Movatterモバイル変換


[0]ホーム

URL:


Fara í innihald
WikipediaFrjálsa alfræðiritið
Leit

Cliff Burton

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Minnisvarði um Burton nálægt Ljungby, Svíþjóð.

Clifford Lee "Cliff" Burton (fæddur 10. febrúar 1962 í Castro Valley,Kaliforníu, látinn 27. september, 1986) var bandarískur tónlistarmaður og bassaleikari. Hann lék á bassa með hljómsveitinniMetallica frá 1982 til 1986 en á tónleikaferðalagi íSvíþjóð það ár lenti hljómsveitin í bílslysi og lenti Burton undir rútunni sem flutti sveitina. Um mánuði eftir að Burton lést fann Metallica nýjan bassaleikara;Jason Newsted.

Burton fann sér áhrifavalda í ýmsum tónlistarstefnum, þar á meðal klassískri tónlist, kántrí, blús og jazz. Áður en Burton gekk í Metallica var hann í hljómsveit með Mike Bordin og Jim Martin sem stofnuðu hljómsveitinaFaith No More og hljómsveitinni Trauma.Lars Ulrich ogJames Hetfield sáu Burton spila með Trauma og heilluðust af spilamennsku hans. Þeir fluttu tilSan Francisco til að tryggja hann sem meðlim hljómsveitarinnar. Þeir tileinkuðu lagiðTo Live Is to Die Burton af plötunni...And Justice for All.

Sótt frá „https://is.wikipedia.org/w/index.php?title=Cliff_Burton&oldid=1798971
Flokkar:

[8]ページ先頭

©2009-2025 Movatter.jp