Movatterモバイル変換


[0]ホーム

URL:


Fara í innihald
WikipediaFrjálsa alfræðiritið
Leit

Chris Cornell

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Chris Cornell (2009).

Chris Cornell (fæddurChristopher John Boyle;20. júlí1964 - látinn18. maí2017[1]) var tónlistarmaður fráSeattle,Bandaríkjunum.

Fyrstu kynni Cornells af tónlist voruBítlarnir sem varð til þess að hann lærði á píanó. Á unglingsárum var hann einfari,kvíðinn og meðvíðáttufælni. Eftir að hafa hætt í skóla keypti hann trommusett og hóf að spila með hljómsveitum í Seattle. Hann kynntist Hiro Yamamoto og Kim Thayil[2] og stofnaðigrugghljómsveitinaSoundgarden árið 1984 sem starfaði til 1997. Hann hóf síðar sólóferil og var um tíma í hljómsveitinniAudioslave (2001-2007) en gekk aftur til liðs við Soundgarden árið 2010. Árið 1991 tók hann þátt í tónlistarverkefninuTemple of the dog sem meðlimumPearl Jam til minningar um sameiginlegan vin, Andrew Wood.

Árið 2006 samdi Cornell lagiðYou Know My Name, sem kom fram íJames Bond myndinni,Casino Royale.

Cornell spilaði á Íslandi árið 2007 (Laugardalshöll)[3] og í mars árið 2016 íHörpu.

Einkalíf

[breyta |breyta frumkóða]

Cornell skildi við eiginkonu sína, Susan Silver (sem var umboðsmaður Soundgarden ogAlice in Chains) árið 2004 og fór um svipað leyti í meðferð vegna áfengis og vímuefna. Hann á með Susan eina dóttur. Hann kynntist nýrri konu, Vicky og eignaðist með henni 2 börn. Chris átti 5 systkini; 2 eldri bræður og 3 yngri systur. Hann vann um tíma sem kokkur.

Andlát

[breyta |breyta frumkóða]

Cornell lést óvænt þann 18. maí árið 2017, aðeins nokkrum klukkustundum eftir að hafa spilað á tónleikum íDetroit.[1][4]Cornell fannst látinn á baðherbergi hótels og hafði hengt sig.[5]

Sólóplötur

[breyta |breyta frumkóða]
  • Euphoria Morning (1999)
  • Carry On (2007)
  • Scream (2009)
  • Songbook (2011)
  • Higher Truth (2015)
  • No One sings Like You Anymore, Vol 1. (2020)

Temple of the Dog

[breyta |breyta frumkóða]
  • Temple of the Dog (1991)

Tilvísanir

[breyta |breyta frumkóða]
  1. 1,01,1Berman, Taylor.„Chris Cornell Police Report Details the Hours Before Singer's Death“.Spin. Afrit afupprunalegu geymt þann 20 maí 2017. Sótt 19. september 2017.
  2. Chris Cornell - so much more than a grunge starBBC, skoðað 19. maí, 2017
  3. Chris Cornell með hita og áritar ekki í dag Vísir. Skoðað 31 janúar , 2016.
  4. Chris Cornell látinn Rúv, skoðað 18. maí 2017.
  5. Chris Cornell: Soundgarden star dies of 'hanging by suicide' BBC. skoðað 19. maí 2017.
Sótt frá „https://is.wikipedia.org/w/index.php?title=Chris_Cornell&oldid=1863663
Flokkar:
Falinn flokkur:

[8]ページ先頭

©2009-2025 Movatter.jp