Vooght. Á meðan hann er óvirkur meðlimur bandsins, aðallega vegna þess að hann vill einbeita sér að leiklistarferlinum, og hinir hljómsveitarmeðlimirnir eru búsettir í Bretlandi, hefur hann sýnt áhuga á því að stofna aðra hljómsveit íNew York.
Ár | Titill | Hlutverk | ATH |
---|
2006 | Doctors | Holden Edwards | 07x154 - „Young Mothers Do Have 'Em“ |
Casualty | Johnny Cullin | 20x029 - „Family Matters“ |
Afterlife | Darren | 02x001 - „Roadside Bouquets“ |
2007 - | Gossip Girl | Chuck Bass | Aðalhlutverk |
2009 | Californication | Chris „Balt“ Smith | 03x002 - „The Land of Rape and Honey“ |
Ár | Flokkur | Þáttaröð | Verðlaun | Niðurstaða |
---|
2008 | Karlkynsstjarna í sjónvarpsþætti | Gossip Girl | Teen Choice Awards | Vann |
2008 | Besti þorparinn | Gossip Girl | Teen Choice Awards | Vann |
2009 | Besti þorparinn | Gossip Girl | Teen Choice Award | Vann |