Movatterモバイル変換


[0]ホーム

URL:


Fara í innihald
WikipediaFrjálsa alfræðiritið
Leit

Colorado

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Colorado
Fáni Colorado
Fáni
Opinbert innsigli Colorado
Innsigli
Viðurnefni: 
The Centennial State
Kjörorð: 
Nil sine numine (latína)
(enska: Nothing without providence)
Colorado merkt inn á kort af Bandaríkjunum
Staðsetning Colorado í Bandaríkjunum
Land Bandaríkin
Varð opinbert fylki1. ágúst 1876;fyrir 149árum (1876-08-01) (38. fylkið)
Höfuðborg
(og stærsta borg)
Denver
StærstasýslaEl Paso
Stjórnarfar
  FylkisstjóriJared Polis (D)
  VarafylkisstjóriDianne Primavera (D)
Þingmenn
öldungadeildar
  • Michael Bennet (D)
  • John Hickenlooper (D)
Þingmenn
fulltrúadeildar
Flatarmál
  Samtals269.601 km2
  Land268.431 km2
  Vatn1.170 km2 (0,4%)
  Sæti8. sæti
Stærð
  Lengd451 km
  Breidd612 km
Hæð yfir sjávarmáli
2.070 m
Hæsti punktur4.401,2 m
Lægsti punktur

(Arikaree-fljót)
1.011 m
Mannfjöldi
 (2023)[1]
  Samtals5.877.610
  Sæti21. sæti
  Þéttleiki21,8/km2
   Sæti37. sæti
Heiti íbúaColoradan
Tungumál
  Opinbert tungumálEnska
TímabeltiUTC−07:00 (MST)
  SumartímiUTC−06:00 (MDT)
Póstnúmer
CO
ISO 3166 kóðiUS-CO
Breiddargráða37°Ntil 41°N
Lengdargráða102.0467°Vtil 109.0467°V
Vefsíðacolorado.gov
Kort.
Skógur við San Juan-fjöll.

Colorado erfylki íBandaríkjunum. Fylkið dregur nafn sitt afColorado-fljóti sem var nefnt af spænskum landkönnuðum og merkir einfaldlega rauðleita áin. Um 5,8 milljónir manns búa í fylkinu (2023).[1]

Landafræði og náttúrufar

[breyta |breyta frumkóða]

Colorado er ferkantað að lögun og 269.601ferkílómetrar að stærð. Fylkið liggur aðWyoming í norðri,Nebraska í norðaustri,Kansas í austri,Oklahoma í suðaustri,Nýju-Mexíkó í suðri ogUtah í vestri. Colorado ogArizona eru horn í horn í suðvestri.

Colorado er eina fylki Bandaríkjanna sem liggur yfir 1000 metra yfir sjó að öllu leyti en lægsti punkturinn er 1.011 metrar. SuðurhlutiKlettafjalla liggur um fylkið.Mount Elbert er hæsti punkturinn (og hæsta fjall Klettafjalla); 4401 metrar. 53 tindar ná hæð yfir 4267 metra eða 14.000 fet (kallaðir forteeners).Trjálínan er í 3700 metra hæð. Þjóðskógar og þjóðgarðar þekja um 100.000 ferkílómetra í fylkinu eða 37% alls lands.Broddgreni er fylkistréð.

Fjöll, skóga, sléttur, hásléttur, gljúfur og eyðimerkur má finna í fylkinu.Colorado-fljót er stærsta áin og myndar gljúfur.Colorado-sléttan er í vesturhluta fylkisins og er það þurrt svæði.

Þjóðgarðar eruGreat Sand Dunes-þjóðgarðurinn og verndarsvæði,Rocky Mountain-þjóðgarðurinn ogBlack Canyon of the Gunnison National Park. Fjöldi annarra verndaðra svæða, svokölluðþjóðarminnismerki eru í Colorado, þar á meðalThe Colorado National Monument ogDinosaur National Monument.

