COVID-19 er smitsjúkdómur af völdumkórónuveirunnarSARS-CoV-2. COVID-19 kom upp íWuhan héraði íKína síðla árs2019 og varð aðkórónaveiruheimsfaraldri árið 2020. Alls hafa um 7 milljónir látist úr sjúkdóminum svo staðfest sé og 775 milljónir smitast í faraldrinum. Fjöldi dauðsfalla er líklega vanmetinn. Í þróunarlöndum er illa haldið utan um smit og dauðsföll.[1]
17. mars voru smitin 199 áÍslandi. Um miðjan ágúst voru greind smit á Íslandi orðin um 2000 og dauðsföll vegna veirunnar 10 talsins. Sjúkdómurinn var í rénun frá lok apríl og aðeins 8 smit greindust í maí. Hins vegar fjölgaði smitum aftur um mitt sumar og aftur um haustið. Þriðja bylgja faraldursins hófst 11. september 2020.[3] Um miðjan október lést fyrsta manneskjan í þriðju bylgjunni úr Covid-19.[4] Hópsmit kom upp á Landakotsspítala og létust 13 af völdum þess.[5]
250 hafa alls látist á Íslandi og um 209.000 smitast eða um 56% landsmanna.
Veiran sem veldur COVID-19 breiðist aðallega út í gegnum úðadropa sem myndast þegar smitaður einstaklingur hóstar, hnerrar eða andar frá sér og smitast í gegnum augu, nef, munn eða kynfæri.
Á meðan faraldurinn gekk yfir var mikil áhersla lögð á hreinlæti svo semhandþvott,spritt og grímunotkun eða félagsforðun. Barir og líkamsræktarstaðir lokuðu ásamt fleiru. Einnig var sett samkomubann fyrir stærri viðburði. Þá hefur var mælt með því að almenningur héldi 2 metra fjarlægð milli sín. Sóttkví var einnig beitt fyrir þá sem að hafa annað hvort voru í návígi við smitaðan einstakling eða fyrir á sem komu frá hættusvæði.
Sjúkdómurinn hefur mismunandi áhrif eftir einstaklingum. Flestir þeir sem sýkjast fá væg eða miðlungsmikil einkenni. Sumir eru í meiri hættu á að veikjast alvarlega en aðrir, hættan eykst með aldri. Þeir sem eru 60 ára og eldri eru í aukinni hættu á að fá alvarleg einkenni.
Í Bretlandi, 8. desember 2020, fékk fyrsti einstaklingurinn í heiminum bólusetningu, sú sprauta kom frá Pfizer. Á Íslandi fékk fyrsti einstaklingurinn sprautu 29. desember 2020. Önnur samþykkt bóluefni ásamt Pfizer voru m.a Moderna og AstraZeneca.