Movatterモバイル変換


[0]ホーム

URL:


Fara í innihald
WikipediaFrjálsa alfræðiritið
Leit

Diskheimur

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Diskheimur (enska:Discworld) er röð gamansamra ævintýrabóka eftirbreskarithöfundinnTerry Pratchett. Sögusvið bókanna er hinn svonefndiDiskheimur, sem er flöt jörð sem hvílir á baki fjögurra fíla sem standa á baki risavaxinnar skjaldböku sem nefnistGreat A'Tuin.

Diskheimsbækurnar eru m.a. nokkurs konar skopstæling á verkum rithöfunda á borð viðJ.R.R. Tolkien,Robert E. Howard,H.P. Lovecraft ogWilliam Shakespeare, sem og goðsögnum, þjóðsögum og ævintýrum. Ádeila og skopstæling á samtímamenningu kemur þar einnig oft fyrir eins og rokktónlist íSoul Music eða sammannlegum hlutum einsog prentfrelsi sem var tekið fyrir í bókinniThe Truth eða stríði íJingo.

Frá því fysta bókin,The Colour of Magic (1983), kom út hefur bókaröðin getið af sér fjórar smásögur, teiknimyndir og leiki, og jafnvel aðrar bækur og tónlist. Fyrsta leikna sjónvarpsmyndin (Terry Pratchett's Hogfather) var frumsýnd á sjónvarpsstöðinni Sky One um jólin2006.[1]Kvikmynd eftir bókinniThe Wee Free Men er í undirbúningi.

Undanfarin ár hafa nýútkomnar Diskheimsbækur iðulega komist á topp metsölulistaThe Sunday Times, og gerðu Pratchett að söluhæsta rithöfundi Bretlands á tíunda áratug 20. aldarinnar, enJ.K. Rowling, höfundur bókanna umHarry Potter, selur núorðið fleiri bækur. Bókum Pratchetts er þó ennþá oftast stolið úr bókabúðum.[2]

Tvær bækur í Diskheimsröðinni hefur komið út í íslenskriþýðingu enTónleikur gaf útLitbrigði galdranna (e.The Colour of Magic) árið2007 í þýðinguJóns Daníelssonar (f.1949). Önnur bók,Furðuljósið (e.The Light Fantastic) kom út næsta ár hjá Tónleik í þýðingu Jóns og Hildar Sifjar Thorarensen.

Eitt leikrit hefur verið sett upp hér á landi, byggt á Diskheimsbók,Wyrd Sisters. Leikritið var nefntÖrlagasystur á íslensku og var sett upp afLeikfélagi Menntaskólans við Hamrahlíð.

Heimildir

[breyta |breyta frumkóða]
  1. „Terry Pratchett's Hogfather á Sky One“. Afrit afupprunalegu geymt þann 11 júlí 2007. Sótt 7 ágúst 2007.
  2. The Scotsman: Pratchett casts a bitter spell on rivals
Sótt frá „https://is.wikipedia.org/w/index.php?title=Diskheimur&oldid=1856225
Flokkar:
Falinn flokkur:

[8]ページ先頭

©2009-2025 Movatter.jp