Movatterモバイル変換


[0]ホーム

URL:


Fara í innihald
WikipediaFrjálsa alfræðiritið
Leit

Dante Alighieri

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Helgríma Dantes íPalazzo Vecchio í Flórens.

Dante Alighieri (um29. maí126514. september1321) varskáld fráborgríkinuFlórens áÍtalíuskaganum. Verk hansHinn guðdómlegi gleðileikur (La divina commedia) er talið með merkustubókmenntum sem skrifaðar voru ámiðöldum. Verkið er einnig talið hafa myndað grundvöllinn aðítölskuritmáli.

Dante fæddist inn í virðulega fjölskyldu íFlórens. Hann varð, líkt og fjölskylda hans, hallur undir málstaðGvelfa (sem voru hallir undirpáfa) í átökum þeirra við Gíbellína (sem hölluðust aðkeisaranum. Hann barðist sjálfur íorrustunni við Campaldino (11. júní1289) sem festi Gvelfa í sessi á valdastóli í Flórens. Eftir ósigur Gíbellína skiptust Gvelfar í tvær fylkingar (hvíta ogsvarta) þar sem Dante var í fyrrnefndu fylkingunni.

1301 var von áKarli af Valois semBónífasíus VIII hafði útnefnt sáttasemjara í Toskana til Flórens. Dante fór þá fyrir sendinefnd tilRómar til að komast að fyrirætlunum páfa. Páfi sendi hina sendimennina burt en skipaði Dante að vera um kyrrt. Á meðan hélt Karl inn í Flórens með her svartra Gvelfa sem tóku stjórn borgarinnar í sínar hendur og drápu flesta andstæðinga sína. Dante gat ekki snúið aftur og var dæmdur til ævilangrar útlegðar.

Dante tók þátt í nokkrum tilraunum til að koma hvítum Gvelfum aftur til valda í Flórens, en þær mistókust allar. Hann dó að lokum í útlegð íRavenna.

Verk

[breyta |breyta frumkóða]
Dante, staddur milli fjalls Hreinsunareldsins (Purgatorio) og fæðingarborgar sinnar, sýnir hina frægu upphafslínuNel mezzo del cammin di nostra vita í málverkiDomenico di Michelino frá því1465.

Hinn guðdómlegi gleðileikur er nokkurs konarleiðsla sem lýsir ferð Dantes umVíti (Inferno),Skírnarfjallið (Purgatorio) og Paradís (Paradiso), fyrst undir leiðsögnrómverska skáldsinsVirgils og síðan í fylgd sinnar ástkæruBeatrís. Verkið er ritað ámállýsku heimabæjar Dantes, en með þessu meistaraverki staðfesti hann aðítalskan væri nothæf sem bókmenntamiðill og gerði það einnig að verkum aðtoskanska varð grundvöllurinn að ítölsku ritmáli.

Önnur verk hans eru meðal annarsDe vulgari eloquentia um bókmenntir á talmálinu ogLa vita nuova, sem er saga ástar hans áBeatrice Portinari.

Ítarefni

[breyta |breyta frumkóða]

Dante Alighieri; Einar Thoroddsen þýddi (2018).Víti: fyrsti hluti Gleðileiksins guðdómlega. Guðrún útgáfufélag ehf, Reykjavík.

Dante Alighieri; Einar Thoroddsen þýddi (2021).Skírnarfjallið: annar hluti Gleðileiksins guðdómlega. Guðrún útgáfufélag ehf, Reykjavík.

Tenglar

[breyta |breyta frumkóða]
Wikisource
Wikisource
ÁWikiheimild er að finna verk eftir eða um:
Wikivitnun er með safn tilvitnana á síðunniDante Alighieri.
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengistDante Alighieri.


Sótt frá „https://is.wikipedia.org/w/index.php?title=Dante_Alighieri&oldid=1776581
Flokkar:

[8]ページ先頭

©2009-2025 Movatter.jp