Dakar erhöfuðborgSenegal með um 2,4 milljónir íbúa (þar af 1 milljón í sjálfri borginni). Borgin stendur áGrænhöfða á vesturströnd Senegal. Hún var stofnuð árið1857 og hafði þá myndast utanumfranskt virki á höfðanum. Hún óx hratt sem mikilvægur áfangastaður í versluninni viðEvrópu og yfirAtlantshafið
Nafnið Dakar kemur fyrst fram á korti sem franski bótanistinn Michel Adanson gerði 1750 af Cap-Vert eða Grænhöfða.
Dakar gæti verið frönsk útgáfa af ndakarou úr frumbyggjamáli, en orðsifjar borgarinnar eru enn ekki taldar vissar. Hugsanlega frá máltæki úr wolof deuk raw sem merkir það sem þar setur sig niður mun vera látið í friði, eða frá dekk-raw, þar sem dekk merkir land og raw sleppa og þá einskonar flóttasvæði.
Ennfremur gæti heitið verið leitt af dakhar úr wolof, sem merkir tamarinier-tré, en mikið er af þeim á svæðinu.