Movatterモバイル変換


[0]ホーム

URL:


Fara í innihald
WikipediaFrjálsa alfræðiritið
Leit

Breyta

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Þessi grein fjallar um stærðfræði. Sjábreyta (forritun) fyrir greinina um varðveitingu ástands innan forrits

Breyta er eiginleiki í efnislegu eða huglægukerfi sem getur tekið fleiri en eitt sjáanlegtgildi. Breyta er því andstæðafasta, sem tekur aðeins eitt gildi og er því alltaf eins. Þegar breytur eru notaðar með tölum og táknum eins og15x+4{\displaystyle 15x+4} kallast þaðstæða.

Breytur flokkaðar eftir tegund gilda sem þær taka

[breyta |breyta frumkóða]
  • Fallsbreyta erílagfalls og vísar til staks íformengi fallsins.Myndmengi inniheldurfrálag fallsins og ef fall ergagntækt er fyrir sérhvert stak í varpmenginu til eitt og aðeins eitt stak í formengi fallsins.
  • Færibreyta er notuð íforritunarmáli.
  • Nafnbreyta tekur aðeins eigindleg gildi en ekki megindleg (það er töluleg) gildi. Ekkert gildi er því meira eða minna en nokkurt annað. Dæmi um slíka breytu er breytanStjórnmálaflokkur sem gæti til að mynda tekið gildinSjálfstæðisflokkur,Framsóknarflokkurinn,Frjálslyndi flokkurinn,Samfylking ogVinstri hreyfingin grænt framboð.
  • Raðbreyta tekur gildi sem hægt er að raða í röð eftir stærð, en bilið á milli gilda er ekki skilgreint. Dæmi um raðbreytu er breytansæti ífegurðarsamkeppni, sem tekur gildin fyrsta sæti, annað sæti og svo framvegis. Breytan er raðbreyta því hún gefur upplýsingar um hvort tiltekinn keppandi sé fegurri en annar, en segir ekki hversu MIKIÐ fegurri hann er.
  • Jafnbilabreyta tekur megindleg gildi þar sem jafnt bil er á milli eininga. Jafnbilabreyta hefur þó ekki eiginlegannúllpunkt og því er merkingarlaust að reiknahlutfall gilda breytunnar. Dæmi um slíka breytu erhiti áCelsíuskvarða því jafnmikill hitamunur er til að mynda á milli 0 og 100 gráða og á milli 100 og 200 gráða. Celsíus-kvarðinn hefur aftur á móti ekki eiginlegan núllpunkt (því hægt er að fara niður fyrir núllpunktinn og yfir í mínusgráður).
  • Hlutfallsbreyta tekur gildi sem jafnt bil er á milli en ólíkt jafnbilabreytu hafa gildi hlutfallsbreytu eiginlegan núllpunkt. Því er hægt að tala um hlutfall tveggja gilda breytunnar. Dæmi um slíka breytu erlengd. Gildi lengdar fara fránúlli og upp, en lengd getur ekki tekið neikvæð gildi. Lengd er hlutfallsbreyta því hlutfall tveggja gilda sem hún getur tekið hefur merkingu. Til að mynda er hægt að segja að hlutfallið 2 cm / 4 cm sé 0,5 eða að 2 cm séu helmingurinn af 4 cm.

Breytur flokkaðar eftir orsakatengslum

[breyta |breyta frumkóða]
  • Frumbreyta er sú breyta sem talin er hafa áhrif á aðra breytu. Hún er oft táknuð með gildinuX.
  • Fylgibreyta er sú breyta sem aðrar breytur hafa áhrif á. Hún er oft táknuð með gildinuY.
  • Þriðja breyta eðasamsláttarbreyta er sú breyta sem hefur áhrif á samband frumbreytu og fylgibreytu eða mælingar á því. Hún er oft táknuð með gildinuZ. Írannsóknum er reynt að hafa stjórn á slíkum breytum svo hægt sé að kanna tengsl á milli X og Y án truflandi áhrifa hennar.
Sótt frá „https://is.wikipedia.org/w/index.php?title=Breyta&oldid=1730050
Flokkar:

[8]ページ先頭

©2009-2025 Movatter.jp