Cameron namheimspeki,stjórnmálafræði oghagfræði viðOxford-háskóla og útskrifaðist með fyrstu einkunn. Að námi loknu vann hann ýmis trúnaðarstörf fyrir Íhaldsflokkinn og stofnanir tengdar honum en starfaði síðan í sjö ár hjá fjölmiðlafyrirtækinuCarlton Communications.
Fyrsta framboð Cameron til þingsetu ábreska þinginu kom til íþingkosningunum 1997 þegar hann bauð sig fram í kjördæminuStafford en náði ekki kjöri. Í kosningunum2001 náði hann þó á þing fyrir kjördæmiðWitney íOxfordshire. Tveimur árum síðar var hann kominn í framlínu flokksins í þinginu og fyrir kosningarnar2005 stýrði hann stefnumótunarvinnu Íhaldsflokksins.
Cameron sigraði í leiðtogakjöri íhaldsmanna árið 2005 en hann var af mörgum talinn vera ungur og hófsamur stjórnmálamaður sem gæti mögulega náð til yngri kjósenda. Undir hans forystu náði íhaldsflokkurinn loks forskoti áVerkamannaflokkinn í skoðannakönnunum, í fyrsta skiptið frá stórsigri Verkamannaflokksins undir forystuTony Blair árið1997. Í þingkosningunum6. maí2010 fengu íhaldsmenn flest atkvæði og flest þingsæti en náðu þó ekki hreinum meirihluta. Þann11. maí sagðiGordon Brown af sér sem forsætisráðherra og fékk Cameron þá umboð til að mynda nýja ríkisstjórn í samstarfi meðFrjálslyndum demókrötum.
Eftir Bretar kusu að ganga úrEvrópusambandinu íþjóðaratkvæðagreiðslu sagði hann af sér.Theresa May tók við af honum í embætti forsætisráðherra þann13. júlí2016.
Cameron var skipaður utanríkisráðherra í stjórnRishi Sunak þann 13. nóvember árið 2023, sjö árum eftir að hann hrökklaðist úr embætti forsætisráðherra.[1] Cameron tók sæti á lávarðadeild breska þingsins meðbarónsnafnbót til að geta gegnt ráðherrastöðu í stjórninni.[2]