Bogamínúta og bogasekúnda
Verkfæri
Almennt
Prenta/flytja út
Í öðrum verkefnum
Bogamínúta, táknuð með ′, er einingbogmáls sem jafngildir1/60 einnargráðu.[1] Þar sem ein gráða er1/360 af heilumhring, er ein bogamínúta1/21.600 af hring.Sjómíla var upphaflega skilgreind sem ein bogamínúta álengdarbaug jarðar, þannig að ummál jarðar er næstum því 21.600 sm. Bogamínúta erπ/10.800 afbogamálseiningu (radíana).
Bogasekúnda, táknuð með ″,[2] er1/60 af bogamínútu, eða1/3.600 af gráðu,[1]1/1.296.000 af hring, ogπ/648.000 (um1/206.264,8) af bogamálseiningu.
Þessar mælieiningar eiga sér uppruna íbabýlónskri stjörnufræði semsextugustu hlutar af gráðu. Þær eru notaðar þar sem þörf er á mælieiningum fyrir brot af gráðu, eins og ístjörnufræði,sjónmælingum,augnlækningum,ljósfræði,siglingafræði,landmælingum ogskotfimi.