Meginlandsloftslag er í fylkinu og hæsti hiti sem mælst hefur er 48 °C en lægsti hitinn −52 °C.

Samfélag

[breyta |breyta frumkóða]

Höfuðborg Colorado heitirDenver og er jafnframt stærsta borg fylkisins. 70% af íbúum fylkisins búa austur af Klettafjöllum og er svæðið Denver-Aurora-Boulder með 3.157.520 íbúa. Hvítir eru 81.3%, svartir 4% asískir 2,8%. Um 21% eru af rómönskum uppruna (hispanics). En Colorado er það fylki með 6. hæstu prósentu mexíkansk-amerískra íbúa.Colorado Springs er næststærsta borgin. Vinsæll skíðastaður erAspen.

Helstu trúarbrögð eru kristni; 66% (44% mótmælendur, 19% kaþólskir og 3% mormónar), gyðingdómur 2%, islam 1%, búddismi: 1%, hindúismi 0,5%. Ótengdir trúarbrögðum eru 25%.

Landbúnaðarframleiðsla er aðallega: Nautgriparækt, hveiti, mjólkurvörur og korn. Atvinnugreinar eins og hátækniiðnaður og fjármálaiðnaður hafa aukist í mikilvægi síðustu ár.

Árið 2013 varð Colorado fyrsta fylkið til að lögleiðamaríjúana.

Söguágrip

[breyta |breyta frumkóða]

Frumbyggjar höfðu búið í meira en 13.000 ár á svæðinu áður en Evrópubúar komu þangar. Ættbálkar eins og Apache, Comanche, Ute og Pueblo hittu Evrópubúar fyrir.

Með Louisiana-kaupunum frá Frökkum árið 1803 áttu Bandaríkjamenn tilkall til svæðis austur af Klettafjöllum. En þetta gekk í berhögg við tilkall Spánverja til svæðisins. Síðar varð Mexíkó sjálfstætt ríki frá Spáni og eftirstríð við Bandaríkin (1848) lét það af hendi norðursvæði sitt sem innihélt meðal annars Colorado. Árið 1861 var stofnað tilTerritory of Colorado en árið 1875 varð Colorado 38. fylki Bandaríkjanna.

ÍBandaríska borgarastríðinu réðust Texas-búar til Colorado í því augnamiði að ná yfirráðum yfir gullnámum. Íbúar Colorado ráku þá í burtu eftir orrustuna í Glorietta-skarði. Um sama leyti varð blóðbað á frumbyggjum Cheyenne og Apache af höndum hvítra manna íSand Creek massacre. Frumbyggjarnir voru sakaðir um að stela nautgripum og voru yfir 500 þeirra drepnir ásamt konum og börnum. Silfur var uppgötvað íSan Juan-fjöllum árið 1872 og var Ute-frumbyggjum gert að yfirgefa svæðið vegna þess. Árið 1893 fengu konur kosningarétt í Colorado.

Fylkið fór illa út úr kreppunni árið 1930 en eftir síðari heimstyrjöld kom straumur innflytjenda og hagurinn vænkaðist. Í dag eru ferðaþjónusta og tæknigreinar mikilvægar greinar.

Tilvísanir

[breyta |breyta frumkóða]

Heimild

[breyta |breyta frumkóða]

Fyrirmynd greinarinnar var „Colorado“ áensku útgáfuWikipedia. Sótt 11. feb. 2017.

Tenglar

[breyta |breyta frumkóða]
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengistColorado.
Fylki
Alríkissvæði
Hjálendur
  ÞessiBandaríkja-tengdagrein erstubbur. Þú getur hjálpað til með því aðbæta við greinina.
Sótt frá „https://is.wikipedia.org/w/index.php?title=Colorado&oldid=1916897
Flokkar:
Falinn flokkur:

[8]ページ先頭

©2009-2025 Movatter.jp