Movatterモバイル変換


[0]ホーム

URL:


Fara í innihald
WikipediaFrjálsa alfræðiritið
Leit

Dean Smith (knattspyrnuþjálfari)

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Dean Smith
Dean Smith 2011
Upplýsingar
Fullt nafnDean Smith
Fæðingardagur19. mars 1971
Fæðingarstaður   West Bromwich,England,
Hæð1.83m
LeikstaðaVarnarmaður
Núverandi lið
Núverandi liðAston Villa (þjálfari)
Meistaraflokksferill1
ÁrLiðLeikir (mörk)
1989-1994

1994-1997

1997-2003

2003-2004

2004-2005

Walsall F.C.

Hereford United

Leyton Orient

Sheffield Wednesday

Port Vale

142 (2)

117 (19)

239 (32)

55 (1)

13 (0)

Þjálfaraferill
2011-2015

2015-2018

2018-2021

2021-2022

2023-

Walsall

Brentford

Aston Villa

Norwich City

Leicester City

1 Leikir með meistaraflokkum og mörk
talið í aðaldeild liðsins.

Dean Smith (fæddur19. mars árið1971 íWest Bromwich) er enskur knattspyrnuþjálfari og fyrrum leikmaður. Hann er nú stjóriLeicester City.

Smith hóf leikferil sinn sem varnarmaður fyrirWalsall F.C.. Hann var þar frá 1989-1994. Hereford United keypti Smith á 80.000 pund 1994, hann spilaði fyrir þá til ársins 1997.Leyton Orient keypti hann síðan á 42.500 pund og spilaði hann fyrir þá til 2003. Smith lék fyrirSheffield Wednesday í eitt tímabil frá 2003-2004. Smith spilaði síðasta tímabilið sitt fyrirPort Vale árin 2004-2005 en hann lagði skóna á hilluna eftir eitt tímabil með þeim.

Eftir að leikferlinum er lokið þjálfaði hann yngri flokka hjáLeyton Orient frá janúar 2005 þar til hann fær stöðuhækkun í aðstoðarþjálfara undir lok á tímabilsins 2004/2005. Hann og þáverandi aðalþjálfariLeyton OrientMartin Ling yfirgefa félagið eftir slaka byrjun á tímabilinu 2008/2009.

Ferill

[breyta |breyta frumkóða]

Í júlí 2009 sneri Smith aftur til síns gamla félags og gerist yfirmaður yngri flokka hjáWalsall. Byrjun árs 2011 var þjálfari WalsallChris Hutchings rekinn og Smith var fenginn til að klára tímabilið með liðinu sem sat á botninum þegar hann tók völd. Honum tókst að halda félaginu uppi íensku þriðju deildinni einu stigi fyrir ofanDagenham & Redbridge F.C. sem féll.

Næsta tímabil sem stóð yfir frá 2011-2012 endaðiWalsall einu sæti ofar í 19. sæti en í þetta skiptið í mikið þægilegri stöðu 7 stigum frá fallsæti. Tímabilið 2012-2013 tókst Smith að lenda í 9. sæti aðeins 6 stigum frá umspili til að komast íEnsku B deildina.

Tímabilið 2013-2014 byrjaði vel fyrirWalsall og Smith stundum kallaður hinn rauðhærðiJosé Mourinho af stuðningsmönnumWalsall en þeim tókst ekki að viðhalda góða forminu sem þeir voru komnir í og enduðu í 13. sæti. 2014-2015 tímabilið lenti Walsall í 14. sæti.

Tímabilið 2015-2016 byrjaði mjög vel og skrifaði Smith undir nýjan 12 mánaða samning. Aðeins 6 vikum eftir að hafa skrifað undir samningin viðWalsall skrifaði hann undir samning viðBrentford sem var í deildinni fyrir ofanWalsall.

