Movatterモバイル変換


[0]ホーム

URL:


Fara í innihald
WikipediaFrjálsa alfræðiritið
Leit

Calais

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Bryggjan í Calais.

Calais (borið fram[kaˈlɛ],hollenska:Kales) er bær íNorður-Frakklandi í umdæminuPas-de-Calais. Þó Calais sé stærsti bærinn í umdæminu er höfuðborg þessArras, sem er þriðji stærsti bær umdæmisins. Íbúar Calais voru 125,584 frá og með manntali árið 1999.

Calais liggur aðErmarsundinu þar sem það er aðeins 34 km að breidd, og er sá bær í Frakklandi sem er næsturEnglandi. Einu sinni var bærinn og svæðið í kring hannundir stjórn Englands. Þegar skýrt er, eruhvítu klettarnir í Dover sjáanlegir frá Calais. Gamli bærinn, Calais-Nord, er staddur á mannbyggðri eyju sem er umkringdskurðum oghöfnum. Nýrri hluti bæjarins, St-Pierre, liggur suðvestan við gamla bæinn. Vegna legu sinnar hefur Calais verið mikilvæg höfn í margar aldir. Ferjur sigla þangað fráDover í Englandi og þetta er aðalleið á milli þessara landa. MunniErmarsundsganganna er nálægur Calais íCoquelles.

Fólk hefur búið í Calais frá ómunatíð, enRómverjar kölluðu bæinnCaletum. Með tíð og tíma varð Calais mikilvægur hafnarbær. Bærinn var undir stjórn ýmislegra landa og talaði fólkið aðallegahollensku.Játvarður 3. Englandskonungur hélt að hann væri lögmætur konungur Frakklands og ákvað að gera innrás á Calais árið1347, vegna legu hans við England.Brétigny-sáttmálinn lét Calais af hendi til Englands. Í tvær aldir var Calais hluti Englands og var með fulltrúa íEnska þinginu. Loksins tók Frakkland Calais aftur í sínar hendur árið1558. Árið1805 komu hermennNapóleons saman í Calais fyrir áætlaða innrás á Englandi. Áfyrri heimsstyrjöldinni varBreski herinn staðsettur í bænum, en áseinni heimsstyrjöldinni varorrustan við Calais háð þar.

Orðsifjafræði; nafnið kemur fyrst fyrir 1180 sem Calesium á latínu og Kales á gamal-flæmsku. líklegast þikir að nafnið sé komið úr keltnesk caleto-, sem merkir hart, sbr. staðarnafnið Caleti, og þjóðflokksheitið Caletes, yfir þjóðflokk sem bjó þar sem nú er Belgía og svæðið Caux dregur nafn sitt af.

Heimildir

[breyta |breyta frumkóða]
Sótt frá „https://is.wikipedia.org/w/index.php?title=Calais&oldid=1797695
Flokkur:

[8]ページ先頭

©2009-2025 Movatter.jp