Dómkirkjan í Flórens (ítalska:Cattedrale di Santa Maria del Fiore,dómkirkja heilagrar Maríu í Flórens; eða almenntIl Duomo di Firenze, „dómkirkjan í Flórens“) erdómkirkja í borginniFlórens áÍtalíu. Kirkjan var reist á grunni eldri kirkju sem var helguðheilagri Reparötu en nýja kirkjan er helguðheilagri Maríu sem er kennd við borgina sjálfa (del Fiore, sem vísar til borgarinnar). Hún er ígotneskum stíl samkvæmt teikninguArnolfo di Cambio og er gerð úrmúrsteini ogmarmara. Vinna við hana hófst árið 1296. Hún var vígð árið 1436 þegar lokið hafði verið við hvelfinguna semFilippo Brunelleschi hannaði. Kirkjan er klædd grænum og hvítum marmara en framhlið hennar var gerð ínýgotneskum stíl á19. öld.
Dómkirkjan stendur á dómkirkjutorginu,Piazza del Duomo, í jaðri hinnar sögulegu miðborgar Flórens. Kirkjan sem stóð þar á undan henni var upphaflega utan borgarmúranna. Á torginu standa líkaSkírnarkirkjan í Flórens ogKlukkuturn Giottos. Allar þrjár byggingarnar eru hluti afheimsminjaskrá UNESCO ásamt miðborginni allri. Kirkjuskipið er eitt af þeim stærstu sem finnast á Ítalíu og hvelfingin er stærsta hvelfing sem byggð hefur verið úr hlöðnum steini.