Movatterモバイル変換


[0]ホーム

URL:


Fara í innihald
WikipediaFrjálsa alfræðiritið
Leit

Dys

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Fyrir hljómsveitina, sjáDys (hljómsveit).

Dys er upphækkuðgröf eðagrafhýsi úr grjóti. Á fyrri hlutanýsteinaldar voru dysjar íEvrópu gerðar úr fjórum til fimm uppreistum steinum og tveimur sem lagðir voru ofan á. Oft voru þær þó aðeins huldar jarðvegi og steinum raðað í hring (hringdys) eða ferhyrning (langdys) umhverfis. ÁÍslandi var fólk dysjað ef ekki þótti tilefni tilgreftrunar með viðhöfn og voru dysjarnar gerðar úr hrúgu af grjóti. Illþýði og galdramenn voru t.d. yfirleitt dysjuð eða urðuð, þ.e. fleygt yfir þau grjóti og lítt vandað til þessara síðustu híbýla þeirra. Íslensku dysjarnar tengjast því lítt þeim sem tíðkuðust á meginlandi Evrópu.

Hringdys

[breyta |breyta frumkóða]

Hringdysjar eru svo nefndar þegar haugurinn, sem gerður hefur verið um dysina, er hringlaga. Í þessum dysjum er venjulega aðeins einsteinkista, gerð af fimm hellusteinum, einum á hverja hlið og einum, sem er lagður yfir. Eru steinkistur þessar oft ekki nema hálfur metri á breidd, en 1,25 metrar að lengd. Eitt lík hefur að jafnaði verið jarðsett í slíkri kistu.

Langdys

[breyta |breyta frumkóða]

Langdysjar eru þannig gerðar, að haugurinn um dysina er aflangur, ferkantaður og í dysinni sjálfri eru oft margar steinkistur af áðurnefndri gerð. Margar langdysjar eru yfir tuttugu metrar á lengd og sex til átta metra breiðar, en dæmi eru til að þær geti verið á annað hundrað metrar á lengd.

Tengt efni

[breyta |breyta frumkóða]
  Þessi grein erstubbur. Þú getur hjálpað til með því aðbæta við greinina.
Sótt frá „https://is.wikipedia.org/w/index.php?title=Dys&oldid=1872079
Flokkur:
Falinn flokkur:

[8]ページ先頭

©2009-2025 Movatter.jp