Dua Lipa (f. 22. ágúst 1995) erbresk-albönsk söngkona og lagahöfundur. Eftir að hafa unnið sem fyrirsæta skrifaði hún undir samning hjáWarner Bros. Records árið 2014 og gaf út fyrstu breiðskífuna sína árið 2017, einfaldlega nefndDua Lipa. Platan náði þriðja sæti ábreska hljómplötulistanum og af henni voru gefnar út átta smáskífur. Meðal þeirra eru „Be the One“, „IDGAF“ og „New Rules“ sem náði fyrsta sæti í Bretlandi, ásamt sjötta sæti í Bandaríkjunum. Platan hlaut platínuviðurkenningu í ýmsum löndum um allan heim. Lipa vann einnigBrit-verðlaunin fyrirbreska einstaklings söngkonan ogbreska framfaraskrefið árið 2018.
Lagið „One Kiss“ meðCalvin Harris náði fyrsta sæti í Bretlandi og vann verðlauninlag ársins hjá BRIT-verðlaununum árið 2019. Sama ár vann hún tvöGrammy-verðlaun og gaf út lagið „Don't Start Now“ sem aðallagið fyrir sína næstu plötu,Future Nostalgia. Á henni má finna lögin „Physical“, „Break My Heart“ og „Levitating“ sem varðlag ársins hjáBillboard Hot 100 listanum, árið 2021. Breiðskífan hlaut sex Grammy tilnefningar, þar á meðalbreiðskífa ársins,smáskífa ársins oglag ársins.