Movatterモバイル変換


[0]ホーム

URL:


Fara í innihald
WikipediaFrjálsa alfræðiritið
Leit

Dulritun

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Dulritun[1][2] (eðadulkóðun)[2] er hugtak ídulritunarfræði sem merkir að breytaódulrituðum texta ídulrit (dulritaðan texta) með ákveðinnidulritunaraðferð;[2] tilgangur dulritunaraðferðarinnar er að gera dulritið óráðanlegt þeim sem búa ekki yfir ákveðnu leyndarmáli sem er kallaðdulmálslykill.

Dulráðning er notuð til að snúa ferlinu við,[1][2] en það ferli er oft það hið sama.

Dulritun á sér langa sögu og hefur tekið miklum framförum beint eða óbeint tengtstríðsrekstri.

Fyrstu dulritunaraðferðirnar voruumskiptidulritanir[3]:en eins ogreiknirit Sesars þar sem hverjum staf í texta er hliðrað um ákveðið bil ístafrófinu og verður textinn þar með óskiljanlegur nema viðtakandinn þekki hliðrunina. Auðvelt reyndist þó að brjóta þessi dulmál og hefur þróun dulmála leitt af sér fágaðari dulritunaraðferðir. Frá og með sjöunda áratug20. aldar hafa dulmál færst út notkun ríkisstjórna og leynifélaga yfir á einkanotendur. Þau eru notuð á hverjum degi og notfæra sér margir þá tækni án þess að gera sér grein fyrir því. Þannig eru tengingarheimabanka yfirleitt dulkóðaðar og öllGSM raddsamskipti eru dulkóðuð (þó ekkismáskilaboð). Einnig hafa önnur almennari samskipti sífellt farið að nýta sér dulkóðun, svo semspjallforrit ogtölvupóstur.

Tengt efni

[breyta |breyta frumkóða]

Tilvísanir

[breyta |breyta frumkóða]
  1. 1,01,1dulritunkv.Geymt 24 október 2007 íWayback Machine íTölvuorðasafninu
  2. 2,02,12,22,3„Hvað er og hvernig verkar dulkóðun?“.Vísindavefurinn.
  3. Orð búið til af höfundi.
Sótt frá „https://is.wikipedia.org/w/index.php?title=Dulritun&oldid=1721564
Flokkur:
Falinn flokkur:

[8]ページ先頭

©2009-2025 Movatter.jp