Dean Smith skrifaði undir hjáBrentford þann 30. nóvember 2015. Brentford endaði í 9. sæti íensku B deildinni fyrsta tímabilið undir stjórn Smiths. Tímabilið 2016-2017 fékk Smith inn 18 nýja leikmenn til liðsins. Honum tókst þó ekki að gera betur en árinu áðir og lendir í 10. sæti. Tímabilið 2017-2018 endaðiBrentford í 9. sæti. Smith var orðinn þekktur fyrir að spila skemmtilegann fótbolta og það með mikið minna af pening en önnur lið í deildinni. Í febrúar 2018 skrifaði Smith undir nýjan 12 mánaða samning. Dean Smith komst hins vegar ekki langt inn í tímabilið 2018/2019 meðBrentford vegna þess að þann 10. október 2018 skrifar hann undir hjáAston Villa.

Aston Villa var í 14. sæti þegar Smith tók völdin og því mikið verk framundan fyrir honum. GengiAston Villa gjörbreyttist undir Smith og fór staðan á töflunni að lagast, í desember 2018 sátu þeir rétt fyrir utan umspilssætin.Jack Grealish sem var lang mikilvægasti leikmaðurAston Villa meiddist snemma í desember og kom ekki aftur inn í liðið fyrr en í mars 2019. FjarveraGrealish sást á stigatöflunni og var útlitið grátt að þeir kæmust upp um deild. ÞegarGrealish kom til baka var honum gefið fyrirliðabandið. Smith stýrði liði sínu í 10 sigurleiki í röð sem braut 109 ára gamalt met. Þessir 10 sigrar dugðu til að komast í umspilið.

Aston Villa þurfti að mætaWest Bromwich Albion í umspilinu sem er bæði eitt af nágrannaliðum Villa og bærinn sem Smith fæddist í. Smith tókst að sigraWest Bromwich Albion og komst í úrslit umspilsins Þetta var annað árið í röð fyrir félagið í úrslitum eftir tap gegnFulham árinu áður. Í þetta skiptið gerðiAston Villa engin mistök og unnuDerby County 2-1 og því komnir aftur íEnsku úrvalsdeildina eftir þriggja ára fjarveru.

Stór hluti leikmannaAston Villa voru á láni eða samninglausir og því þurfti Smith nánast að búa til nýtt lið frá grunni. Hann keypti 12 leikmenn fyrir samtals 144.5 milljónir punda þar á meðal framherjannWesley sem kemur til félagsins á metfé fyrirAston Villa. Þann 29. nóvember 2019 framlengdi Smith samning sinn til ársins 2023. Með 4 leiki eftir satAston Villa 7 stigum frá öruggu sæti og undirbúningur fyrir fall hafinn en Smith tókst að halda liði sínu uppi með 1-1 jafntefli gegnWest Ham í síðasta leik tímabilsins. Sama tímabil tókst Smith að koma Aston Villa í úrslitEnska Deildarbikarsins en tapaði fyrirManchester City 2-1 áWembley.

Tímabilið 2020-2021 héldu kaupin áfram og var eytt í kringum 90 milljónum punda í leikmenn þar á leikmanninnOllie Watkins sem áður spilaði undir Smith hjáBrentford á metfé fyrirAston Villa. Tímabilið byrjaði með látum með 4 sigrum í röð, meðal annars 7-2 sigrinum á deildarmeisturum liðins tímabilsLiverpool. Allt leit út fyrir aðAston Villa myndi reyna við evrópusæti en aftur meiðistJack Grealish og missti af mörgum mánuðum, gengi liðsins versnar í fjarveru fyrirliðans.Aston Villa endaði í 11. sæti undir stjórn Smiths, mikil bæting frá árinu áður.

Tímabilið 2021-2022 gekk ekki vel fyrsta þriðjung tímabilsins og var Smith rekinn í nóvember.

Norwich City

[breyta |breyta frumkóða]

Smith tók við Norwich City stuttu eftir að hann var rekinn frá Aston Villa.


Sótt frá „https://is.wikipedia.org/w/index.php?title=Dean_Smith_(knattspyrnuþjálfari)&oldid=1816735
Flokkar:

[8]ページ先頭

©2009-2025 Movatter.jp